Annað mót tímabilsins á Íslandsbankamótaröð unglinga fór fram á Strandarvelli hjá Golfklúbbnum á Hellu um s.l. helgi. Alls tóku sex keppendur frá Leyni þátt þar af ein stúlka. Björn Viktor Viktorsson sem er lengst til vinstri á myndinni varð þriðji í flokki 15-16 ára pilta....
Það er mikill áhugi á leikjum ÍA það sem af er PepsiMax-deild karla í knattspyrnu. Rétt tæplega 1.400 áhorfendur mæta að meðaltali á leiki ÍA í fyrstu 7 umferðunum. ÍA er í fjórða sæti yfir mestu aðsóknina. Taflan hér fyrir neðan segir alla söguna. Næsti...
Rakel Pálsdóttir hefur á undanförnum misserum og árum skipað sér í fremstu röð söngvara á landinu. Rakel hefur m.a. keppt í undankeppni Söngvakeppni Evrópu hér á Íslandi svo eitthvað sé nefnt. Rakel syngur hér lagið Halo í Akraneskirkju þar sem að Birgir Þórisson leikur með...
Gengi Skagamanna í knattspyrnunni í sumar hefur vakið athygli. Sjónvarpsfréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson frá Stöð 2 og Vísir.is var á leik ÍA og Stjörnunnar á dögunum þar sem hann ræddi við stuðningsmenn á meðan leikurinn fór fram. Þátturinn ber nafnið Ástríðan. Áhugavert og skemmtilegt innslag...
Þáttaröðin að Vestan hóf göngu sína að nýju á sjónvarpsstöðinni N4 nýverið. Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson fara víðsvegar um Vesturland í þáttunum og er efnisvalið fjölbreytt. Í fyrsta þættinum kom Akranes við sögu og þar var kastljósinu beint að nýrri Frístundamiðstöð við Garðavöll...
Skagamaðurinn Jón Ingi Þorvaldsson tók þátt í því að setja nýtt Ástralíumet í fallhlífarstökki um s.l. helgi. Alls tóku 130 stökkvarar þátt í því að setja Ástralíumet – og stökkið var framkvæmt á fallhlífarstökksvæðinu Skydive Perris í Kaliforníu. Jón Ingi segir í viðtali við mbl.is...
Eins og fram hefur komið á skagafrettir.is hætti Sigríður Steinunn Jónsdóttir sem verkefnastjóri atvinnumála hjá Akraneskaupstað um miðjan maí. Bæjarráð hefur samþykkt að auglýsa ekki eftir nýjum verkefnastjóra atvinnumála. Fjármagn vegna launakostnaðar verkefnastjóra verður nýtt til aðkeyptrar sérfræðiþjónustu vegna verkefna sem tengjast atvinnuuppbyggingu á Akranesi....
Hleðslustöðvum verður fjölgað verulega á Akranesi á næstu misserum. Samkomulag þess efnis var samþykkt í bæjarráði Akraness nýverið. Akraneskaupstaðar, Orkuveita Reykjavíkur og Veitur ætla í sameiningu að standa að uppbyggingu innviða til hleðslu á rafbílum á Akranesi. Akraneskaupstaður leggur til 4 milljónir kr. í verkefnið...
Bæjarráð Akraness leggur til að samið verði við Kaja organic ehf. um veitingasölu í þjónustuhúsinu við Guðlaugu við Langsand. Tillaga þess efnis var samþykkt í bæjarráði nýverið. Samstarfið er tilraunaverkefni sem gildir frá 25. maí til 31. ágúst 2019.
Kvennalið ÍA lék frábærlega í síðari hálfleik gegn Þrótti úr Reykjavík í gær í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í knattspyrnu. Staðan var dökk í fyrri hálfleik þar sem að gestirnir skoruðu tvö mörk. Staðan var 2- 1 í hálfleik. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skoraði fyrir ÍA á...