Það eru spennandi tímar framundan á Langasandi á Akranesi, þar sem verkefnið „Guðlaug við Langasand“ fékk 30 milljóna kr. styrk. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið stendur á bak við styrkinn sem kemur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Áætlað er að byggja heita laug sem verður staðsett í grjótvörn við Langasand á Akranesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Mannvirkið samanstendur...
Brekkubæjarskóli og Grundaskóli kepptu í Skólahreysti í gær en keppnin fór fram í Mýrinni í Garðabæ. Krakkarnir stóðu sig vel og endaði Brekkubæjarskóli í öðru sæti, hálfu stigi á eftir sigurliðinu, en Grundaskóli endaði í sjötta sæti. Grunnskólar af Vesturlandi og Vestfjörðum tóku átt í keppninni í gær og var mikið fjör á áhorfendabekkjunum. Lið...
Sævar Freyr Þráinsson tekur við sem bæjarstjóri á Akranesi: Á lokuðum fundi bæjarstjórnar Akraness þann 28. febrúar síðastliðinn var samþykkt samhljóða að ganga til samninga við Sævar Frey Þráinsson um starf bæjarstjóra á Akranesi. Sævar tekur við starfinu af Regínu Ásvaldsdóttur sem nýlega var ráðin sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað....
„Þessi heimsókn okkar hefur fram til þessa verið ótrúlega lærdómsrík en jafnframt skrítin. Mín upplifun af Suður-Afríku er að landið er ótrúlega fallegt, sambland af Ítalíu, Ameríku og Afríku. Maturinn hérna er gríðarlega góður að maður gæti alveg dáið fyrir hann. Úrvalið hér er gríðarlegt,“ segir Auður Líndal sem er stödd rétt utan við Höfðaborg...
Tónlistarstarfið í Brekkubæjarskóla er öflugt – fjölmargir nemendur í viðtali á Hringbraut Kraftmikið tónlistarstarf í Brekkubæjarskóla á Akranesi hefur vakið athygli víða. Umsjónarmenn þáttarins Skólinn okkar á sjónvarpsstöðinni Hringbraut kíktu í heimsókn í Brekkubæjarskóla á dögunum og úr því varð þetta fína efni sem er að finna á hringbraut.is. Þátturinn er hér fyrir neðan og...
Það er ávallt nóg um að vera í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Fjölmennnur hópur nemenda úr 10. bekk frá Akranesi og Hvalfjarðarsveit kom í heimsókn mánudaginn 13. mars. Þar var þeim boðið í kynningar á ýmsum námsleiðum FVA sem eru í boði fyrir árgang 2001 sem lýkur grunnskólanámi sínu vorið 2017. Tekið var á móti...
Það var mikið um að vera í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi föstudaginn 10. mars s.l. Fulltrúar frá háskólum landsins mættu á Akranesi til þess að kynna námsframboð sitt fyrir nemendum FVA. Fulltrúar frá alls sjö skólum ræddu við nemendur á þessum vel heppnaða kynningardegi. Mætingin var mjög góð hjá nemendum FVA og einnig var...
Hestamannafélagið Dreyri heldur upp á 70 ára afmæli sitt á þessu ári en félagið var stofnað þann 11. maí árið 1947. Félagar úr Dreyra létu svo sannarlega vita af sér í góðviðrinu í dag á Akranesi þar sem þeir riðu um götur bæjarins í tilefni Góugleðar. Hópurinn lagði af stað rétt eftir hádegi í dag...
Fimleikahópur FIMA á Akranesi náði frábærum árangri á Bikarmóti WOW sem fram fór um helgina í Garðabæ. Stelpurnar kepptu í 1. flokki og stóðu uppi sem sigurvegarar. Frábær árangur hjá okkar stelpum – og til hamingu.
Það var mikið líf í Bíóhöllinni á föstudagskvöldið þegar skagafrettir.is litu við á generalprufu á leikritinu um Ronju Ræningjadóttur. Það er leiklistaklúbbur Nemendafélags Fjölbrautaskóla Akraness sem stendur að sýningunni. Alls eru um 50 manns sem koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Aldís Eir Valgeirsdóttir fer með aðalhlutverkið og hún dregur ekkert af sér...