Einar Örn Guðnason er án efa einn sterkasti Skagamaðurinn nú um stundir. Kraftlyftingamaðurinn gerði sér lítið fyrir og sigraði á Bikarmóti sem fram fór í Hafnarfirði helgina 5.-6. nóvember s.l. Einar Örn, sem keppir fyrir Kraftlyftingafélag Akraness, var stigahæsti keppandi mótsins þar sem hann fékk 524,6 Wilkstig. Einar Örn keppti í -105 kg. flokki sem...
Haustmót FSÍ fór fram í dag í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Mótið er eitt það allra stærsta sem Fimleikafélag Akraness hefur haldið og var gríðarlega skemmtileg að fylgjast með keppendum og tilþrifum þeirra. Ljósmyndari skagafretta.is var á svæðinu um tíma í dag og smellti af þessum myndum. Hægt er að skoða þær einnig á fésbókarsíðu Skagafrétta....
Í dag fer fram jólamarkaður í félagsheimili hestamannafélagsins Dreyra við Æðarodda. Það eru vinir Kidda Jens sem standa að þessum markaði. Á fésbókarsíðu markaðarins, sem er hér, má sjá hversu fjölbreytt úrvalið verður á markaðnum sem hefst kl. 12 og stendur til kl. 17. Við hvetjum þá sem hafa tök á að renna upp í...
Kraftmikill hópur kylfinga úr barna – og unglingastarfi Golfklúbbsins Leynis stefnir á að fara í æfingaferð erlendis vorið 2018. Hópurinn er þegar farinn að vinna í ýmsum fjáröflunum og þar hafa bílaþrif verið fastur punktur í tilveru Skagamanna undanfarin ár. Að venju verður boðið upp á fagmannleg alþrif og bón á öllum stærðum og gerðum...
Mynd dagsins er alls ekki ný. Líklega tekin á árunum 1930-1940 eftir því sem best er vitað. Myndina tók Árni Böðvarsson frá Vogatungu úr turninum á Akraneskirkju og þar má m.a. sjá höfuðstöðvar Skagafrétta. Lengst til vinstri á myndinni er húsið Bjarg sem stendur við Laugarbraut 7. Þar sem Þórólfur Ævar Sigurðsson og Kristín Eyjólfsdóttir...
Viktor Örn Einarsson úr Grundaskóla og félagi hans úr sama skóla, Baldur Freyr Birgisson, nýttu sér veðurblíðuna á Akratorgi þann 4. nóvember s.l. þegar útsendari Skagafrétta rakst á þá félaga. Viktor er í 5. bekk og Baldur er í 6. bekk og þeir sögðu í örstuttu spjalli við Skagafréttir að þeir kynnu vel við sig...
Mikil gróska í starfi Sundfélags Akraness – á þriðja hundrað stunda æfingar Það stendur mikið til hjá afrekssundfólki hjá Sundfélagi Akraness um næstu helgi en Íslandsmótið í 25 metra laug fer þá fram. Sundfélag Akraness er í fremstu röð á landinu og er í hópi fimm sterkustu sundfélaga landsins. „Við erum með sundfólk í okkar...
Það eru fjölmargir sem eru með myndavélarnar og síma á lofti á Akranesi og smella af áhugaverðum hlutum, fólki og atburðum. Kristín Gísladóttir er ein af þeim og hún sendi þessa mynd á [email protected]. Myndin er tekin frá Sólmundarhöfða og sést þar yfir Suðurflösina og Gamla vitann. Fyrir þá sem eru að pæla í ljósmyndun...
Stórskemmtilegt BINGÓ og metnaðarfullt bakkelsi – Kirkjubraut 40 kl. 14.00 sunnudaginn 20. nóvember Það er fjölbreytt starf hjá Félagi eldri borgara á Akranesi , FEBAN. Línudanshópur félagsins vinnur að því að fara í keppnis – og sýningarferð til Persaro á Ítalíu árið 2018. Sýningin heitir Golden Age Gym Festival. Sigrún Jóhannsdóttir, eldhress félagi í línudanshópnum,...
Fjármálafræðsla fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla á Akranesi er hluti af námsefni þeirra. Á dögunum komu fulltrúar fjármálastofnana á Akranesi í heimsókn í Grundaskóla (Landsbankinn, Íslandsbanki og Sjóvá) þar sem rædd voru fjármál og fjármálalæsi. Lögð er áhersla á að vinna með raunveruleg verkefni. Fjármál einstaklinga og heimila er eitt af því. Ég verð...