Sumarið er svo sannarlega komið á Akranesi og margir hafa notið veðurblíðunnar að undanförnu. Átta verslanir á Akranes ætla að fagna sumrinu með sumaropnum fimmtudaginn 9. maí. Opið verður fram til 22.00. Skagamenn og aðrir gestir geta upplifað góða sumarstemningu í verslun og þjónustu. Alls eru átta verslanir sem taka þátt í þessu verkefni. Góður...
Mikið tjón varð í gærkvöld í húsnæði Fjöliðjunnar við Dalbraut 10 í gærkvöld en eldur kom upp í húsinu. „Í þessu húsnæði fer fram mikilvæg starfsemi sem við verðum að koma í gang sem allra fyrst. Viðræður er þegar hafnar við nokkra aðila hér í bænum til þess að finna hentugt bráðabirgða húsnæði en hvað...
Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunnar Vesturlands fór fram um s.l. helgi. Um 300 félagar eru í hollvinasamtökunum og gáfu félagsmenn 5 sjúkrarúm sem nýtt verða á HVE. Þar að auki var greint frá því að 8 sjúkrarúm verða keypt til viðbótar. Að baki þeirri gjöf standa fyrirtæki, einstaklingar og félagasamtök. Vilhjálmur Birgisson tilkynnti að Verkalýðsfélag Akraness muni...
Það stendur mikið til á laugardaginn þegar ný frístundamiðstöð verður opnuð með formlegum hætti við Garðavöll á Akranesi. Bæjarbúum er boðið að taka þátt en dagskráin stendur yfir frá 12-15. Opið hús fyrir gesti og gangandi til kl. 15:00 með kaffiveitingum Formleg vígsla hússins og ræðuhöld verða kl. 13:00 Það verður margt í boði á...
Fjölmargir gestir mættu í ársafmæli Smiðjuloftsins á Akranesi um liðna helgi. Mikill kraftur hefur verið í starfinu á Smiðjuloftinu frá því að staðurinn var opnaður fyrir ári síðan. Þar er hægt að gera ýmislegt sér til dundurs í frábærri aðstöðu. Í afmælinu var boðið upp á línuklifur fyrir alla sem þorðu, söngstund á efri hæðinni,...
Það styttist í að greint verði frá því hver verður nýr aðstoðarskólastjóri í Brekkubæjarskóla. Ráðningarferlið stendur yfir. Alls sóttu 9 einstaklingar um starfið en einn umsækjandinn dró umsókn sína til baka. Magnús Benediktsson er aðstoðarskólastjóri en hann lætur af störfum í lok skólaársins. Eftirfarandi aðilar sóttu um starfið: Ásdís Hrönn Viðarsdóttir Bryndís Böðvarsdóttir Chiara Trevisan...
Miðvikudagurinn 8. maí er dagurinn til þess að sameina útiveru og umhverfismeðvitund. Á þeim degi hvetur Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akraness bæjarbúa til þess að taka þátt í hreinsun og fegrun umhverfisins. Aðildarfélög Íþróttabandalags Akraness ætla að tína upp rusl á völdum svæðum milli kl. 17:00 – 18:30 . Að vinnu lokinni verður boðið upp á...
Skagamærin Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og Aron Logi Hrannarsson halda áfram að ná frábærum árangri í dansíþróttinni. Rósa Krístin og Aron fögnuðu sigri á Íslandsmótinu í unglingaflokki í Latin-dönsum sem fram fór um s.l. helgi. Þau hafa náð frábærum árangri á árinu eins og sjá má í fréttunum hér fyrir neðan. http://localhost:8888/skagafrettir/2019/04/23/rosa-og-aron-eru-a-medal-bestu-danspara-i-evropu/ http://localhost:8888/skagafrettir/2019/01/05/skagamaerin-rosa-kristin-nadi-frabaerum-arangri-i-blackpool/ http://localhost:8888/skagafrettir/2019/01/28/rosa-kristin-og-demi-nadu-frabaerum-arangri-a-rig/
Kári Geirlaugsson átti stórkostlega helgi á Íslandsmóti Garpa í sundi sem fram fór um helgina. Kári var eini keppandinn frá ÍA sem tók þátt en hann landaði alls 8 gullverðlaunum. Þar að auki setti Kári Íslandsmet í flokki 70-74 ára í alls átta sundum.
Kári byrjaði vel í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Káramenn sigruðu Völsung frá Húsavík 4-0 í Akraneshöllinni. Sigur Kára var sannfærandi og er Kári í efsta sæti deildarinnar. Andri Júlíusson (27.) og Ólafur Karel Eiríksson (32.) skoruðu fyrir Kára í fyrri hálfleik og staðan var 2-0 í hálfleik. Hilmar Halldórsson (51.) bætti við þriðja markinu...