• Steinþór Árnason mun sjá um rekstur golfskálans og veitingasölu hjá Golfklúbbnum Leyni sumarið 2017. Í tilkynningu frá Leyni kemur fram að Steinþór hafi víðtæka reynslu af rekstri kaffihúsa, veitingastaða og hótela bæði á Íslandi og erlendis sem án efa mun nýtast til að gera góðan golfskála enn betri. Golfskálinn og veitingareksturinn mun fá rekstrarheitið 19. holan....

  • Skagamenn hafa styrkt lið sitt fyrir keppnistímabilið í Pepsi-deild karla með því að semja við varnarmanninn Robert Menzel. Hinn 26 ára gamli Pólverji hefur leikið 70 leiki í efstu og næst efstu deild í heimalandinu. Hann lék síðast með Podbeskidzie Bielsko-Biala í efstu deild í Póllandi. Í fréttatilkynningu frá ÍA kemur fram að Menzel hefur...

  • Það er enn gríðarlegt magna af snjó á Akranesi eftir mikið fannfergi um s.l. helgi. Snjóhengjur hafa skriðið fram af húsþökum bæjarins á undanförnum dögum og á nokkrum stöðum hafa þakskegg og rennur gefið sig undan þunganum. Á Bárugötunni er glæsileg snjóhengja á fyrrum höfuðstöðvum Skeljungs. Ljósastaur sem liggur alveg upp við húsið styður við...

  • Slökkvilið Akraness tekur ávallt vel á móti yngri kynslóðinni þegar slíkar heimsóknir eiga sér stað á slökkvistöðina. Nýverið fékk Sigurður Pétur Bjarkason, úr 3. bekk í Brekkubæjarskóla, viðurkenningu fyrir eldvarnargetraun sem Landssamband slökkviliðs – og sjúkraflutningamanna stendur fyrir árlega. Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri afhenti Sigurði viðurkenningarskjal ásamt nauðsynlegum eldvarnarbúnaði fyrir heimili þann 23. febrúar s.l. Þetta...

  • „Við erum að fara til Suður-Afríku og munum dvelja rétt fyrir utan Höfðaborg (Cape Town). Við verðum þarna í tvær vikur í sjálfboðastarfi hjá samtökunum Norður-Suður. Þar fáum við innsýn í skólastarf, barnaheimili og súpueldhús sem fæðir 300 börn á mánuði,“ segir Skagakonan Auður Líndal en hún fer með 15 ára syni sínum í ævintýraferð á...

  • Í þessu stutta myndbroti eru knattspyrnufræðin krufin til mergjar af þeim Ríkharði Jónssyni og Helga Hannessyni. Myndbandið var birt á fésbókarsíðu Knattspyrnufélags ÍA og er stórskemmtileg heimild um þessa miklu kappa. Útför Ríkharðs Jónssonar fór fram í gær í Akraneskirkju að viðstöddu fjölmenni. Ríkharður var einn mesti knattspyrnumaður allra tíma hér á Íslandi og þjálfaði...

  • „Ég er vandræðalega ánægð með þessi Edduverðlaun! Takk fyrir góðar kveðjur elsku vinir,“ skrifar Sigrún Ósk Kristjánsdóttir á fésbókarsíðu sína. Sigrún Ósk fékk Edduverðlaunin í gær ásamt samstarfsfólki sínu fyrir þættina Leitin að upprunanum sem sýndir voru á Stöð 2. Frétta- eða viðtalsþátt­ur árs­ins Leit­in að upp­run­an­um fékk Edduverðlaunin sem besti frétta – eða viðtalsþáttur...

  • Snjórinn er í aðalhlutverki á Akranesi þessa stundina. Skaginn skartaði sínu fegursta í gær eins og sjá má í þessu myndbandi sem Kristinn Gauti Gunnarsson setti inn á Instagram síðu sína. Myndbandið segir allt sem segja þarf. ❄? #dji #p3p #gopro A post shared by Kristinn Gauti Gunnarsson (@kristinngauti95) on Feb 26, 2017 at 2:17pm...

  • Skagamaðurinn Sveinbjörn Hafsteinsson, Kór Akraneskirkju og hljómsveitin Bland fóru á kostum á tónleikum sem fram fóru á laugardaginn í Tónbergi. Fullt var út úr dyrum og tónleikagestir kunnu svo sannarlega að meta það sem boðið var upp á. Efnisdagskráin var fjölbreytt og skemmtileg stemmning var á þessum tónleikum. Hér fyrir neðan má heyra Sveinbjörn syngja...

  • Það hefur ekki farið framhjá neinum að það snjóaði mikið á Akranesi í nótt. Sviptingar í veðrinu eru miklar því um síðustu helgi fór fram golfmót í veðurblíðunni á Akranesi. Það var mikið líf á Akranesi í dag þegar skagafrettir.is smellti af þessum myndum – og gleðin var mikil hjá yngri kynslóðinni. Myndirnar eru einnig á...

Loading...