Skagamaðurinn Hrannar Örn Hauksson sigraði í sumarmyndakeppni VR. Fjölmargir tóku þátt en myndin hans Hrannars þótti sú besta. Myndin segir allt sem segja þarf. Það er án efa einhver tilvísun í sumarveðrið 2018 á SV-hluta landsins í þessari framsetningu og mynduppbyggingu. Pollagalli, stígvél, húfa, sólgleraugu...
Síðdegis í dag var stigið stórt framfaraskref hjá Fimleikafélagi Akraness. Hafist var handa við framkvæmdir á nýju fimleikahúsi við íþróttahúsið við Vesturgötu – og var fjölmenni mætti til þess að fylgjast með því þegar fyrsta skóflustungan var tekin. Guðmundur Claxton formaður FIMA, Marella Steinsdóttir formaður...
Leikmenn Kára og forsvarsmenn félagsins söfnuðu góðum minningum í ferð liðsins austur í Fjarðabyggð þar sem liðið lék gegn Leikni frá Fáskrúðsfirði. Andri Júlíusson skoraði sigurmark Kára úr vítspyrnu í fyrri hálfleik og með sigrinum heldur Kári áfram að gera atlögu að efstu sætum deildarinnar...
Skagamenn eru enn á toppnum í Inkasso-deild karla í knattspyrnu þrátt fyrir markalaust jafntefli gegn HK í toppslag deildarinnar á föstudagskvöld. Það er óhætt að segja að ÍA hafi fengið færin til þess að skora gegn Kópavogsliðinu. Tvær vítaspyrnur fóru í súginn hjá ÍA sem...
Það styttist í að framkvæmdir við nýjar íbúðir við Dalbraut 4 hefjist. Um er að ræða íbúðir og félagsheimili fyrir eldri borgara á Akranesi. Um er að ræða 26 íbúðir í fimm hæða húsi. Félagsaðstaða eldri borgara verður á 1. hæð en íbúðirnar eru á...
Maren Leósdóttir og Unnur Ýr Haraldsdóttir skoruðu glæsileg mörk fyrir ÍA í 2-0 sigri liðsins gegn toppliði Fylkis í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu. Maren skoraði strax á 4. mínútu með glæsilegu langskoti. Staðan var 1-0 í hálfleik og Unnur Ýr bætti við öðru marki ÍA...
Bergdís Fanney Einarsdóttir, leikmaður ÍA, er í landsliðshóp Íslands sem mætir Noregi og Svíþjóð í lok ágúst. Þetta verkefni bætist því í reynslubankann hjá Bergdísi sem hefur tekið þátt í mörgum landsliðsverkefnum yngri landsliða Íslands á undanförnum misserum. Um er að ræða vináttuleiki hjá U19...
Mikill áhugi er á nýju starfi persónuverndarfulltrúa sem Akraneskaupstaður auglýsti til umsóknar í sumar. Umsóknarfrestur rann út 26. júlí s.l. og sóttu 12 aðilar um starfið. Tveir þeirra drógu umsókn sína til baka og stendur ráðningarferlið yfir – segir í frétt á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Ný persónuverndarreglugerð ESB...
„Það væri draumur að fylla völlinn. Gerum þetta saman!,“ segir Hallbera Guðný Gísladóttir leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Hallbera Guðný er fædd á Akranesi og lék með yngri flokkum og mfl. ÍA. Hallbera lék með ÍA til 2005, með Val 2006 til 2011 og var síðan...
Sögur frá Akranesi koma víða við á samfélagsmiðlum á borð við Instagram. Hér má sjá brot af því sem hægt er að finna á vefnum þar sem myllumerkið #akranes er notað. Eins og sjá má er margt sem vekur áhuga þeirra sem heimsækja Akranes og...