Söngvarinn Stefán Jak og Andri Ívars gítarleikari hafa á undanförnum misserum vakið mikla athygli fyrir flutning sinn. Þeir hafa notað samfélagsmiðlana til þess að koma efni sínu á framfæri og þeir eru einnig iðnir við tónleikahald. Í gær heimsóttu þeir Akranes og var vel mætt á tónleikana sem fram fóru í Gamla Kaupfélaginu. Stefán Jak....
Það stendur mikið til í menningar – og tónlistarlífi Grundaskóla á næstu vikum. Um 100 nemendur koma að undirbúningi á söngleiknum SMELLUR. Verkið verður frumsýnt í Bíóhöllinn á Akranesi 19. apríl. Um er að ræða nýjan söngleik eftir Einar Viðarsson, Flosa Einarsson og Gunnar Sturlu Hervarsson. Þeir eru allir kennarar við Grundaskóla og hafa samið...
Íbúum á Akranesi fjölgaði um 208 á tímabilinu 1. janúar 2017 og 1. janúar 2018. Íbúafjöldi á Akranesi var 7.314 í byrjun ársins 2018. Heildarfjöldi íbúa á Íslandi er 348.450 og hefur þeim fjölgað um 10.101 á milli ára. Í byrjun árs 2017 fór íbúafjöldinn á Akranesi í fyrsta sinn yfir 7.000. Frá árinu 2011 hefur...
„Peningurinn fer í kaup á búnaði og viðhaldi hans. Við höfum mikinn metnað og viljum gera útsendingar okkar þannig að þær standist samanburð við það sem best gerist,“ segir Örn Arnarson einn af lykilmönnum í sjálfboðaliðateymi ÍATV. Fyrr í dag skrifaði Íþróttabandalag Akraness undir samning við ÍATV þess efnis að félagið styrkir ÍATV um eina...
Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar: Gríðarlegur kraftur hefur einkennt menningar – og listalífið á Akranesi að undanförnu. Framboðið fjölbreytt og eftirspurnin mikil. Og þegar einhverjum tekst að fá gamla íþróttakennarann á Bjargi á tónleika þá er það fréttaefni. Reyndar fékk hann miða gefins frá konunni sem hann hefur verið giftur í rúmlega hálfa öld. Hún er...
Frístundamiðstöðin við Garðavöll var til umfjöllunar á RÚV í þættinum Landanum. Þar var rætt við Brynjar Sæmundsson vallarstjóra Garðavallar, Guðmund Sigvaldason framkvæmdastjóra Golfklúbbsins Leynis og Sævar Frey Þráinsson bæjarstjóra. Í viðtölunum kemur m.a. fram að ástand Garðavallar lofi góðu fyrir sumarið. Töluverðar framkvæmdir standa yfir þessa dagana á vellinum og þar ber hæst nýir teigar...
Valdís Harpa Reynisdóttir, 12 ára stúlka frá Akranesi, heldur áfram að skrifa nýja kafla í íþróttasögu Akraness. Valdí Harpa gerði sér lítið fyrir og sigraði í flokki 13 ára og yngri á Snjóbrettamóti Íslands. Mótið fór fram í Bláfjöllum 23.-25. mars og var í umsjón Brettafélags Hafnarfjarðar. Árangur Valdísar Hörpu er afar góður þegar heildarúrslit...
Ferðaþjónustan er stærsta útflutningsgrein Íslands. Í gegnum tíðina hafa einstaklingar frá Akranesi verið í fararbroddi í ferðaþjónustunni. Í fyrsta lagi var Skagamaðurinn Magnús Oddsson ferðamálastjóri Íslands á árunum 1990-2008. Magnús er fæddur árið 1947 og er í dag í fararbroddi að fanga athygli erlendra kylfinga sem vilja leika golf á Íslandi. Bjarnheiður Hallsdóttir og Þórdís...
„Ég er ekki að hætta í faginu en Hárhús Kötlu er til sölu,“ segir Katla Hallsdóttir við skagafrettir.is. Það vakti athygli í vikunni þegar Hárhús Kötlu var auglýst til sölu í prentmiðlinum Póstinum. Margir hafa velt því fyrir sér hvað sé að gerast. Katla og meðeigandi hennar, Ína Dóra Ástríðardóttir, eru sem sagt að leita...
Stórtíðindi bárust í dag frá aðalfundi Spalar sem á og rekur Hvalfjarðargöngin. Innheimtu veggjalds verður hætt í september á þessu ári – líklega í lok mánaðarins. Framkvæmdastjóri, fjármálastjóri og endurskoðandi Spalar hafa farið rækilega yfir skuldbindingar félagsins annars vegar og tekjuáætlun hins vegar. Niðurstaðan er sem sagt sú að í einhvern tíma í september verði...