„Ég æfi flesta daga en við erum með fastar æfingar tvisvar í viku. Ég æfi keiliu af því mér finnst það gaman,“ segir hinn 9 ára gamli Matthías Leó Sigurðsson sem náði frábærum árangri á dögunum á Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf sem fram fór í Egilshöll. Matthías gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í...
Írskir vetrardagar eru nú haldnir í annað sinn á Akranesi. Markmiðið með hátíðinni er að efla þekkingu og tengsl Akurnesinga við írska arfleifð sína sem og að kynna hana fyrir gestum. Írskir vetrardagar hófust í gær, fimmtudaginn 16. mars og þeim lýkur á sunnudaginn, 18. mars. Í morgun, föstudag, fór írska tónlistarkonan Elaine Ní Cuana...
Nýtt fimleikahús mun rísa við íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi. Meirihluti fulltrúa bæjarráðs Akraness samþykkti á fundi sínum þann 16. mars síðastliðinn. Þetta kemur fram í frétt á akranes.is Vísað var til ákvörðun ráðsins til samþykktar í bæjarstjórn. Fyrir lágu umsagnir skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs og var meirihluti fulltrúa þeirra ráða samþykkur staðsetningunni. Hvar...
Það er ávallt nóg um að vera hjá félögum í Klifurfélagi Akraness. Um s.l. helgi lauk Íslandsmeistararöðinni sem fram fór í Klifurhúsinu í Reykjavík. Fjölmennur hópur keppenda frá Akranesi mætti til leiks og stóðu þeir sig með prýði. Í unglingaflokki klifraði Brimrún Eir Óðinsdóttir fyrir ÍA. Fyrir mótið var Brimrún Eir í öðru sæti og...
Svæðistónleikar Nótunnar 2017 fyrir Vesturland og Vestfirði verða haldnir í Tónbergi laugardaginn 18. mars kl. 14. Á tónleikunum koma fram valin atriði frá 8 tónlistarskólum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tónlistarskóla Akraness. Hér er því á ferðinni þverskurður af því besta frá nemendum tónlistarskólanna á þessu svæði. Atriðin eru fjölbreytt...
„Búin að vera ansi mögnuð vika. Ég hef fengið ótrúlega jákvæð viðbrögð frá bæjarbúum og yndislegar móttökur frá starfsmönnum og kjörnum fulltrúum. Er bara ansi hrærður yfir þessum viðbrögðum, spenntur og hlakka til,“ skrifar Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness á fésbókarsíðu sína þegar hann fer yfir síðustu daga í hans lífi sem hafa svo sannarlega verið...
Frændurnir og sjúkraflutningamennirnir Sigurður Már Sigmarsson og Skarphéðinn Magnússon hafa verið nokkuð mikið í fréttum hér á skagafrettir.is. Skarphéðinn hét því að safna hári ef hann fengi 1000 læk á færslu á fésbókinni sem birt var fyrir áramót og Sigurður frændi hans ákvað að styðja við bakið á vinnufélaganum með því að láta raka af...
Afreksíþróttasvið við FVA er samstarfsverkefni FVA, íþróttafélaga á Akranesi og Akranesbæjar. Sviðið er hugsað fyrir nemendur sem hafa stundað afreksíþróttir í töluverðan tíma og vilja hafa aukið svigrúm til að stunda íþrótt sína samhliða námi í skólanum. Samhliða íþróttaiðkun með íþróttafélagi þá stunda nemendur æfingar á skólatíma tvisvar sinnum í viku auk þrekþjálfunar og annarrar...
Sjónvarpsstöðin N4 er með frábæra þætti þar sem mannlífið á Vesturlandi er til umfjöllunnar. Hlédís Sveinsdóttir er umsjónarmaður þáttanna en hún er búsett á Akranesi og ættuð frá Snæfellsnesi. Hlédís var með skemmtilegt viðtal við Guðleif Einarsson vert á kaffihúsinu Lesbókin Café í síðasta þætti. Innslagið má sjá hér fyrir neðan en það hefst þegar...
„Við hófum upptökur fyrir ári síðan og það eru aðeins nokkrir dagar þangað til við fáum hlómdiskinn í hendurnar. Við finnum fyrir frábærum stuðningi fyrir þetta verkefni og útgáfutónleikana sem eru á dagskrá 17. og 18. mars í Tónbergi á Akranesi,“ segir Ása Katrín Bjarnadóttir meðlimur í þjóðlagasveitinni Slitnum Strengjum sem er að fagna útgáfu...