Afmælishátíð ÍA og Íþróttahússins við Vesturgötu stendur yfir frá 13:00 – 16:00 Guli ÍA liturinn verður áberandi á Akranesi í dag þar sem gulur dagur er hjá gríðarlega mörgum Skagamönnum. Tilefnið er að ÍA heldur upp á 70 ára afmæli félagsins á laugardaginn og samhliða...
Þór Breiðfjörð, einn besti söngvari landsins, syngur með kór Akraneskirkju í Bíóhöllinni á laugardaginn. Það ríkir mikil eftirvænting fyrir tónleika sem fram fara laugardaginn 26. nóvember í hinni einu sönnu Bíóhöll á Akranesi. Jól í Höllinni er yfirskrift tónleikanna en þar mun flauelsbarkinn Þór Breiðfjörð...
Útvarp Akraness er ómissandi hluti af menningarlífi Skagamanna en Sundfélag Akraness stendur að verkefninu líkt og áður. Á undanförnum dögum hafa sjálfboðaliðar úr félaginu unnið hörðum höndum að hnýta lausa enda og þar á meðal er flokkun auglýsinga. Tekjurnar sem Sundfélagið fær með þessu verkefni...
Demi van den Berg, Almar Kári Ásgeirsson, Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og Tristan Sölvi Jóhannesson eru efnilegir dansarar frá Akranesi tóku þátt á Opna hollenska meistaramótinu nýverið. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem þau fara erlendis til keppni. Skagakrakkarnir kepptu í flokki 12...
Eins og fram kom í mest lesnu frétt Skagafrétta frá upphafi þá finnst mörgum að Arnór Sigurðsson knattspyrnukappi á Akranesi sé nauðalíkur kanadíska söngvaranum Justin Biber. Skagafréttir settu af stað lauflétta skoðanakönnun á fésbókarsíðu Skagafrétta og þar var niðurstaðan nánast einróma. Atkvæðagreiðslan fór 57 -2....
Annað mót klifurmót vetrarins var haldið í Klifurhúsinu í Reykjavík um s.l. helgi. Fjölmargir ungir klifrarar mættu til þátttöku og áætlað var að um 90 klifrarar hafi tekið þátt. Nálægt 20 klifrarar frá ÍA á aldrinum 6-16 ára mættu til leiks en öflugt klifursamfélag er...
Ágúst Júlíusson, íþróttamaður Akraness 2015, náði frábærum árangri á Íslandsmótinu í 25 metra laug sem fram fór um s.l helgi. Ágúst var einn af þremur keppendum úr Sundfélagi Akraness sem náði í verðlaun á mótinu en alls voru níu keppendur frá ÍA. Ágúst, sem er...
Það má geta þess að Arnór er til vinstri á þessari samsettu mynd. Myndasafn Skagafrétta frá fimleikamóti FSÍ hefur vakið athygli og jafnvel myndir af áhorfendum hafa verið til umræðu á fésbókarsíðum Skagamanna og víðar. Knattspyrnukappinn efnilegi Arnór Sigurðsson, sem nýverið var til reynslu hjá...
„Menningarlífið á Akranesi er að dafna vel og þar sem ég er Skagamaður þá langaði mig að taka þátt í því,“ segir hinn þrítugi Ársæll Rafn Erlingsson sem stendur að Frostbiter kvikmyndahátíðinni ásamt unnustu sinni Lovísu Halldórsdóttur. Hátíðin stendur yfir dagana 24.-27. hóvember og þar...
Myndir dagsins koma frá Jónasi H. Ottóssyni sem hann tók í íþróttahúsinu við Vesturgötu á sunnudaginn. Þar landaði ÍA sínum fyrsta heimasigri í 1. deild karla í vetur gegn FSu frá Selfossi. Við þökkum Jónasi kærlega fyrir sendinguna. Nánar má lesa um leikinn á körfuboltavefsíðunni...