Gunnlaugur Jónsson er í áhugaverðu viðtali sem birt var s.l. fimmtudag á fréttavefnum fotbolti.net. Í viðtalinu segir Skagamaðurinn frá geðsjúkdómi sem hann glímir við og ástæðu þess að hann ákvað að hætta sem þjálfari Þróttar úr Reykjavík. Gunnlaugur var þjálfari karlaliðs ÍA og stýrði liðinu í Pepsi-deildinni en þjálfaraferill hans hófst fyrir tíu árum. Smelltu...
Sameiginlegt lið ÍA og Skallagríms endaði í öðru sæti í A-deild Íslandsmótsins í Badminton. Keppnin var afar jöfn en þrjú lið voru jöfn í efsta sæti. Til að knýja fram úrslit var farið í talningu á fjölda sigraðra leikja innan hverrar viðureignar. Eftir þá stærðfræðiþraut kom í ljós að lið Badmintonfélags Hafnarfjarðar stóð uppi sem Íslandsmeistari....
Marcus Johansson mun leika með karlaliði ÍA í Pepsideildinni í knattspyrnu á næstu leiktíð sem hefst í apríl. Johansson er fæddur árið 1993 og kemur hann frá danska liðinu Silkeborg. Johansson er varnarmaður og samdi hann til tveggja ára við ÍA. Johansson hóf ferilinn hjá Halmstad þar sem hann lék 43 leiki. Auglýsing Auglýsing
Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir aðstoð. Fólk sem varð vitni að umferðaróhappi s.l. föstudag, 15. febrúar, er beðið um að hafa samband við lögreglu. Óhappið átti sér stað við gatnamót Akranesvegar og Akrafjallsvegar kl 15:25. Sjá hér fyrir neðan. Auglýsing Auglýsing
Bæjarfulltrúar á Akranesi hafa krafið Sigurð Inga Jóhannesson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um skýringar á ákvörðun um að fresta breikkun Vesturlandsvegar í samgönguáætlun. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Á síðasta fundi bæjarstjórnar Akraness var eftirfarandi bókun lögð fram og samþykkt einróma: „Bæjarstjórn Akraness varð fyrir miklum vonbrigðum þegar framkvæmdum við breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes var frestað í...
Það var mikið um að vera í gær á Smiðjuloftinu á Akranesi. Þar hélt Klifurfélag ÍA – Klif-A fyrsta mót Íslandsmeistara mótaraðarinnar í grjótglímu. Áður en Íslandsmótið hófst fór fram innanfélagsmót hjá yngstu iðkendum Klif-A. Þar sem þau sýndu foreldrum sínum og félögum færni sína á veggnum. Rúmlega 30 keppendur voru í flokki C (12-13 ára)...
,,Það eru margir sem segja mér að ég hafi verið að koma inn í frábært lið og spyrja hvort það hafi ekki verið allt í lagi að skora þessi 15 mörk. Ég segi bara nei, þetta var frábær árangur og ég er stoltur af honum,“ segir Skagamaðurinn Arnar Gunnlaugsson í viðtali í hlaðvarpsþættinum 90 mínútur...
Akraneshöllin hefur breytt miklu hvað varðar aðstöðu fyrir íþróttalífið á Akranesi. Húsið var vígt 21. október árið 2006. SS Verktaktar byggðu húsið og var það tekið í notkun á 60 ára afmælisári ÍA. Í tímavél Skagafrétta að þessu sinni birtum við myndir frá byggingu Akraneshallarinnar. Myndirnar voru teknar í 18. janúar 2006 eða rétt um...
Skagamaðurinn Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey stóðu uppi sem sigurvegarar í slaktaumatölti í Meistaradeildinni í hestaíþróttum sem fram s.l. fimmtudag. Keppt var í Samskipahöllinni í Kópavogi. Þetta var annað mót vetrarins í Meistaradeildinni. Jakob Svavar Sigurðsson knapi og Júlía frá Hamarsey báru sigur úr býtum í sömu grein í Meistaradeildinni á síðasta ári...
Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson hefur valið leikmennina sem skipa kvennalandslið Íslands á Algarve Cup 2019. Skagakonan Hallbera Guðný Gísladóttir, leikmaður Vals, er í hópnum. Fyrsti leikur Íslands er gegn Kanada þann 27. febrúar og gegn Skotlandi þann 4. mars. Leikið er um sæti þann 6. mars. Ísland mætir Kanada 27. febrúar og Skotlandi 4. mars....