• Fjölmennur hópur keppenda úr ÍA tók þátt á Íslandsmeistaramóti #3 í klifri sem fram fór um liðna helgi. Um var að ræða keppendur sem tóku þátt í B – og C-flokki. Mótið fór fram hjá Klifurfélagi Reykjavíkur í Klifurhúsinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klifurfélagi ÍA. B-flokkurinn fékk að vinna fyrir kaupinu. Leiðir mótsins...

  • Aron Emil Gunnarsson, Golfklúbbi Selfoss, stóð uppi sem sigurvegari á WAGR-mótinu, sem fram fór á Hvaleyrarvelli dagana 24.-26. september. Skagamaðurinn Björn Viktor Viktorsson, úr Golfklúbbnum Leyni, deildi öðru sætinu á 237 höggum með Heiðari Snæ Bjarnasyni sem er einnig úr Golfklúbbi Selfoss líkt og Aron Emil. Mótið taldi til stiga á heimslista áhugakylfinga. Smelltu hér...

  • Skagamennirnir Arnar Gunnlaugsson og Pétur Pétursson stýrðu liðum sínum til sigurs á Íslandsmótinu í knattspyrnu, Pepsi Max deildinni, 2021. Arnar og Pétur léku með ÍA upp alla yngri flokka félagsins áður og fögnuðu báðir titlum með ÍA áður en þeir héldu ungir í atvinnumennsku. Arnar og Pétur voru miklir markaskorarar á árum áður og eiga...

  • Aukaþing Knattspyrnusambands Íslands fer fram 2. október n.k. Á þinginu verður kosið um formann og stjórn til bráðabirgða fram að næsta knattspyrnuþingi sem haldið verður í febrúar 2022. Eins og komið hefur fram áður sagði Guðni Bergsson formaður af sér nýverið og öll stjórn KSÍ sagði einnig af sér. Vanda Sigurgeirsdóttir, fyrrum leikmaður ÍA, verður...

  • Leikmenn Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu völdu Skagamanninn Ívar Orra Kristjánsson sem dómara ársins í efstu deild karla. Frá þessu er greint á vef Knattspyrnusambands Íslands. Verðlaunaafhendingin fór fram í Pepsi Max Stúkunni á Stöð 2 Sport í gærkvöld. Á sama tíma var einnig tilkynngt um hvaða leikmenn voru efstir í kjörinu á besta...

  • Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson nýtti tækifærið vel þegar hann kom inn á sem varamaður hjá danska liðinu FCK um s.l. helgi. Hann byrjaði á varamannabekknum gegn Norsjælland en hann kom inn á þegar um korter var eftir af leiknum. Ísak Bergmann skoraði aðeins fjórum mínútum síðar og gulltryggði þar með 5-1 sigur FCK. Þetta var...

  • Eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is tryggði karlalið ÍA sér áframhaldandi veru í Pepsi Max deildinni með ævintýralegum 3-2 sigri gegn Keflavík í lokaumferðinni, ÍA gat aðeins haldið sæti sínu í efstu deild með því að vinna Keflavík og staðan var ansi dökk þegar ÍA var 2-0 undir þegar um hálftími var eftir...

  • Karlalið ÍA í knattspyrnu tryggði sætið sitt í efstu deild með glæsilegum 3-2 sigri á útivelli í dag á útivelli gegn Keflavík. ÍA gat aðeins haldið sæti sínu í Pepsi Max deildinni með því að vinna Keflavík og það verkefni tókst með undraverðum hætti. Skagamenn fengu vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Steinar Þorsteinsson náði ekki...

  • Tæplega 80 einstaklingar eru í sóttkví á Akranesi vegna Covid-19 og alls eru 7 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit. Þetta kemur fram í uppfærðum upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Í landshlutanum eru alls 9 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og 83 eru í sóttkví. Þann 17. september voru 2 einstaklingar í einangrun á...

  • Það er mikið um að vera í knattspyrnunni á Akranesi um þessar mundir og spennandi úrslitaleikir framundan. Í kvöld er stórleikur í Akraneshöllinni þar sem að 2. flokkur kvenna í knattspyrnu leikur til úrslita í bikarkeppni KSÍ. Mótherji ÍA í úrslitaleiknum er lið Breiðabliks/Augnabliks. Leikurinn er eins og áður segir í Akraneshöll og hefst hann...

Loading...