Covid-19 smitum á Vesturlandi fer nú fækkandi en alls eru 174 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit í landshlutanum samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Á Akranesi eru 140 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit sem er sami fjöldi og í fyrradag. Einstaklingum í sóttkví fer einnig fækkandi í landshlutanum. Á landinu öllu greindust 176...
Nýverið veitti Knattspyrnufélag ÍA Stínu – og Donnabikarinn til leikmanna félagsins sem hafa sýnt framúrskarandi árangur í íþróttinni samhliða því að vera fyrirmyndar einstaklingur á öllum sviðum félagsins. Verðlaunin eru veitt leikmönnum úr 3. eða 4. flokki ÍA ár hvert. Að þessu sinni fékk Elvira Agla Gunnarsdóttir leikmaður 3. flokks kvenna Stínubikarinn og Haukur Andri...
Pollur Bílaþvottur ætlar að styðja við bakið á fjölskyldu Bjarka Fannars hér á Akranesi með því að gefa vinnu við bílaþrif og bón helgina 21-21 nóvember 2021. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Polli. Safnað verður fyrir fjölskyldu Bjarka Fannars Hjaltasonar. Bjarki Fannar er 14 ára ára og næst elstur fimm systkina. Bjarki Fannar fer...
Margrét Rán og félagar hennar í stórhljómsveitinni Vök beina kastljósinu að Akranesi og nærumhverfi í nýju myndbandi sem tekið var upp á Akranesi í lok september á þessu ári. Lagið heitir Running Wild og hefur vakið töluverða athygli hér á landi og að sjálfsögðu erlendis, en Vök á sér stóran aðdáendahóp erlendis. Foreldrar Margrétar eru...
Ísak Bergmann Jóhannesson og Stefán Teitur Þórðarson voru báðir í byrjunaliði Íslands þegar liðið mætti Rúmeníu á útivelli í undankeppni HM 2022 á útivelli í Búkarest. Þetta var 9. A-landsleikur Ísaks Bergmanns sem er fæddur árið 2003 og Stefán Teitur var að leika sinn 6. landsleik fyrir A-lið Íslands. Skagamennirnir áttu fínan leik en Ísland...
Ólafur Páll Gunnarsson, íbúi á Akranesi, hefur á undanförnum misserum endurgert tvö hús í gamla miðbænum á Akranesi, sem í dag eru á meðal glæsilegustu bygginga Akraness. Útvarpsmaðurinn þaulreyndi er sannkölluð eldsál þegar kemur að uppbyggingu á Akranesi og þá sérstaklega í gamla bænum – neðri-Skaganum. Óli Palli skrifar áhugaverðan pistil um stöðu mála á...
Alls greindust 200 einstaklingar með Covid-19 smit á landinu í gær og er um metfjölda að ræða. Áður höfðu mest 178 einstaklingar verið greindir á einum degi en það var í fyrradag. Á landinu öllu eru 1.505 í einangrun vegna Covid-19 og 2.365 eru nú í sóttkví. Á Vesturlandi eru 176 einstaklingar í einangrun með...
Talsverðar breytingar verða gerðar við Hausthúsatorg á Akranesi á næstu misserum vegna framkvæmda sem tengjast uppbyggingu Festis hf. / N1 á svæðinu. Breytingin tengist samkomulagi sem Akraneskaupstaður hefur gert við Festi hf. um að bæjarfélagið leysi til sín lóðir fyrirtækisins við Þjóðbraut (Skútan) og Dalbraut (dekkjaverkstæði). Við Hausthúsatorg mun fyrirtækið byggja aðstöðu fyrir verslun, eldsneytisafgreiðslu,...
Gríðarleg aukning hefur verið í heimsóknum á vef Skagafrétta á undanförnum vikum og gærdagurinn var sá stærsti í fimm ára sögu fréttamiðilsins. Rétt rúmlega 6.800 einstakir notendur komu í heimsókn á skagafrettir.is, þriðjudaginn 9. nóvember. Fyrra aðsóknarmetið var slegið rækilega en það var frá því í febrúar 2020 – 5.139 einstakir notendur. Gestir gærdagsins flettu...
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að vísa fjáhagsáætlun Akraneskaupstaðar vegna ársins 2022 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2023 til og með 2025, til síðari umræðu í bæjarstjórn sem fer fram þriðjudaginn 14. desember næstkomandi. Á fundinum, sem fram fór þriðjudaginn 9. nóvember, lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fram bókun þar sem að ákvörðun meirihluta...