Aðsend grein frá Halldóri Jónssyni, íbúa á Akranesi: Ákvörðun Skipulagsstofnunar, að breikkun þjóðvegar um Kjalarnes skuli sæta mati á umhverfisáhrifum, er með miklum ólíkindum og eru landsmenn þó ýmsu vanir úr þeirri áttinni á undanförnum árum. Að eðlileg framþróun og löngu tímabær breyting á þjóðvegi er liggur um manngerð tún og mela skuli þurfa umhverfismat...
Skagamaðurinn Jón Gísli Eyland Gíslason verður í U-18 ára landsliði Íslands í knattspyrnu í tveimur vináttuleikjum sem fram fara í júlí. Leikirnir fara fram 19. og 21. júlí – og eru þeir báðir í Riga í Lettlandi þar sem Ísland mætir heimamönnum. Þorvaldur Örlygsson, fyrrum þjálfari ÍA, er þjálfari U-18 ára liðsins. Jón Gísli hefur...
Kötturinn Birta frá Akranesi er til umfjöllunar á stærstu fréttmiðlum Íslands. Birta týndist hér á Akranesi fyrir fjórum dögum. Kötturinn fannst í gær í Kársnesi í Kópavogi. Hulda Guðbjörnsdóttir, segir í samtali við Fréttablaðið að málið sé allt hið dularfyllsta. Hulda er eigandi kattarins Birtu. „Ég veit ekki hvað gerðist, kötturinn finnst bara í Kópavogi,“...
Ragnheiður Runólfsdóttir hefur á undanförnum árum verið þjálfari hjá Sundfélaginu Óðni á Akureyri. Skagakonan ætlar nú að söðla um og hefur hún ráðið sig sem yfirþjálfara hjá einu stærsta sundfélagi Svíþjóðar. Það er blaðamaðurinn Skapti Hallgrímsson á Akureyri sem greindi frá þessu. Félagið heitir SO2 og er staðsett í Gautaborg. Ragnheiður hefur verið yfirþjálfari hjá...
Álmaðurinn fer fram miðvikudaginn 24. júlí á Akranesi en um er að ræða keppni í þríþraut. Keppnin fer fram í og við helstu náttúruperlur Akraness. Keppt er í hjólreiðum, fjallgöngu/hlaupi, og sjósundi. CrossFit Ægir á Akranesi stendur á bak við keppnina í ár og sér um skipulag og skráningu. Sævar Berg Sigurðsson er í teyminu...
Arnór Sigurðsson skoraði þrennu í dag í æfingaleik með CSKA Moskvu gegn Rubin Kaza. Bæði liðin leika í efstu deild í Rússlandi. Skagamaðurinn skoraði fyrsta markið á 14. mínútu, og hann bætti við tveimur mörkum með stuttu millibili þegar um 10 mínútur voru eftir leiknum. Arnór er að hefja sitt annað tímabil með CSKA Moskvu...
Bæjarráð Akraness fjallaði á fundi sínum þann 3. júlí 2019 um skýrslu starfshóps um Sundabraut. En starfshópur um Sundabraut hefur lokið störfum og skilað skýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Sundabraut hefur verið til skoðunar um árabil og hafa bæjaryfirvöld á Akranesi og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi ítrekað ályktað um mikilvægi hennar því Sundabraut mun án...
Fjölmenni tók þátt í sjósundi á Írskum dögum þar sem að minningu Helga Hannessonar íþrótta – og sundkennar á Akranesi var haldið á lofti. Helgi Hannesson var frumkvöðull á þessu sviði og synti reglulega í sjónum við Langasand. Löngu áður en sjósund varð vinsælt á Íslandi. Synt var frá Sementsbryggjunni og komið í land til...
Skagamaðurinn Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason hefur verið ráðinn aðstoðarbankastjóri Arion banka og mun hann hefja störf með haustinu. Um nýtt hlutverk er að ræða innan bankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. Ásgeir hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Kviku banka hf. Hann var meðlimur í framkvæmdahópi um losun fjármagnshafta árið 2015...
Björn Þór Björnsson og Snorri Kristleifsson halda áfram að dæla út áhugaverðu efni í hlaðvarpsþættinum Skagahraðlestin. Þeir félagar sjá um að gefa út hlaðvarpsþátt fyrir hvern heimaleik meistaraflokks karla í Pepsi-Maxdeildinni. Snorri sér um tæknimálin en Björn Þór er stjórnandi þáttarins. Í sjötta þætti er rætt við Jón Gunnlaugsson þar sem að árið 1979 er...