Velferðar- og mannréttindaráð leggur til við bæjarráð að hafin verði undirbúningur að því að kaupa þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara á Akranesi. Þetta kemur fram í síðustu fundargerð velferðar – og mannréttindaráðs. Þetta mál hefur verið í vinnslu í nokkra mánuði en í byrjun ágúst var tekin fyriur greinargerð um þörf fyrir þjónustuíbúðir fyrir 67 ára...
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, fagnar þrítugsafmæli sínu í dag, 4. desember 2019. Valdís Þóra er þessa stundina stödd í Afríku þar sem hún hefur leik á morgun, fimmtudag, á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar. Þetta kemur fram á vef Golfsambands Íslands. Lokamót tímabilsins á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki fer fram 5.-8. desember...
Það verður mikið um að vera á sviðinu í Tónbergi næsta fimmtudag þar sem að fjórir öflugir kórar sameina krafta sína á jólatónleikum. Karlakórinn Svanir, Kvennakórinn Ymur, Kór Saurbæjarprestakalls og Grundatangakórinn verða þar með sameiginlega dagskrá. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og er hægt að nálgast miða í forsölu á Bókasafni Akraness. Þetta er í fimmta...
Það er alltaf mikið um að vera á Smiðjuloftinu á Akranesi hjá þeim Þórði Sævarssyni og Valgerði Jónsdóttur. Í desember verður boðið upp á ýmsa valkosti til að upplifa jólastemninguna með öðrum hætti en venjulega. Þar má nefna jóla- og fjölskyldutíma, og einnig er hægt að óska eftir sérhannaðri dagskrá fyrir vinnustaði eða vina –...
Á síðasta fundi skipulags – og umhverfisráðs Akraness var samþykkt að ganga að tilboðum vegna kaupa á útbúnaði í nýtt fimleikahús sem er í byggingu við Vesturgötu. Karl Jóhann Haagensen verkefnastjóri fór yfir þessi atriði á fundinum með nefndinni. Skipulags- og umhverfisráð samþykkti að ganga að tilboði Euro gymnastic fyrir tæplega 40,3 milljónir kr. og...
Viktor Óttar Guðmundsson, fimm ára gamall Skagamaður, fékk þann heiður að tendra jólaljósin á Akratorgi s.l. laugardag að viðstöddu fjölmenni. Þetta var einnig afmælisdagur Viktors Óttars. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Skólakór skipaður yngri nemendum Grundaskóla flutti nokkra jólasöngva en kórstjórinn er Valgerður Jónsdóttir. Jólatréð sem prýðir Akratorg næstu vikurnar kemur úr landi Stóru-Fellsaxlar...
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur miklar áhyggjur af stöðu mála hjá Járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Í pistli sem Vilhjálmur skrifar á heimasíðu VLFA segir formaðurinn m.a. að viðsjárverðir tímar eru framundan hjá fyrirtækinu vegna gríðarlegrar hækkunar Landsvirkjunnar á raforkuverði til Elkem. Pistil Vilhjálms má lesa í heild sinni með því að smella hér. Forstjóri...
Guðlaug við Langasand hefur á undanförnum mánuðum slegið í gegn hjá íbúum á Akranesi og ferðafólki. Yfir 30.000 einstaklingar hafa komið i Guðlaugina frá því hún opnaði með formlegum hætti. Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson eru með áhugavert innslag um Guðlaugina, Langasand og sjósund í nýjasta þættinum „Að Vestan“ sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni...
Íslenska ríkið var sýknað af kröfu Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn í morgun. Dómurinn er hér í heild sinni. RÚV greindi fyrst frá þessu í hádegisfréttum í dag. Ágústa Elín stefndi íslenska ríkinu vegna embættisfærslna Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra. Ágústa Elín telur að Lilja hafi ekki staðið rétt...
Sundkonan Brynhildur Traustadóttir heldur áfram að bæta afrek sín í sundlauginni. Skagakonan keppti á Norðurlandameistaramótinu sem fram fór í Færeyjum um s.l. helgi. Þar bætti Brynhildur árangur sinn í 800 metra skriðsundi og var hún nálægt því að komast á verðlaunapall – en hún endaði í fjórða sæti. Á undanförnum vikum hefur Brynhildur bætt árangur...