Alls greindust 204 einstaklingar með Covid-19 smit hér á landi í gær. Það er næst mesti fjöldi smita sem greinist á einum degi frá upphafi faraldursins. Tæp 52 prósent þeirra sem greindust voru í sóttkví og 89 voru óbólusettir fyrir Covid-19. Vel á sjötta þúsund sýni voru tekin á landinu í gær. Alls eru 24...
„Skagamenn hafa verið alveg hreint frábærir, við erum svo innilega þakklát fyrir ykkur og að finna þessa samkennd gerir þetta allt auðveldara. Við upplifum okkur ekki ein, við erum allt í einu með heilt bæjarfélag á bakvið okkur, og það er alveg mögnuð tilfinning. Bæjarbúar hafa gert svo mikið fyrir okkur bæði í verki og...
Keppendur úr Kraftflyftingafélagi Akraness, ÍA, náðu frábærum árangri á bikarmóti í klassískum kraftlyftingum sem fram fór 20. nóvember. Þrír keppendur úr röðum ÍA tóku þátt. Í kvennaflokki keppti Sylvía Ósk Rodriguez í -84 kg flokki kvenna. Hennar þyngstu lyftur voru 145 kg í hnébeygju, 82,5 kg í bekkpressu, 160 kg í réttstöðulyftu og samanlagður árangur...
Skagamaðurinn Daníel Ingi Jóhannesson mun æfa með danska stórliðinu FCK í Kaupmannahöfn þar sem hann verður til reynslu. Daníel Ingi hittir þar fyrir eldri bróður sinn, Ísak Bergmann Jóhannesson, og Hákon Arnar Haraldsson er einnig samningsbundinn FCK. Daníel Ingi er einn af fjölmörgum efnilegum leikmönnum úr röðum ÍA en hann er 14 ára gamall. Þetta...
Alls greindust 126 Covid-19 smit á landinu í gær samkvæmt upplýsingum á covid.is. Þar af voru 59 ekki í sóttkví. Á sjúkrahúsi eru 20 einstaklingar inniliggjandi vegna Covid-19, þar af eru fjórir á gjörgæslu. Á landinu öllu eru rétt um 1800 einstaklingar í einangrun vegna Covid-19 smits. Á Akranesi eru 62 einstaklingar í einangrun vegna...
Viðræðurnar við ÍA hófust eftir tímabilið og við sigldum þessum í land á frekar stuttum tíma. Samningurinn er út tímabilið 2022 og ég hlakka til að komast af stað á fullu í boltann aftur,“ segir Árni Snær Ólafsson markvörður ÍA sem skrifaði nýverið undir samning við Knattspyrnufélag ÍA ásamt varnarmanninum þaulreynda Halli Flosasyni. Árni Snær...
Bjarki Fannar Hjaltason fer í viðamikla hjartaaðgerð á næstu vikum í Bandaríkjunum. Skagamaðurinn sem er fæddur árið 2007 fékk góðar kveðjur og stuðning frá samnemendum sínum úr Brekkubæjarskóla úr árgangi 2007. Árgangurinn stóð fyrir söfnun með aðstoð foreldra og forráðamanna með það að markmiði að Bjarki Fannar gæti nýtt söfnunarféð til þess að stytta sér...
Sindri Snær Magnússon, sem hefur verið lykilmaður í karlaliði ÍA, mun ekki leika áfram með liðinu í efstu deild karla á næstu leiktíð. Sindri Snær, sem er 29 ára gamall, samdi í dag við Keflavík og er samningurinn til næstu þriggja ára. Fregnir af brotthvarfri Sindra Snæs koma degi eftir að Óttar Bjarni Guðmundsson, fyrirliði...
Alls greindust 206 einstaklingar með Covid-19 smit í gær og voru 95 þeirra í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á vefnum covid.is. Er það metfjöldi smita sem hefur greinst á einum degi innanlands. Mest höfðu 200 smit greinst á einum degi, s.l. miðvikudag. Á Vesturlandi eru 95 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og...
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar um ráðningu í starf slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar hafi ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Akraness. Einn af umsækjendum, Einar Bergmann Sveinsson, kvartaði til umboðsmanns Alþingis í apríl á þessu ári. Kvörtun hans lýtur einkum að því...