• Kjörinu á íþróttamanni Akraness 2017 verður lýst þann 6. janúar 2018. Eftirtaldir koma til greina í kjörinu í ár en alls eru 16 tilnefndir af aðildarfélögum Íþróttabandalags Akraness. Á vef Akraneskaupstaðar geta íbúar Akraness tekið þátt í kjörinu og með því að smella hér þá getur þú tekið þátt:   Badmintonmaður ársins: Brynjar Már Ellertsson...

  • Við höldum áfram að rifja upp vinsælustu fréttir ársins á skagafrettir.is. Að þessu sinni er komið að fréttum sem eru í sætum nr. 16-20. Hér fyrir neðan má einnig finna fréttalistana sem eru í sætunum þar fyrir neðan. Mest lesnu fréttir ársins á skagafrettir.is – sæti nr. 21-25 – Skagafréttir.is Mest lesnu fréttir ársins á...

  • Rekstur Golfklúbbsins Leynis var erfiður rekstrarárið 2017 og lækkuðu rekstrartekjur um 10% milli ára.  Heildartap árins að teknu tilliti til fyrninga og fjármunagjalda var rúmar 10 mkr. Rekstrartekjur voru rúmar 71,5 mkr. og rekstrargjöld tæpar 76 mkr. Þetta kom fram á aðalfundi Leynis þann 12. desember. s.l. Ársreikningar Leynis 2017 Skýrsla stjórnar Leynis 2017.  Færri...

  • Íbúum á Akranesi fjölgar jafnt og þétt með hverju árinu sem líður. Alls voru 7.216 íbúar á Akranesi í byrjun desember á þessu ári. Í spá sem Akraneskaupstaður hefur gert um íbúaþróun er gert ráð fyrir að rétt tæplega 7.500 íbúar verði á Akranesi árið 2021. Frá árinu 1920 hefur íbúum á Akranesi fjölgað um...

  • Fjölmenni mætti á Jólagleðina sem fram fór s.l. föstudag í Garðalundi á Akranesi. Þetta er í annað sinn sem Jólagleðin fer fram og tókst viðburðurinn gríðarlega vel. Veðrið lék við gesti og sannkölluð töfrastemning myndaðist í Garðalundi þetta kvöld. Kveikt var á ljósunum hans Gutta og Jólasveinar og ýmsar furðuverur glöddu gestina sem voru á...

  • Árlega fer fram „kaffistofukeppni“ Grundaskóla þar sem mikið var lagt að venju í skreytingar. Starfsfólk og nemendur Grundaskóla virðast ætla að taka þessa keppni á hærra stig með hverju árinu sem líður. Eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan var keppnin glæsileg. Á yngsta stiginu var Disney ævintýra þema, á miðstiginu var unnið...

  • Þrír Skagamenn eru í landsliðshóp Íslands sem mætir Indónesíu í vináttulandsleikjum í knattspyrnu karla 10. og 14. janúar 2018.  Margir nýliðar eru í hópnum og þar sem að ekki er um alþjóðlega leikdaga að ræða er hópurinn talsvert breyttur. Tryggvi Hrafn Haraldsson (Halmstad), Björn Bergmann Sigurðarson (Molde) og Arnór Smárason (Hammarby) eru í hópnum en...

  • Jólamorgunstund Brekkubæjarskóla fór fram í vikunni að viðstöddu fjölmenni í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Fjölbreytt og lífleg dagskrá var í boði fyrir gesti, og tæknimálin voru að venju í höndum nemenda. Nemendur sungu, léku á hljóðfæri, sýndu fimleikaatriði og dans. Það er mikið af hæfileikum í Brekkubæjarskóla – vel gert og til hamingju.

  • Þrír iðkendur úr ÍA, Fimleikafélagi Akraness, voru valdir í úrvalshóp vegna Evrópumóts landsliða í hópfimleikum sem fram fer á næsta ári. Þar að auki eru fjórir Skagamenn sem æfa með Stjörnunni í úrvalshóp karla í þessu úrtaki. Alls mættu tæplega 200 iðkendur á úrtökuæfingarnar þeir sem komust áfram koma frá 8 félögum. Lokahópurinn verður valinn...

  • Fyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir & Ellert hf. og 3X Technology ehf. hafa fyrir hönd starfsmanna sinna ákveðið að stuðla að bættum gæðum og faglegri vinnu við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinga í heimabyggð. Íþróttabandalag Akraness og Héraðssamband Vestfirðinga hljóta styrk upp á samtals 4.5 milljónir kr. Stofnaðir hafa verið sérstakir bankareikningar hjá Íslandsbanka, annarsvegar á Akranesi...

Loading...