Það styttist í að greint verði frá því hver verður nýr aðstoðarskólastjóri í Brekkubæjarskóla. Ráðningarferlið stendur yfir. Alls sóttu 9 einstaklingar um starfið en einn umsækjandinn dró umsókn sína til baka. Magnús Benediktsson er aðstoðarskólastjóri en hann lætur af störfum í lok skólaársins. Eftirfarandi aðilar...
Miðvikudagurinn 8. maí er dagurinn til þess að sameina útiveru og umhverfismeðvitund. Á þeim degi hvetur Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akraness bæjarbúa til þess að taka þátt í hreinsun og fegrun umhverfisins. Aðildarfélög Íþróttabandalags Akraness ætla að tína upp rusl á völdum svæðum milli kl. 17:00...
Skagamærin Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og Aron Logi Hrannarsson halda áfram að ná frábærum árangri í dansíþróttinni. Rósa Krístin og Aron fögnuðu sigri á Íslandsmótinu í unglingaflokki í Latin-dönsum sem fram fór um s.l. helgi. Þau hafa náð frábærum árangri á árinu eins og sjá má...
Kári Geirlaugsson átti stórkostlega helgi á Íslandsmóti Garpa í sundi sem fram fór um helgina. Kári var eini keppandinn frá ÍA sem tók þátt en hann landaði alls 8 gullverðlaunum. Þar að auki setti Kári Íslandsmet í flokki 70-74 ára í alls átta sundum.
Kári byrjaði vel í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Káramenn sigruðu Völsung frá Húsavík 4-0 í Akraneshöllinni. Sigur Kára var sannfærandi og er Kári í efsta sæti deildarinnar. Andri Júlíusson (27.) og Ólafur Karel Eiríksson (32.) skoruðu fyrir Kára í fyrri hálfleik og staðan var...
Fjórir Skagamenn eru í U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu karla sem fagnaði 3-2 sigri gegn Rússlandi í úrslitum Evrópumótsins. Oliver Stefánsson, Jón Gísli Eyland Gíslason og Ísak Bergmann Jóhannesson voru í byrjunarliði Íslands. Hákon Arnar Haraldsson var á varamannabekknum. Jón Gísli gerði sér lítið...
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, átti frábæran lokahring á móti Omega Dubaí Moonligth Classic á LET Evrópumótaröðinni í dag. Þetta kemur fram á golf.is Mótið fór fram á hinum þekkta Faldo velli á Emirates Golf Club. Valdís lék lokhringinn á 68 höggum...
Tónlistarmaðurinn Hlynur Ben, sem búsettur er á Akranesi er að sjálfsögðu Skagamaður, hefur sett af stað hópfjármögnun fyrir útgáfu á nýrri sólóplötu.Hún mun kallast II ÚLFAR og verður þetta sú þriðja sem Hlynur sendir frá sér í eigin nafni. Hlynur hefur marga fjöruna sopið í...
Nemendum í FVA er margt til lista lagt. Í miðhóp í málmiðngreinum hafa nemendur unnið að áhugaverðu tilraunaverkefni. Frá þessu er greint á vef FVA. Verkefnið fólst í því að smíða frumgerð vörubíls. Styrkleiki nemenda á hverju sviði fyrir sig var nýttur í verkefnið. Sumir...
„Mér líst ótrúlega vel á þetta verkefni og allur hópurinn er á sama máli. Þetta verður skemmtileg sumar,“ segir Bryndís Rún Þórólfsdóttir fyrirliði kvennaliðs ÍA. Bryndís Rún verður í stóru hlutverki í hinu unga liði ÍA. Bryndís kom til Íslands eftir að hafa stundað nám...