Kennarar við Fjölbrautaskóla Vesturlands hafna samstarfi við núverandi skólameistara og kveðast einvörðungu munu sinna kennsluskyldum og samstarfi við nemendur þar til nýr skólameistari hefur verið skipaður. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á félagsfundi Kennarafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands sem fram fór 21. október síðastliðinn. Áður höfðu kennarar við skólann lýst vantrausti á núverandi skólameistara....
Jón Kristjánsson er nýr þjálfari Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi. Gengið var frá ráðningu hins þaulreynda þjálfara í kvöld. Jón hefur mikla reynslu sem þjálfari . Hann þjálfað liði KF og Hamars þegar þau léku í 2. deild karla. Lið Kára lék í 2. deildinni á síðustu leiktíð og endaði í 10. sæti af alls 12...
Það er ekki alltaf þögn á Bókasafni Akraness eins og sjá má í myndböndunum sem Skagafréttir tóku í gær. Kór Grundaskóla bauð til fjölskyldusöngskemmtunar síðdegis í gær og er viðburðurinn hluti Vökudögum Akraness. Bókasafnið var þétt setið og góð stemning á meðal kórfélaga og gesta. Kór Grundaskóla er eingöngu skipaður stúlkum og höfðu þær lagt...
Hjördís Grímarsdóttir var í skemmtilegu spjalli í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 þar sem hún sagði frá einlægum áhuga sínum á hrekkjavökuhátíðinni. Hjördís heldur mikið og stórt hrekkjavökupartý þar sem hún býður m.a. nemendum sínum úr Grundaskóla á Akranesi í heimsókn. Hjördís hefur einnig haldið úti hinum vinsæla vef mommur.is fer ótroðnar slóðir...
Leikskólinn Akrasel fékk í dag Umhverfisviðurkenningu Akraneskaupstaðar í flokknum Samfélagsverðlaun. Athöfnin fór fram í Bókasafni Akraness. þar sem að fjölmörg verðlaun voru afhent með formlegum hætti. Á Akraseli hefur verið unnið eftir markmiðum Sameinuðu þjóðanna í endurvinnslustefnu, moltugerð og vinnu með sjálfbærni markmið. Böðvar Guðmundsson bakari, Valborg Jónsdóttir leikskólakennari eru fulltrúar umhverfisnefndar Akrasels og Lovísa...
Kristín Ragnarsdóttir sem býr við Stillholt 11 á Akranesi tók í dag ásamt dóttur sinni Stefaníu Rut Ólafsdóttur við viðurkenningu í flokknum Tré ársins 2019 þegar Umhverfisviðkenningar Akraneskaupstaðar voru afhentar í Bókasafni Akraness. Tréð sem stóð upp úr að mati dómnefndar er gamall og gróinn hlynur við íbúðarhús Kristínar og Ólafs B. Ármannssonar. Í tilnefningum...
Fjóla Guðmundsdóttir og Árni Þór Traustason hafa á undanförnum misserum gjörbreytt ásýnd einbýlishússins Sólbakka sem stendur við Akursbraut 17. Framtak þeirra hefur vakið mikla athygli og margir sem hafa staldrað við húsið og virt fyrir sér breytingarnar. Framkvæmdirnar standa enn yfir en eru að mestu lokið að innan en utanhúss á enn eftir að gera...
Þóra Þórðardóttir og Helgi Helgason fengu í dag viðurkenningu fyrir einbýlishúsalóð sína við Brekkbraut 25. Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar voru afhentar í dag í Bókasafni Akraness og fengu Þóra og Helgi viðurkenningu í flokkinum „Falleg einbýlislóð.“ Rósa tók við viðurkenningunni í dag við athöfn sem Ragnar B. Sæmundsson bæjarfulltrúi stýrði ásamt Sindra Birgissyni umhverfisstjóra. Dómnefndina skipuðu þau...
Kynningarefni: Hótel Laxárbakki er við Laxá í Leirársveit og er aðeins í um 10 mín akstursfjarlægð frá Akranesi. Framundan er skemmtilegur tími á Laxárbakka þar sem að boðið verður upp á Aðventuhlaðborð á Aðventukvöldum hótelsins. Brynjar S. Sigurðarson tók við rekstri Hótel Laxárbakka ásamt eiginkonu sinni, Heklu Gunnarsdóttur um mitt sumar árið 2017. Brynjar segir...
Knattspyrnufélag ÍA fær rúmlega 5 milljónir kr. í styrk frá UEFA og KSÍ til eflingar barna – og unglingastarfs félagsins. Um er að ræða tekjur sem UEFA fær vegna Meistaradeildar Evrópu 2018-2019. Samtals fá íslensk knattspyrnufélög samtals 60 milljónir kr. frá UEFA og KSÍ ákvað að leggja sömu upphæð í verkefnið og eru því 120...