Stuðningsmenn ÍA og leikmenn ÍA fögnuðu gríðarlega eftir 2-0 sigur liðsins gegn FH í kvöld á Norðurálsvellinum. Þetta var fyrsti sigur ÍA gegn FH á Íslandsmótinu í knattspyrnu, PepsiMax-deildinni, frá árinu 2005 eða í 14 ár.
Arnar Már Guðjónsson er leikreyndasti leikmaður ÍA en hann hefur leikið með meistaraflokk frá árinu 2004. Arnar Már náði ákveðnum tímamótum á ferli sínum í kvöld þegar ÍA lagði FH 2-0. Hann segir frá því þessu viðtali við skagafrettir.is
Bjarki Steinn Bjarkason var hetja Skagamann í kvöld þegar liðið sigraði FH 2-0 í Pepsi-Maxdeild karla í knattspyrnu á Norðurálsvellinum. Bjarki Steinn skoraði bæði mörk liðsins, það fyrra á 3. mínútu og það síðari um miðjan síðari hálfleik. Bjarki Steinn er á 19. ári og hefur stimplað sig vel inn í Skagaliðið frá því hann...
Gísli Guðmundsson og starfsfólkið á Rakarastof Gísla halda áfram hefðinni sem skapaðist í fyrra á leikdögum hjá ÍA í knattspyrnunni. Gísli og Carmen Llorens klippa viðskiptavinina í dag í gula ÍA búningnum. Þessi háttur var hafður á í fyrra og vakti athygli. „Viðskiptavinum okkar hér á Rakarastofu Gísla finnst þetta flott framtak. Svona erum við...
Skagahraðlestin er komin af stað á ný. Í öðrum þætti hlaðvarpsþáttarins er tónlistin í kringum ÍA skoðuð. Skagahraðlestin er hlaðvarpsþáttur framleiddur af stuðningsmönnum ÍA í knattspyrnu. Um borð í Skagahraðlestina koma ýmsir viðmælendur sem tengjast félaginu á einn eða annan hátt. Björn Þór Björnsson og Snorri Kristleifsson eru mennirnir sem stýra Skagahraðlestinni af röggsemi. Það...
Erla Karitas Jóhannesdóttir var hetja ÍA í kvöld þegar liðið sigraði FH í 2. umferð Mjólkubikarkeppni kvenna í knattspyrnu. Erla Karitas skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleik og tryggði ÍA áframhaldandi þátttöku í keppninni. Liðin léku nýverið í Inkasso-deild kvenna á Íslandsmótinu og þeim leik lauk með jafntefli. Erla Karitas Jóhannesdóttir. Leikurinn fór fram...
ÍA og FH mætast í toppslag í 4. umferð Pepsi-Maxdeildarinnar í knattspyrnu miðvikudaginn 15. maí á Norðurálsvellinum. Bæði lið eru með 7 stig líkt og Breiðablik en þessi þrjú lið eru í efsta sæti. Skagamenn undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar þjálfara hafa byrjað Íslandsmótið með látum. Unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli. ÍA sigraði...
Congo Bongo með lagið Human Tónlistarfrændurnir Hreinn Elías og Sigurmon Hartmann sem hafa skipað ýmsar sveitir í gegnum tíðina eru mættir til leiks með nýja hljómsveit sem ber heitið Congo Bongo. Hreinn Elías og Sigurmon eru með sterka Skagatengingu „Þetta er nafn sem gefur til kynna sólríka og bjarta daga framundan í útgáfu tónlistar okkar...
Guðmundur Sigurðsson hefur á undanförnum áratugum unnið gríðarlegt uppbyggingarstarf fyrir keiluíþróttina á Íslandi og Akranesi. Skagamaðurinn fékk gullmerki Keilusambands Íslands á 26. ársþingi KLÍ sem fram fór um s.l. helgi. Gullmerkið fær Guðmundur fyrir störf sín í þágu keilunnar á Íslandi. Guðmundur hefur í 20 ár unnið í hinum ýmsu nefndum eins og tækninefnd, mótanefnd...
„Það er mikilvæg viðurkenning fyrir okkur hjá Grammatek að fá styrk frá Rannís í þetta verkefni,“ segir Skagakona Anna Björk Nikulásdóttir sem er annar tveimur eigendum frumkvöðlafyrirtækisins Grammateks ehf. Nýverið fékk samstarfsverkefni Akraneskaupstaðar og Grammateks ehf. myndarlegan styrk frá Rannís, úr Markáætlun í tungu og tækni. Markmið verkefnisins er að þróa frumgerð hugbúnaðar til sjálfvirkrar...