Karlalið ÍA í körfuknattleik hefur farið vel af stað á keppnistímabilinu á Íslandsmótinu. Á undanförnum árum hefur góður grunnur verið lagður í uppbyggingarstarfi félagsins. Liðið er að stórum hluta skipað ungum og efnilegum leikmönnum úr yngri flokka starfi ÍA. Fjölmargir áhorfendur mættu á leik ÍA...
Á undanförnum árum hefur hið glæsilega hús Kirkjuhvoll við Merkigerði verið nýtt sem gistiheimili. Nýverið var þeirri starfsemi hætt og stendur húsið því autt. Húsið er í eigu Akraneskaupstaðar og hefur Knattspyrnufélag ÍA óskað eftir afnotum af húsinu fyrir íþróttafólk á vegum KFÍA og mögulega...
Grundaskóli á Akranesi er heilsueflandi skóli þar er lögð áhersla á að allir nemendur fái góða næringu í skólanum. Í frétt á heimasíðu skólans kemur fram að starfsfólk í mötuneyti skólans hafi unnið markvisst að uppbyggingu á nýjum matarskráningarvef sem nefnist Timian. Á þessum nýja...
Ungmennafélagið Skipaskagi verður með æfingar í frjálsum íþróttum á laugardögum í vetur. Æfingarnar fara fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum og kostar ekkert fyrst um sinn. Fyrsta æfing var laugardaginn 8. október 2022 Æfingatímar: 15 ára og yngri: kl. 10:00 – 10:50 16 ára og eldri:...
Nýverið var nýtt fulltrúaráð skipað við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Hlutverk ráðsins, sem skipað er til fjögurra ára, er að vera skólanefnd til ráðuneytis um þjónustu skólans á Vesturlandi og vera tengiliður á milli skólanefndar og sveitarfélaga sem eiga aðild að skólanum. Fulltrúaráð FVA er...
„Markmiðið með þessu verkefni er að búa til metnaðarfulla stefnu sem ÍA mun vinna eftir á komandi árum. Það er hlutverk okkar í stjórn félagsins að búa til og skapa forsendur þar sem starfsfólk, iðkendur og leikmenn þroskast og þróast við bestu mögulega aðstæður. Vinna...
Körfuknattleikslið ÍA í karlaflokki hefur einu sinni leikið til úrslita um bikarmeistaratitilinn og það er ljóst að ÍA mun ekki leika til úrslita í byrjun næsta árs eftir 77-63 tap gegn liði Selfoss í 32-liða úrslitum keppninnar í gærkvöld. Skagamenn voru án þriggja lykilmanna í...
Kristín Þórhallsdóttir, íþróttamaður Akraness undanfarin tvö ár, náði frábærum árangri á Girl Power boðsmótinu í kraftlyftingum sem fram fór í Frakklandi um s.l. helgi. Alls var 12 keppendum boðið að taka þátt og voru veitt peningaverðlaun fyrir verðlaunasæti. Sterkustu konum franska landsliðsins var boðið að...
Sædís Alexía Sigurmundsdóttir, fulltrúi Framsóknar og frjálsra í skipulags – og umhverfisráði Akraness, lagði fram hugmyndir um verkefnið „Landsbyggðarstígur“ á fundi ráðsins í lok september. Í kynningu Sædísar kom fram að Framsókn og frjálsir hafi lagt áherslu á verkefnið í kosningunum 2022. Flokkurinn óskar eftir...
Íslensku menntaverðlaunin 2022 verða afhent á næstunni. Leikskólinn Akrasel hefur verið tilnefndur í flokki framúrskarandi skólastarfs eða menntunarumbóta. Alls eru fjórir skólar tilnefndir í þessum flokki þar sem verið að verðlauna þann skóla eða menntastofnun sem þykir hafa skarað fram úr í starfi sínu og...