Á næstu mánuðum og misserum mun ný reiðskemma rísa á svæði Hestamannafélagsins Dreyra við Æðarodda. Það þarf að hnýta marga hnúta í formlegheitunum þegar ráðist er í slíka framkvæmd. Eitt af því er að gefa götunni við væntanlega reiðskemmu nafn. Það þarf að gera m.a. til þess að hægt sé að stofna lóð í deiliskipulagi....
Sigríður Indriðadóttir frá Akranesi er framkvæmdastjóri mannauðs hjá Íslandspósti. Skagakonan er í skemmtilegu viðtali í Fréttablaðinu þar sem hún dregur fram áhugaverða punkta varðandi meðvirkni á vinnustöðum. Framkvæmdastjóri mannauðs hjá Íslandspósti segir meðvirkni grassera á mörgum vinnustöðum. Meðvirkni hefur verulega neikvæð áhrif á rekstur og líðan starfsfólks. Fæstir gera sér grein fyrir meðvirkni. Sérstök áhersla...
Það var góð stemning um s.l. helgi þegar Ljúflingamót Tennis – og badmtonfélags Reykjavíkur fór fram í Laugardalnum. Alls tóku 7 keppendur frá ÍA þátt. Mótið er ætlað þeim sem eru stíga sín fyrstu skref á keppnisferlinum. Margir voru að taka þátt á sínu fyrsta móti og aðrir voru komnir aðeins lengra á ferlinu. Allir...
Sigurjón Ernir Sturluson heldur áfram að bæta árangur sinn í allskonar þrekraunum sem íþróttamaður. Skagamaðurinn tók í gær þátt í 44 km. maraþonhlaupi á Kanaríeyjum. Þar endaði hann í 19. sæti á tímanum 4:48.51 klst. Sigurjón Ernir segir frá hlaupinu á fésbókarsíðu sinni. Verkefnið var ærið þar sem að hækkunin var 2.400 metra, sem er...
Veðurspáin fyrir þriðjudaginn 10. desember og miðvikudaginn 11. desember er með þeim hætti að best er að halda sig heima. Spáð er norðan roki 20-28 m/s á Vesturlandi á morgun. Ekkert ferðaveður verður á SV-horni landsins og búið að gefa það út að veginum um Kjalarnes og undir Hafnafjalli verði lokað í allt að 24...
„Þetta er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið held ég bara,“ segir Skagakonan Eva Laufey Kjaran í viðtali á visir.is. Eva Laufey hefur á undanförnum mánuðum verið við nám í London. „Þetta ár hefur verið ótrúlega sérstakt og mikið búið að vera í gangi, ég tók þess vegna ákvörðun að gera eitthvað sérstaklega fyrir...
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, endaði í 50. sæti á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar. Þetta kemur fram á golf.is. Hún lék hringina fjóra á +8 samtals (76-74-69-77). Valdís Þóra endaði þar með í 71. sæti stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Hún var aðeins einu sæti frá því að tryggja sér 100% þátttökurétt á LET Evrópumótaröðinni á næsta tímabili....
Bílver á Akranesi, hefur í rúmlega 30 ár, verið í efstu hillu þegar kemur að sölu nýrra bíla á Akranesi og nágrenni. Nýverið tók Askja við Honda umboðinu á Íslandi. Bílver afhenti nýverið fyrstu Hondubifreiðina eftir að Askja tók við umboðinu. Það var Ólöf Agnarsdóttir sem fékk afhenta nýja CR-V Hybrid bifreið. Á fésbókarsíðu Öskju...
Félagsskapurinn Club 71 hefur á undanförnum árum látið gott af sér leið með ýmsum hætti. Þorrablót Skagamanna stendur þar hæst ásamt sjálfum Brekkusöngnum á Írskum dögum. Club 71 hélt sinn árlega jólafund nýverið þar sem að Skagakonan Þórdís Kolbrún Reykdal Gylfadóttir ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, var heiðursgestur. Við þetta tækifæri afhenti klúbburinn smávægilegan styrk...
Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir er nýr sóknarprestur Hveragerðisprestakalls en hún tók við embættinu þann 1. desember s.l. og er skipuð til fimm ára. Nanna Sif á ættir að rekja á Akranes þar sem hún er fædd þann 20. apríl árið 1975. Faðir hennar er Svavar Sigurðsson og móðir hennar er Hjördís Judithardóttir. Ninna Sif hefur...