Sex leikmenn úr ÍA hafa verið valdir til þess að taka þátt á landsliðsæfingum hjá yngri landsliðum KSÍ. Bergdís Fanney Einarsdóttir verður á landsliðsæfingum með U-19 ára liði kvenna.Oliver Stefánsson hefur verið valinn til þátttöku í æfingum U-16 liðs drengja. Árni Salvar Heimisson, Hákon Arnar Haraldsson, Jóhannes Breki Harðarson og Ísak Bergmann Jóhannesson verða fulltrúar...
Nýverið setti Jón Gunnlaugsson á laggirnar fésbókarsíðuna Á Sigurslóð. Þar rifjar Jón upp áhugaverða hluti úr knattspyrnusögu Akraness. Í nýjum pistli segir Jón frá ótrúlegu afreki Eyleifs Hafsteinssonar sem braut blað í íslenskri knattspyrnusögu árið 1964. Í fjölmiðlaumræðu nútímans eru afrek einstaklinga í íþróttum oft rædd á annan hátt en gerðist á árum áður. Fjölbreytnin er...
Þórður Sævarsson, einn af forsvarsmönnum Klifurfélags Akraness, fór í mikla ævintýraferð í sumar með bandarískum félögum sínum. Þar settu þeir upp „Highline“ þrautir á ýmsum stöðum á Íslandi. Í þessari íþrótt er listin að ganga á línu sem er fest með öruggum hætti og eins og sjá má eru Þórður og félagar hátt yfir jörðu...
Framhaldsskólarnir á Vesturlandi hafa á undanförnum árum haldið samkomu sem ber nafnið „West Side“. Á þessari samkomu hittast nemendur frá framhaldsskólunum á Akranesi, Borgarnesi og í Grundarfirði. „West Side“ fór að þessu sinni fram á Akranesi. Keppt var í fótbolta, körfubolta, blaki og fílabolta íþróttahúsinu við Vesturgötu. Spurningakeppni í anda Gettu betur fór einnig fram...
Matthías Leó Sigurðsson setti þrjú íslandsmet í gær á Íslandsmeistaramóti unglingaliða. Matthías, sem er á 10. aldursári, fékk 203 stig í einum leik, 371 stig í tveimur leikjum og 519 stig í þremur leikjum. Í viðtali við skagafrettir.is fyrr á þessu ári sagði Matthías að hann ætti sér draum um að verða besti keilumaður í...
Í nýjum úrskurði úskurðarnefndar umhverfis- og auðlindanefndar sem kveðinn var upp þann 3. október sl. kemur skýrt fram að heilbrigðiseftirlitið hefur heimild til þess að fjarlægja númerslausa bíla á einkalóðum, á þeirri forsendu einni að um væri að ræða lýti á umhverfinu. Úrskurðað var í kærumáli á hendur Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja sem fjarlægði, númerslausan ryðgaðan bíl...
Vinstrihreyfingin – grænt framboð er með mest fylgi í Norðvesturkjördæmi samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var af 365 miðlum. Þetta kom fram í kosningaþætti Stöðvar 2. Þátturinn er í heild sinni hér fyrir neðan. Hvaða flokkur fær þitt atkvæði í Alþingiskosningunum 2017? Björt Framtíð Framsóknarflokkurinn Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Flokkur fólksins Miðflokkurinn Píratar Samfylkingin Vinstrihreyfingin - grænt framboð...
Jóhannes Karl Guðjónsson er nýr þjálfari karlaliðs ÍA í knattspyrnu og Sigurður Jónsson verður aðstoðarþjálfari. Frá þessu var greint í fréttatilkynningu frá KFÍA í kvöld. Jóhannes Karl tekur við liðinu af Jóni Þóri Haukssyni sem var aðalþjálfari liðsins eftir að hafa tekið við liðinu í ágúst s.l. eftir að Gunnlaugur Jónsson hætti sem þjálfari liðsins....
Skemmtiferðaskipið Le Boreal mun leggjast að bryggju á Akranesi fimmtudaginn 9. ágúst árið 2018. Skiptið kom á Akranes í sumar og er það fyrsta slíka skipið sem leggst að bryggju í Akraneshöfn. Franska skipið var smíðað árið 2010 og er 142 metrar á lengd eða sem nemur einum og hálfum fótboltavelli. Hilmar Sigvaldason, vitavörður okkar...
Sjónvarpsstöðin N4 var með innslag frá Akranesi í þættinum Að Vestan þar sem að Hlédís Sveinsdóttir fór í heimsókn í fasteignasöluna Hákot. Þar sýndi Daníel Elíasson eigandi Hákots myndir af húsunum í bænum sem hann hefur safnað í mörg ár. Margar áhugaverðar myndir eru á veggjunum í Hákoti og sögur á bak við hverja einustu...