• Eva María Jónsdóttir tryggði ÍA mikilvægt stig í fallbaráttunni í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu í gær. Eva María jafnaði metin gegn Fjölni á 84. mínútu en liðin eru enn sem áður jöfn að stigum í 8. og 9. sæti deildarinnar. ÍA er með betri markatölu og vann fyrri leik liðanna 3-1 og er því með...

  • Starfsmenn garðyrkjudeildar Akraneskaupstaðar vinna þessa dagana við að endurgera hluta stakkstæðanna sem áður voru notuð til að breiða út saltfisk til þerris við Akranesvita á Breiðinni. Frá þessu er greint á vef Akraneskaupstaðar. Þetta verkefni er hluti af heildarhönnun arkitektarstofunnar Landslags við Breiðina og er steinalögnin unnin undir handleiðslu Unnsteins Elíassonar, torf- og grjóthleðslumanns. Verkefnið...

  • Það er hörkuleikur á dagskrá í Inkasso-deild kvenna í kvöld á Norðurálsvelli hér á Akranesi. ÍA tekur á móti Fjölni úr Grafarvogi en liðin eru í 8. og 9. sæti Inkasso-deildarinnar. Fyrri leikur þessara liða endaði með 3-1 sigri ÍA á útivelli. Það hafa orðið margar breytingar á ÍA liðinu á undanförnum vikum. Nýtt þjálfarateymi...

  • Söngvarinn Sveinbjörn Hafsteinsson birti nýverið áhugavert myndband á fésbókarsíðu sinni. Þar tekur Skagamaðurinn hið þekkta lag Vegbúinn eftir KK. Sveinbjörn tók lagið upp í svokölluðum „“ á Snæfellsnesi sem er á jökulhálsinum á milli Arnarstapa og Ólafsvíkur. „Þvílík paradís, sat þarna við hellinn með gítarinn og söng og trallaði í um 3 tíma í algeru...

  • ÍA fagnaði sigri í 3. flokki kvenna á Alþjóðlega knattspyrnumótinu REY CUP sem lauk í dag. ÍA lék gegn norska liðinu Gjelleråsen IF í úrslitaleiknum sem fram fór á sjálfum Þjóðarleikvangi Íslendinga, Laugardalsvellinum. Lilja Björg Ólafsdóttir skoraði fyrir ÍA af 40 metra færi og jafnaði metin eftir að norska liðið hafði skorað fyrsta mark leiksins....

  • „Haltu kjafti“ hamborgarinn á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi er besti hamborgarinn sem er í boði á Íslandi ef marka má skoðanakönnun sem útvarpsþátturinn Ísland Vaknar á K100 stóð fyrir. Þar gátu hlustendur sagt sína skoðun á því hvaða hamborgari væri bestur á Íslandi. Rúmlega 300 tóku þátt með því að skrifa á fésbókarsíðu þáttarins og...

  • Golfklúbburinn Leynir fagnaði sigri í keppni í 2. deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba í dag. Þrír klúbbar skráðu sig til keppni í þessari deild sem fram fór á Garðavelli á Akranesi. Frá vinstri: Hildur Magnúsdóttir, Bára Valdís Ármannsdóttir, Arna Magnúsdóttir, Valdís Þóra Jónsdóttir, Elín Dröfn Valsdóttir og Hulda Birna Baldursdóttir. Leynir sigraði eins og áður...

  • Huginn Hilmarsson og Aldís Birna Róbertsdóttir sigruðu í einstaklingskeppinni í Álmanninum sem fram fór í gær á Akranesi. Í liðakeppni sigraði lið sem kallaði sig Hrikalegir en lið Skagafrétta varð í öðru sæti. Í einstaklingskeppninni fóru hjóluðu keppendur frá Akraneshöllinni í gegnum golfvallarsvæðið og upp að Akrafjalli, þaðan var hlaupið upp á toppinn á Háahnúk...

  • Það var frábær stemning í gær þegar Álmaðurinn fór fram á Akranesi. Um var að ræða þríþrautarkeppni þar sem keppendur hjóla, klífa upp á Akrafjall, og synda í sjónum við Langasand. Keppnin hófst við Akraneshöllina, þaðan var hjólað upp að Akrafjalli, hlaupið upp á Háahnúk, og niður aftur, hjólað til baka á Langasand þar sem...

  • Eiríkur Jónsson, lagaprófessor, var metinn hæfastur þeirra sem sóttu um laust embætti landsréttardómara. Þetta kemur fram á vef Kjarnans. Skagamaðurinn var á sínum tíma í sæti nr. 7 á lista hæfisnefndar við skipun dómara í Landsrétt. Í lok maí afhenti Sigríður Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, forseta Alþingis tillögu sína að skipun í embætti 15 dómara. Fjórir...

Loading...