Í dag fer fram áhugaverður leikur hjá 2. fl. karla í knattspyrnu. Flokkurinn er í hörkubaráttu um Íslandsmeistaratitilinn og í dag kl. 18. mætir ÍA liði Stjörnunnar á Norðurálsvelli. ÍA, KR og Breiðablik eru í baráttu um efsta sætið og hvert stig er því mikilvægt....
Spölur gerir á síðasta fjórðungi ársins upp við viðskiptavini sína í tilefni af því að félagið hættir að innheimta veggjöld 28. september og afhendir ríkinu Hvalfjarðargöng 30. september, að því gefnu að Ríkisskattstjóri komist í tæka tíð að viðunandi niðurstöðu um skattalega afskrif ganganna og...
Fyrstu bikarmeistarar ÍA, sem hrepptu titilinn í níundu tilraun árið 1978, voru heiðursgestir á upphitun Sterkra Skagamanna fyrir leik ÍA og Víkings frá Ólafsvík. Veislusalurinn á eftir hæð vallarhússins var þétt setinn þegar Hörður Helgason rakti gengi Skagamanna þetta sumarið og sérstaklega í bikarúrslitaleiknum. Hörður...
Berglind Helga Jóhannsdóttir hefur verið ráðin persónuverndarfulltrúi Akraneskaupstaðar. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Staðan var auglýst í júlí síðastliðnum og voru umsækjendur 12 talsins en þrír umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Berglind Helga lauk B.Sc í lögfræði frá Syddansk Universitet í Óðinsvéum og...
ÍA getur með sigri í dag gegn Víkingi frá Ólafsvík tryggt sér sæti í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á næsta ári. ÍA er í öðru sæti Inkasso-deildarinnar en ÍA á þrjá leiki eftir í deildinni. HK er í efsta sæti með 45 stig eftir 20...
Eiður Ólafsson skipstjóri á Ísak AK 67 hefur mokað upp makrílnum á vertíðinni hjá handfærabátunum sem fer brátt að ljúka. Ísak Ak 67 er í fimmta sæti yfir aflahæstu bátana á vertíðinni með 170 tonn í 24 löndunum. Mest hefur Ísak AK 67 fengið 9,1...
Ylfa Laxdal Unnarsdóttir skaut ÍA í úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu hjá 3. flokki kvenna. ÍA lék gegn Breiðabliki í gær á Akranesi í undanúrslitum en Breiðablik hefur haft mikla yfirburði í þessum aldursflokki á undanförnum árum. Ylfa Laxdal skoraði sigurmarkið á 37. mínútu. ÍA...
Menningarlífið á Akranesi fjölbreytt og kraftmikið – og listafélagið Kalman á Akranesi fer þar framarlega í flokki. Tvennir jazztónleikar verða á Akranesi föstudaginn 7. september og eru tónleikastaðirnir ekki alveg hefðbundir. Sigurður Flosason saxófónleikari og sænski píanóleikarinn Lars Jansson munu halda „heimatónleika“ að Grundartúni 8 en...
Fjölmargir skiptinemar hafa verið við nám í í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í gegnum tíðina. Í vetur verður Elena Valladares nemandi við skólann en hún kemur frá Madríd á Spáni. Elena kemur hingað til lands á vegum Rótarýklúbbs Akraness. Sigurbjörn Hallsson og Mjöll Barkar Barkardóttir eru „íslensku“...
Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akranes í samstarfi við Ferðafélag Íslands endurtaka leikinn frá síðasta ári og bjóða upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Frábærir sjálfboðaliðar leiða göngurnar og verður frítt í sund að loknum göngum fyrir göngugarpa. Göngurnar hefjast alltaf kl. 18:00 og er tilgangur...