Nýlega voru birtar myndir af nýjum leikskóla sem verður byggður í Skógarhverfi. Hönnun byggingarinnar er áhugaverð en það er Batteríið sem hefur stýrt því verkefni í samstarfi við bæjarstjórna, starfsfólks Akraneskaupstaðar s.s. leikskóla, skóla- og frístundasviðs, skipulags- og umhverfissviðs ofl.
Fjölbreytt dagskrá verður í Tónlistarskólanum á Akranesi miðvikudaginn 26. maí þegar Tóskadagurinn fer fram. Opið verður fyrir gesti frá kl. 16-18 þar sem að gestum verður boðið að kynna sér skólann, námsframboðið og stemninguna sem er til staðar í skólanum. Eins og áður segir verður skólinn opinn á milli 16-18. Á þeim tíma fara fram...
Guðmundur Tyrfingsson var nýverið valinn í U-19 ára landslið karla í knattspyrnu og mun hann taka þátt í næsta verkefni liðsins sem er gegn Færeyjum. Leikirnir fara fram 3. og 6. júní og verður leikið í bænum Svangaskarði. Fyrri leikurinn er gegn U-21 árs landsliði heimamanna en í síðari leiknum verður leikið gegn U-19 ára...
Sindri Andreas Bjarnason og Enrique Snær Llorens gerðu nýverið samkomulag við Sundfélag Akraness. Um er að ræða samning um úthlutun úr afrekssjóði Sundfélags Akraness. Styrktaraðlilar Sundfélags Akraness fjármagna sjóðinn en markmiðið er að styðja sundmenn fjárhagslega í afreksstarfi eins t.d. niðurgreiðslu á Íslandsmeistaramótum, landsliðsverkefnum og æfinga/keppnisferðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Stjórn Sundfélags...
Það hefur hægst mjög á kolmunnaveiðinni suður af Færeyjum að undanförnu. Bjarni Ólafsson AK landaði 1.770 tonnum á Seyðisfirði sl. sunnudag og hefur lokið veiðum að sinni. Skagamaðurinn Runólfur Runólfsson skipstjóri á Bjarna Ólafssyni segir að næst á dagskrá hjá áhöfninni sé að leita að makríl í júní. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar í...
Á Selfossi er kona sem lætur fátt stöðva sig í því að njóta lífsins og mættu margir taka hana til fyrirmyndar þegar kemur að hreyfingu og útiveru. Ingunn Pálsdóttir heitir konan og hún er þar að auki er með góðar tengingar á Akranes og er því að sjálfsögðu til umfjöllunar á Skagafréttum. Páll Guðmundsson, sonur...
Uppbygging vistvænna iðngarða mun hefjast í Flóahverfi á Akranesi en að verkefninu standa Akraneskaupstaður og fyrirtækið Merkjaklöpp ehf. Samstarfs- og markaðssamningur Akraneskaupstaðar og Merkjaklappar var undirritaður nýverið. Akraneskaupstaður mun næstu mánuði vinna frekar að útfærslu vistvænna iðngarða og hvaða þjónusta verður skilgreind á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar. Nánar hér: Hugmyndafræðin...
Karlalið ÍA braut ísinn í PepsiMax deild karla í kvöld með mögnuðum 3-1 sigri á útivelli gegn HK í Kórnum í Kópavogi. Fyrir leikinn var ÍA með 2 stig eftir fjórar umferðir – líkt og mörg önnur lið en ÍA var án sigurs fyrir leikinn í kvöld. HK byrjaði leikinn betur og komst yfir á...
Skagamennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Ísak Bergmann Jóhannesson voru í dag valdir í leikmannahóp A-landsliðs karla sem leikur þrjá vináttulandsleiki á næstunni. Arnór Sigurðsson glímir við meiðsli og er ekki í hópnum að þessu sinni. Hörður Ingi Gunnarsson, fyrrum leikmaður ÍA, er í hópnum en hann er leikmaður hjá FH. Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari tilkynnti...
Hákon Arnar Haraldsson skrifaði í dag undir 5 ára samning við danska stórliðið FCK í Kaupmannahöfn. Hinn 18 ára gamli Skagamaður hefur leikið með yngri liðum FCK frá því hann samdi við liðið árið 2019. Hákon Arnar verður nú hluti af aðalliði FCK og fær nú tækifæri til þess að stimpla sig inn í aðallið...