• „Ég keppti á mínu fyrsta kraftlyftingamóti fyrir rúmum tveimur árum síðan. Ég er því hæstánægður með árangurinn á þessu móti og það er nóg framundan. Norðurlandamót unglinga í Finnlandi í byrjun nóvember og vonandi Reykjavíkurleikar í lok janúar á næsta ári,“ segir Skagamaðurinn Alexander Örn Kárason sem náði frábærum árangri á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískum...

  • Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U21 karla í knattspyrnu, hefur valið æfingahóp fyrir undirbúning liðsins fyrir leikinn gegn Portúgal í undankeppni EM 2022. Í hópnum eru 24 leikmenn en lokahópur fyrir leikinn verður gefinn út laugardaginn 9. október. EInn leikmaður úr röðum ÍA er í hópnum, Ísak Snær Þorvaldsson. Leikurinn gegn Portúgal er þriðji leikur liðsins...

  • Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson, leikmaður FCK í Kaupmannahöfn, er í U-19 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í undankepppni EM 2022. Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari U-19 ára landsliðsins, tilkynnti lið sitt í dag sem mun taka þátt í fyrstu umferð undankeppninnar. Ísland er þar í riðli með Ítalíu, Litháen og Slóveníu í riðli og er...

  • Hilmar Örn Agnarsson tók nýverið við starfi organista í Akraneskirkju. Hilmar Örn er ráðinn til eins árs en Sveinn Arnar Sæmundsson er í ársleyfi. Þetta kemur fram á vef Akraneskirkju. Hilmar Örn hefur áður verið organisti í Skáholtsdómskirkju á árunum 1991 til loka árs 2008, þar stjórnaði hann öflugu tónlistarlífi og kórastarfi. Í upphafi árs...

  • Tveir Skagamenn voru í dag valdir í A-landsliðshóp íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Armeníu og Liechtenstein í undankeppni Heimsmeistaramótsins 2022. Ísak Bergmann Jóhannesson og Stefán Teitur Þórðarson eru í landsliðshópnum sem Arnar Þór Viðarsson þjálfari A-landsliðsins tilkynnti í dag. Arnór Sigurðsson, sem hefur verið í A-landsliðinu undanfarin misseri, er ekki í hópnum að þessu...

  • Helgi Arnar Jónsson gerði sér lítið fyrir og bætti Íslandsmet í hnébeygju og réttstöðulyftu í 83 kg. flokki á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyfingum í dag. Skagamaðurinn, sem er fæddur árið 1998, bætti samanalagðan árangur sinn um 29,5 kg. Hann bætti Íslandsmetið í sínum þyngdar – og aldursflokki tvívegis í hnébeygju og hann fjórbætti Íslandsmetið...

  • Það er mikið um að vera um næstu helgi hjá Knattspyrnufélagi ÍA þegar liðið fær Keflavík í heimsókn í undanúrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ. ÍA og Keflavík áttust við í lokaumferð Pepsi Max deildarinnar um s.l. helgi í eftirminnilegum leik þar sem að ÍA tryggði sér áframhaldandi veru í deild þeirra bestu á Íslandi með mögnuðum 3-2...

  • Skagamennirnir Alexander Örn Kárason og Helgi Arnar Jónsson tóku þátt á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyftingum í dag. Mótið fer fram í Halmstad í Svíþjóð. Helgi Arnar keppti í 83 kg. flokki og Alexander Örn keppti í 93 kg. flokki. Alls er keppt í þremur keppnisgreinum í hverjum þyngdarflokki. Hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Alexander Örn...

  • Í næstu alþingiskosningum færist eitt þingsæti úr Norðvesturkjördæmi yfir í Suðvesturkjördæmi, í samræmi við íbúaþróun. Þingsætin verða sjö í norðvestri og fjórtán í suðvestri. Stefán Ingi Valdimarsson, ráðgjafi Landskjörstjórnar, segir í samtali við RÚV að litlu hafi munað að þessi breyting yrði gerð fyrir nýafstaðnar kosningar. „Eftir hverjar kosningar þarf samkvæmt lögum að reikna út...

  • Ný starfsstöð Veitna við Lækjarflóa á Akranesi var opnuð með formlegum hætti þann 23. september s.l. Nýja byggingin er um 1000 fm að stærð og gjörbyltir allri vinnuaðstöðu starfsfólks á Vesturlandi en það hefur undanfarin fjögur ár unnið í skrifstofurými í gámum eftir að mygla kom upp í húsnæði þess. Frá þessu er greint á...

Loading...