Aníta Ólafsdóttir, markvörður kvennaliðs ÍA, er í u-19 ára landsliðshóp Íslands sem mun æfa á Selfossi dagana 7.-10. júní. Alls eru 22 leikmenn í hópnum og koma þeir frá 12 mismunandi félögum. Skagamaðurinn Þórður Þórðarson valdi hópinn en þessar æfingar verða síðustu formlegu æfingar liðsins undir hans stjórn en Þórður hefur ákveðið að hætta sem...
Skagamaðurinn Þórður Þórðarson hefur ákveðið að hætta sem þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KSÍ. Þórður mun stýra liðinu út júnímánuð og hefur hann gert samning um starfslok sín hjá KSÍ. Þórður hefur þjálfað U19 ára landsliðs kvenna frá árinu 2014 og hefur liðið leikið 46 leiki...
Tveir leikmenn úr ÍA voru valdir í æfingahóp U-16 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu sem mun æfa á Selfossi dagana 14.-17. júní. Alls voru 26 leikmenn valdir og koma þeir frá 14 mismunandi félagsliðum. Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir Norðurlandamótið sem fer fram í Noregi í ágúst. Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari liðsins....
Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 7,4% frá yfirstandandi ári og verður 10.340 milljarðar króna, samkvæmt fasteignamati Þjóðskrár fyrir árið 2022. Þetta er umtalsvert meiri hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 2,1% á landinu öllu. Nánar á vef Þjóðskrár. Á Akranesi hækkar fasteignamatið um 1,9% í sérbýli og 1,8%...
Ársþing Íþróttabandalags Akraness fór fram þann 25. maí s.l en alls mættu 26 þingmenn frá 13 aðildarfélögum en alls eru 19 félög undir hatti ÍA. Þetta var í 77. skipti sem ársþing ÍA fer fram. Marella Steinsdóttir var endurkjörinn sem formaður ÍA en Hörður Helgason varaformaður gaf ekki kost á sér í embættið. Hrönn Ríkharðsdóttir...
Breið þróunarfélag á Akranesi fékk í dag úthlutað 6 milljóna kr. styrk úr verkefninu Lóu sem styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar hér á landi. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðs Íslands. Það var Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem greindi frá því hvaða verkefni fengu úthlutun úr sjóðnum...
Önnu Þóru Þorgilsdóttur þarf vart að kynna en hana þekkja flestir, ef ekki allir, bæjarbúar vel. Hún hefur leikið á þverflautu frá barnsaldri og víða komið fram við ýmis tilefni með flautuna á lofti. Anna er bráðahjúkrunarfræðingur að mennt og auk þess sérleg áhugamanneskja um sýkingavarnir. Og hún er með skilaboð til bæjarbúa: Enga kossa...
Haukur Þórisson gerði sér lítið fyrir og sló draumahöggið þann 25. maí á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni. Haukur fór holu í höggi á 18. braut vallarins sem er par 3 hola. Þetta er frábær byrjun á tímabilinu hjá Hauki en samkvæmt tölfræði á vef Einherjaklúbbsins er þetta í annað sinn sem Haukur nýtir smiðsaugað til...
Akraneskaupstaðar mun taka yfir lóð og mannvirki sem eru við Dalbraut 8 – en Orkuveitan og þar áður Rafveita Akraness var með starfsstöð í þessu húsi. Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum samning sem gerður var á milli Akraneskaupstaðar og Veitna ohf. um yfirtökuna. Stefnt er að því að fjarlægja húsið á næstu misserum en...
Reglur um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk munu taka breytingum á næstunni hjá Akraneskaupstað. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi bæjarrráðs nýverið. Aðeins á eftir að samþykkja þessar breytingar á fundi bæjarstjórnar. Velferðar- og mannréttindaráð hafðu áður vísað drögum að reglum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk til umsagnar í Notendaráði og fengu breytingatillögurnar jákvæða umsögn...