ÍA leikur sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn er gegn ÍR og fer hann fram á Norðurálsvellinum kl. 20.00. Skagaliðinu er spáð fínu gengi í sumar af sérfræðingum og verður í baráttunni um að komast í Pepsi-deildina ef...
Ný hreinsistöð skólps var tekin í notkun á Akranesi í gær og bætist bærinn þar með í hóp þeirra sveitafélaga sem uppfylla kröfur um skólphreinsun samkvæmt reglugerð. Með hreinsistöðinni er stigið stórt skref í umhverfismálum Akurnesinga. Þetta kemur fram á vef Veitna. Fyrir uppbyggingu fráveitunnar...
Verðlaunakrimminn Marrið er enn eina vikuna mest selda bók landsins. Eva Björg Ægisdóttir frá Akranesi fékk á dögunum afhent spennusagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir bókina Marrið í stiganum. Bókin hefur vakið mikla athygli og góða dóma. Eins og áður segir er um spennusögu að ræða sem gerist á...
Ljósmyndararnir Ágústa Friðriksdóttir og Guðni Hannesson hafa á undanförnum áratugum safnað gríðarlega mikilvægum upplýsingum um sögu Akraness. Ágústa og Guðni afhentu á dögnunum filmusafn sitt til Ljósmyndasafns Akraness. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Filmusafnið er frá þeim tíma er þau starfræktu Myndsmiðjuna eða allt frá...
Ekkert verður af áframhaldandi tilraunasiglingum farþegaferju milli Akraness og Reykjavíkur í sumar þrátt fyrir vilja beggja sveitarfélaga og Sæferða til að halda verkefninu áfram. „Því miður tókst Sæferðum ekki að útvega ferju til verkefnisins sem uppfyllir íslenskar kröfur og því verður ekki siglt í sumar...
Skagamaðurinn Sigurjón Ernir Sturluson náði áhugaverðum árangri á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum. Mótið fór fram á Spáni og var Sigurjón einn af átta íslenskum keppendum. Hann náði bestum árangri íslensku keppendana. Alls tóku 350 keppendur þátt frá 49 þjóðum og var vegalengdina 85 km. eða tvöfalt...
Páll Sindri Einarsson skrifaði nýjan kafla í sögu Kára í dag í 3-1 sigri liðsins gegn Huginn frá Seyðisfirði í 2. deild karla í knattspyrnu. Páll Sindri varð þar með fyrsti leikmaður Kára til að skora þrennu í 2. deild fyrir félagið og ekki nóg...
Steinar Þorsteinsson hefur farið vel af stað með mfl. ÍA í knattspyrnu karla í Inkasso-deildinni. Hinn tvítugi framherji hefur skorað bæði mörk liðsins en ÍA er í efsta sæti Inkasso-deildarinnar þegar þetta er skrifað með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Steinar, sem lék sinn...
Kvennalið ÍA í knattspyrnu byrjaði tímabilið vel í Inkasso-deildinni. Unnur Ýr Haraldsdóttir fyrirliði ÍA skoraði eina mark liðsins í 1-0 sigri á útivelli gegn Haukum í gær. ÍA er spáð þriðja sætinu í Inkasso-deild kvenna og verður áhugavert að fylgjast með liðinu í sumar.
Það hefur verið mikið líf í Akraneshöfn að undanförnu. Margir smábátar hafa landað þar afla en strandveiðitímabilið hófst í byrjun maí. Veiðin hefur gengið vel á strandveiðitímabilinu en hámarksafli á strandveiðinni eru 770 kg. á dag. Aðrir bátar hafa aflað vel og má þar nefna...