Hin árlega söguganga á írskum dögum var fimmtudaginn 4. júlí s.l. Gangan er á vegum Bókasafns Akraness og Skagaleikflokksins. Að þessu sinni voru óvenju margir þátttakendur, eða um 100 talsins að sögn Hallberu Jóhannesdóttur, sem er ein af ,,Kellingunum”, eins og þær kalla sig. Stansað var á nokkrum stöðum sem tengjast Braga Þórðarsyni og skrifum...
Meistaramóti Golfklúbbsins Leynis 2019 lauk í gær. Mjög góð þáttaka var í mótinu og veðrið lék við keppendur alla fjóra keppnisdagana. Stefán Orri Ólafsson og Valdís Þóra Jónsdóttir fögnuðu klúbbmeistaratitlunum í karla – og kvennaflokki. Valdís Þóra lék best allra í mótinu eða á -8 samtals á fjórum keppnishringjum. Úrslit urðu eftirfarandi: Yngri kylfingar –...
Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar hafnaði öllum tilboðum sem bárust vegna kaupa á búnaði í nýtt fimleikahús við Vesturgötu. Kostnaðaráætlun VSÓ hljóðaði upp á 70 milljónir kr. Alls bárust fjögur tilboð. Þrjú þeirra komu frá sama fyrirtækinu, Altis, en Fimleikar.is buðu einnig í verkefnið. Altis nr.1 kr.120.923.724 Altis nr.2 kr.116.336.814 Altis nr.3 kr.111.444.474 Fimleikar.is kr.114.918.790 Eins...
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, var í viðtali í síðdegisþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar fór Sævar Freyr yfir þá hluti sem snúa að Akraneskaupstað vegna fyrirhugaðra vegaframkvæmda á Kjalarnesi. Eins og kunnugt hefur Skipulagsstofnun ákveðið að framkvæmdir við 2+1 veg á Kjalarnesi eigi að fara í umhverfismat. Slík ákvörðun tefur framkvæmdina um...
Bæjarráð Akraness hefur falið bæjarstjóra að kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar um að breikkun Vesturlandsvegar í 2+1 veg sé háð mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdin hefur afar jákvæð samfélagsleg áhrif vegna bætts umferðaröryggis og er ætlað að taka á lífshættulegum aðstæðum sem vegfarendum er boðið upp á sem óskiljanlegt er að ákvörðun Skipulagsstofnunar taki ekki mið af. Akranes...
Niðurrifi er lokið á Sementsreitnum á Akranesi og gríðarleg breyting er á svæðinu eftir framkvæmdirnar sem hafa staðið þar yfir undanfarin misseri. Þrátt fyrir allt niðurrifið voru framkvæmdir í gangi í morgun þegar Skagafréttir litu þar við í veðurblíðunni í morgun. Búið er að ganga frá svæðinu með snyrtilegum hætti og grasfræjum hefur verið sáð...
Aðsend grein frá Halldóri Jónssyni, íbúa á Akranesi: Ákvörðun Skipulagsstofnunar, að breikkun þjóðvegar um Kjalarnes skuli sæta mati á umhverfisáhrifum, er með miklum ólíkindum og eru landsmenn þó ýmsu vanir úr þeirri áttinni á undanförnum árum. Að eðlileg framþróun og löngu tímabær breyting á þjóðvegi er liggur um manngerð tún og mela skuli þurfa umhverfismat...
Skagamaðurinn Jón Gísli Eyland Gíslason verður í U-18 ára landsliði Íslands í knattspyrnu í tveimur vináttuleikjum sem fram fara í júlí. Leikirnir fara fram 19. og 21. júlí – og eru þeir báðir í Riga í Lettlandi þar sem Ísland mætir heimamönnum. Þorvaldur Örlygsson, fyrrum þjálfari ÍA, er þjálfari U-18 ára liðsins. Jón Gísli hefur...
Kötturinn Birta frá Akranesi er til umfjöllunar á stærstu fréttmiðlum Íslands. Birta týndist hér á Akranesi fyrir fjórum dögum. Kötturinn fannst í gær í Kársnesi í Kópavogi. Hulda Guðbjörnsdóttir, segir í samtali við Fréttablaðið að málið sé allt hið dularfyllsta. Hulda er eigandi kattarins Birtu. „Ég veit ekki hvað gerðist, kötturinn finnst bara í Kópavogi,“...
Ragnheiður Runólfsdóttir hefur á undanförnum árum verið þjálfari hjá Sundfélaginu Óðni á Akureyri. Skagakonan ætlar nú að söðla um og hefur hún ráðið sig sem yfirþjálfara hjá einu stærsta sundfélagi Svíþjóðar. Það er blaðamaðurinn Skapti Hallgrímsson á Akureyri sem greindi frá þessu. Félagið heitir SO2 og er staðsett í Gautaborg. Ragnheiður hefur verið yfirþjálfari hjá...