„Ég er afskaplega sáttur við mitt hlutverk í lífinu og ég horfi bjartsýnn til framtíðar,“segir Skagamaðurinn Gísli Runólfsson í áhugaverðu viðtali sem Smári Geirsson skrifar og birt er á fésbókarsíðu Síldarvinnslunnar. Skagafréttir fengu góðfúslegt leyfi til þess að birta viðtalið við Gísla. Gísli fagnar merkisáfanga á þessu ári en skipstjóraferill hans hófst fyrir 40 árum....
Morgunblaðið er með ítarlegt viðtal við Hilmar Sigvaldason á baksíðu blaðsins í dag. Þar eru vitarnir á Breiðinni til umfjöllunnar og framkvæmdirnar sem eru fyrirhugaðar á svæðinu. Hilmar hefur með dugnaði sínum komið Akranesi á kortið hjá ferðamönnum og eru vitarnir á Breiðinni helsta aðdráttaraflið. „Aðsóknin er sífellt að aukast. Árið 2012, fyrsta sumarið sem...
Kostnaður Reykjavíkurborgar og Akraneskaupstaðar við hvern farþega í tilraun með siglingar þeirra á milli árið 2017 nam átta þúsund krónum. Þetta kemur fram á visir.is. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur lögðu fram fyrirspurn í febrúar s.l. þar sem óskað var upplýsinga um fjölda farþega í flóasiglingum Sæferða árið 2017. Um var að ræða samning milli...
Akraneskaupstaður leitar eftir hugmyndum um hvernig nýta má pökkunarskemmuna sem er staðsett að Faxabraut 10. Húsið hefur á undanförnum árum verið notað fyrir Lopapeysballið. Og eflaust eru margir sem óttast um framtíð Lopapeysunnar. Hér má sjá hugmynd um hvernig umrætt svæðið gæti litið út. Ýmsar tillögur hafa verið viðraðar á fésbókinni hjá bæjarstjóra Akraness, Sævari Frey...
Um helgina fór fram Bikarmeistarmót Íslands í grjótglímu og voru klifrarar frá ÍA meðal þátttakenda. Mótið hófst á laugardaginn á Smiðjuloftinu þar sem undanúrslit í C flokk(12-13 ára) og B flokk (14-15 ára) voru haldin. Klifrarar fengu 90 mínútur til að ljúka 15 klifurleiðum í sem fæstum tilraunum og fór sex efstu keppendur í stúlkna-...
Ný skólastofa verður byggð við Grundaskóla fyrir næsta skólaár en tillaga þess efnis var samþykkt nýverið á fundi bæjarráðs. Um er að ræða tréhús sem reist verður á skólalóð Grundaskóla og kemur nýja byggingin í stað elstu færanlegu skólastofunnar á þessu svæði. Framkvæmdin kostar 30 milljón kr. og vísaði bæjarráð ákvörðuninni til staðfestingar í bæjarstjórn Akraness....
„Við viljum þakka fyrir skemmtilegan tíma á þessum stað en hlökkum til að halda áfram með ykkur á nýjum stað við Kirkjubraut 12,“ segir í tilkynningu frá Versluninni Nínu frá því í gær. Síðasti starfsdagur verslunarinnar var í gær á Kirkjubraut 4-6 en þar hóf Nína starfssemi fyrir 37 árum. Myndin var tekin í gær...
Kári og Skallagrímur áttust við í Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu í gærkvöld í Akraneshöllinni. Gestirnir úr Borgarnesi skoruðu fyrsta mark leiksins en Káramenn svöruðu með fimm mörkum og fögnuðu 5-1 sigri. Margir leikmenn úr röðum ÍA eru í báðum liðum og var því um Vesturlands – og vinaslag að ræða. ÍATV var með beina útsendingu...
Kútter Sigurfari verður fjarlægður og fargað ef ekki tekst að finna áhugasama aðila sem vilja eignast skipið. Þetta kemur fram á ályktun bæjarráðs Akraness. „Með þeim rannsóknum sem framkvæmdar voru telur bæjarfélagið sig hafa sinnt rannsóknum á gripnum með fullnægjandi hætti. Með niðurstöðum rannsóknanna og þeirri staðreynd að ekki er um skráðan safngrip að ræða...
Jóna Alla Axelsdóttir keppir fyrir hönd Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í Söngkeppni framhaldsskólanna 2019. Fjórar söngkonur úr FVA tóku þátt í undankeppni NFFA sem fram fór í gær í hátíðarsal FVA. Valfríður Guðmey Haraldsdóttir, Fanney Lísa Sveinsdóttir, Aðalheiður Fríða Hákonardóttir og Jóna Alla Axelsdóttir reyndu allar fyrir sér. Keppendur stóðu sig allar vel en í dómnefnd sátu...