Karlalið ÍA í knattspyrnu mætir liði Keflavíkur í lokaumferð Pepsi Max deildarinnar 2021. Leikurinn fer fram laugardaginn 25. september kl. 14.00 og fer hann fram á heimavelli Keflavíkur. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið í harðri baráttu um að halda sæti sínu í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. Fyrri leik ÍA og Keflavíkur...
Leikmenn ÍA/Skallagríms í 3. flokki karla í knattspyrnu stóðu uppi sem sigurvegarar á Íslandsmóti C-liða 2021. Í keppni C-liða var keppt í þremur riðlum og stóð ÍA/Skallagrímur uppi sem sigurvegari í B-riðli. Í undanúrslitum lék ÍA/Skallagrímur gegn Stjörnunni – þa sem sem að ÍA/Skallagrímur sigraði 4-1. Úrslitaleikurinn gegn FH fór fram í Akraneshöllinni þar sem...
Karlalið ÍA/Kára/Skallagríms í 2. flokki í knattspyrnu fagnaði Íslandsmeistaratitli í keppni B-liða nýverið. ÍA náði frábærum árangri á þessu tímabili en liðið fór taplaust í gegnum tímabilið – lék 18 leiki, vann 16 þeirra og gerði 2 jafntefli. Liðið skoraði alls 84 mörk og fékk aðeins 18 mörk á sig. A-lið 2. flokks endaði í...
Karlalið ÍA hefur á undanförnum vikum bætt stöðu sína í neðri hluta PepsiMax deildarinnar í knattspyrnu með góðum úrslitum. Í gær steig ÍA stórt skref í því að halda sæti sínu í deild þeirra bestu á Íslandi með 5-0 sigri gegn Fylki. Fyrir leikinn var ÍA í neðsta sæti með 15 stig en með sigrinum...
Aðeins eitt tilboð barst í jarðvinnu á færanlegum kennslustofum við Grundaskóla. Tilboðin voru opnuð þann 9. september á skrifstofu Mannvits. Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar við verkefnið var tæplega 7,5 milljónir kr. Eins og áður segir barst eitt tilboð í verkefnið og var það frá Skóflunni hf. á Akranesi sem nam 12,2 milljónir kr. Skipulags- og umhverfisráð Akraness...
Aðsend grein frá Einari Brandssyni. Í grein sem Sævar Jónsson skrifaði undir heitinu „Bréf til bæjarfulltrúa og íbúa Akraness“ vísaði hann í greinar sem ég skrifaði sannarlega og fjallað er um þá fyrirætlun að breyta deiliskipulagi og aðalskipulagi til að færa byggð að Garðalundi. Ég sá í því landi sem færa átti undir byggð ákveðna...
Karlalið ÍA í knattspyrnu tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum í Mjólkurbikarnum með 3-1 sigri á útivelli gegn 2. deildarliði ÍR í Breiðholti. Leikurinn fór fram á heimavelli ÍR. Heimamenn komust yfir á 17. mínútu með marki sem Pétur Hrafn Friðriksson skoraði. Þórður Þorsteinn Þórðarson jafnaði metinn fyrir ÍA á 45. mínútu – með...
Í dag hafa margir lagt leið sína að Steinsvör á Akranesi til þess að virða fyrir sér hrefnu sem rak þar á land í morgun. Hrefnan, sem er einnig nefnd hrafnreyður, hrafnhvalur og léttir, er sjávarspendýr af ætt reyðarhvala eins og hnúfubakur, langreyður, sandreyður og steypireyður. Dýrið sem rak á land í Steinsvörina er fullvaxið...
Á næstu mánuðum verður ráðist í markaðsherferð á vegum Akraneskaupstaðar – þar sem að Akranes verður kynnt sem góður kostur til búsetu og atvinnuuppbyggingu. Verkefnið á að vinna í samvinnu við verktaka sem eru nú þegar í verkefnum á Akranesi eða hyggja á uppbyggingu á svæðinu. Alls mun Akraneskaupstaður leggja til 9,5 milljónir kr. í...
Kvennalið ÍA í 2. flokki tryggði sér í gær sæti í úrslitaleik Bikarkeppni Knattspyrnusambands Íslands með 3-0 sigri á útivelli í undanúrslitum gegn sameiginlegu liði Selfoss/Hamars/Ægis/KFr. Úrslitaleikurinn fer fram 24. september og þar verður lið Breiðabliks/Augnabliks mótherji ÍA. Samkvæmt gögnum á heimasíðu KSÍ hefur ÍA leikið þrívegis til úrslita í Bikarkeppni KSÍ í 2. flokki...