• Íslenska kvenna­landsliðið í knatt­spyrnu, skipað leik­mönn­um 19 ára og yngri er komið í mill­iriðla í und­an­keppni EM. Skagamaðurinn Þórður Þórðarson er þjálfari liðsins. Undankeppnin fer fram hér á landi. Ísland vann stórsigra í fyrstu tveimur leikjunum í riðlakeppninni. Lokatölur 7-0 gegn Kasakst­an og 6-0 gegn Grikklandi. Á morgun, þriðjudag, mætast Ísland og Spánn í hreinum...

  • Járnblendiverksmiðja Elkem á Grundartanga er einn af stóru vinnustöðum íbúa á Akranesi. Verksmiðjan hefur verið stór þáttur í atvinnulífi Akurnesinga allt frá árinu 1979 eða í fjörtíu ár. Í frétt Viðskiptablaðsins kemur fram að hagnaður járnblendiverksmiðju Elkem hafi fjórfaldast á síðasta ári, 2018. Hagnaðurinn nam um 2,7 milljörðum kr. eða sem nemur um 7,4 milljónum...

  • Haukur Andri Haraldsson og Logi Mar Hjaltested leikmenn 4. fl. ÍA í knattspyrnu fá tækikfæri með landsliði Íslands skipað leikmönnum 15 ára og yngri á næstunni. Þeir eru báðir í landsliðshópnum sem tekur þátt á UEFA Development móti í Póllandi dagana 20.-25. október. Haukur Andri fetar þar með í fótspor bræðra sinna Hákons Arnars og...

  • Það var mikill áhugi á leikjum ÍA í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á árinu 2019. Að meðaltali mættu 1.057 áhorfendur á hvern leik á Norðurálsvöll en slíkur fjöldi hefur ekki mætt að meðaltali frá árinu 2012 þegar 1.280 áhorfendur mættu að meðaltali. Elfa Björk Sigurjónsdóttir, einn harðasti stuðningsmaður ÍA, og fyrrum starfsmaður KFÍA...

  • Félag slökkviliðsmanna á Akranesi og Hvalfjarðarsveitar hefur óskað eftir 750.000. kr. styrk frá Akraneskaupstað vegna náms – og kynningarferðar sumarið 2020. Fimmtán manna hópur úr félaginu ætlar að fara á sýninguna Rauða hanann sem fram fer í borginni Hannover í Þýskalandi um miðjan júní á næsta ári. Á sýningunni fer fram kynning á ýmsum tækjum...

  • Keppnistímabilið í körfuboltanum á Akranesi er hafið. Karlalið ÍA leikur í 2. deild og í fyrsta leiknum á Íslandsmótinu var B-lið Njarðvíkur mótherjinn. Sóknarleikurinn var í aðalhlutverki og endaði leikurinn með sigri gestanna úr Njarðvík, 121-131. Bandaríkjamaðurinn Chaz Franklin er mættur á Skagann á ný sem þjálfari og leikmaður. Undir hans stjórn hafa yngri leikmenn...

  • Styrkir til greiðslu fasteignaskatts 2019 voru afgreiddir á fundi bæjarráðs Akraness nýverið. Auglýst var eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til aðila með starfsemi á sviði menningar-, íþrótta-, æskulýðs-, tómstunda- eða mannúðarmála. Slíkir styrkir hafa verið veittir frá árinu 2014. Að þessu sinni fengu fimm aðilar styrki – samtals, 2.178.181 kr. Akur frímúrarastúka, 779.752...

  • Kristófer Garðarsson skoraði glæsilegt mark fyrir Duke háskólaliðið nýverið. Skagamaðurinn hefur leikið með Duke undanfarin misseri en skólinn hefur verið í fremstu röð í mörgum íþróttum í háskólakeppnum í marga áratugi. Kristófer hefur leikið með liði Kára á Akranesi og verið í lykilhlutverki með liðinu. Markið glæsilega má sjá hér fyrir neðan en þetta er...

  • Íslandsmeistaralið 2. flokks karla í knattspyrnu, ÍA/Kári/Skallagrímur, vann stóran sigur gegn Levadia Tallinn í 1. umferð UEFA Unglingadeildinni á Akranesvelli í gær. Lokatölur 4-0. Síðari leikurinn fer fram þann 23. okt. í Lettlandi og er staða ÍA/Kára/Skallagríms nokkuð góð fyrir þann leik. Samanlagður árangur úr leikjunum ræður úrslitum. ÍATV var með frábæra útsendingu frá leiknum...

  • Bikarkeppni Sundsambands Íslands 2019 fór fram um s.l. helgi í Reykjanesbæ. Sundfélag Akraness sendi lið til keppni í karla – og kvennaflokki. Sundfélag Hafnarfjarðar vann bikarmeistaratitlinn bæði í karla- og kvennaflokkum líkt og síðustu 2 ár. Ekkert lið féll í 2. deild þetta árið þar sem einungis B-lið voru skráð til leiks í 2. deild...

Loading...