Golfklúbburinn Leynir og veitingastaðurinn Galito hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf er tekur til reksturs veitinga og þjónustu í nýrri frístundamiðstöð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leyni. Galito mun reka starfssemina í frístundamiðstöðinni samhliða rekstri veitingastaðar við Stillholt og mun opna formlega þegar Garðavöllur opnar golfvöllinn sem má áætla að verði mánaðamótin apríl/maí. Hilmar...
Fríða Halldórsdóttir leikmaður ÍA er í U-19 ára landsliði kvenna sem keppir gegn Svíþjóð, Ítalíu og Danmörku í mars. Bergdís Fanney Einarsdóttir, leikmaður Vals og fyrrum leikmaður ÍA er einnig í hópnum. Mótið fer fram á La Manga á Spáni en mótið er alþjóðlegt og er hluti af undirbúningi Íslands fyrir milliriðil EM þar sem...
Eins og fram hefur komið á Stefán Þór Steindórsson, byggingafulltrúi Akraness, eitt af lögunum í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2019. Lagið heitir „Þú bætir mig / Make me whole“ og er það flutt af Ívari Daníels. Stefán Þór segir í samtali við skagafrettir.is að hann eigi þá ósk að fólk njóti kvöldsins saman í faðmi vina eða ættingja heima...
Stór hluti nemenda í unglingadeild Brekkubæjarskóla hefur á undanförnum vikum staðið í ströngu við æfingar á nýju leikriti sem frumsýnt verður í kvöld, föstudaginn 15. febrúar. Leitin heitir verkið og höfundarnir eru þau Samúel Þorsteinsson og Heiðrún Hámundardóttir – en þau eru kennarar við Brekkubæjarskóla. Leikritið er fjörugt og litríkt og stútfullt af tónlist og dansi,...
Steinsteypufélag Íslands tilnefnir Guðlaugu til Steinsteypuverðlauna 2019 en alls bárust 13 tillögur og af þeim valdi félagið fimm mannvirki sem tilnefnd eru til verðlaunanna. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Mannvirkin sem um ræðir eru Safnaðarheimilið við Ástjarnakirkju, Bláa lónið Resort, Brú í mislægum vegamótum Reykjanesbrautar, Krýsuvíkurvegar og Stoðveggur úr vistvænni steypu við Búrfellsstöð II...
Skagamenn sigruðu Leiknir úr Reykjavík í 1. umferð Lengjubikarkeppni KSÍ í kvöld í Akraneshöll. Viktor Jónsson skoraði fyrsta mark leiksins á 24. mínútu en Hörður Ingi Gunnarson lagði upp markið. Staðan var 1-0 í hálfleik en Hörður Ingi skoraði fyrir ÍA í uppbótartíma eftir sendingu frá Þórði Þórðarsyni. Mörkin má sjá hér fyrir neðan. Mark...
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs. Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins. Jóhanna hefur gegnt starfinu frá 1. febrúar 2017 í fjarveru Guðjóns S. Brjánssonar sem situr á Alþingi. Embættið var auglýst laust til umsóknar í lok nóvember síðastliðinn og var Jóhanna Fjóla metin hæfust...
Gísli Björnsson, yfirmaður sjúkraflutninga á Vesturlandi, segir það ömurlegt að sjúkraflutningamenn þurfi að vinna á sjúkrabílum sem ekki sé hægt að treysta á að komist á leiðarenda með fársjúkt eða slasað fólk. Dæmi eru um að sjúkrabílar hafi bilað í forgangsakstri með sjúkling um borð. Hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands eru sextán sjúkrabílar á starfssvæðinu, fjórir þeirra...
Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, kom í heimsókn í dag í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Vel var tekið á móti Katrínu og ávarpaði hún nemendur og starfsfólk í hátíðarsal FVA. Katrín fór um skólann þar sem hún kom víða við, þar á meðal í kennslustund í lýðheilsu hjá nemendum á starfsbraut og í kennslustund í líffræði. Einnig...
Tveir leikmenn úr ÍA eru í úrtakshóp fyrir U15 ára landslið Íslands í kvennaflokki í knattspyrnu. Dagbjört Líf Guðmundsdóttir og Ylfa Laxdal Unnarsdóttir, leikmenn ÍA, eru í hópnum en rúmlega 30 leikmenn eru boðaðir á æfingarnar sem fram fara 22.-24. febrúar. Það er Skagamaðurinn Lúðvík Gunnarsson sem velur hópinn en hann tók nýverið við sem...