Á fundi skipulags- og umhverfisráðs, sem haldinn var þann 21. ágúst síðastliðinn var fjallað um tillögur rýnihóps um stækkun fimleikahúss úr 1410 fermetrum í 1632 fermetra sbr. greinargerð hönnuðar. Í fundargerð bæjarráðs frá 24. ágúst s.l. kemur fram að skipulags- og umhverfisráð tekur undir tillögur rýnihópsins og leggur til við bæjarráð að tekið verði tillit...
Nýverið kom góður hópur úr 1959 árgangi Skagamanna saman á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni. Þar gaf hópurinn Leyni glæsilega gjöf til minningar um látna skólafélaga. 1959 hópurinn hittist reglulega og einu sinni á ári er haldið golfmót og á fimm ára fresti fer fram hefðbundið árgangsmót. Gjöfin frá 1959 árganginum er garðbekkur sem er smíðaður...
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, er í ítarlegu viðtali í Morgunblaðinu í dag. Þar kemur m.a. fram að aðstæður hafi breyst mikið á Akranesi á undanförnum árum og mikilvægt sé að rýna í framtíðina og hugsanlegar sviðsmyndir. Sævar segir að gera megi ráð fyrir að íbúum Akraness fjölgi um 1.000 á næstu þremur árum og...
Um 400 manns fylgdust með liði Kára tryggja sér sigur í 3. deild karla í dag með 2-0 sigri gegn Einherja frá Vopnafirði. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni og skoruðu þeir Alexander Már Þorláksson og Jón Vilhelm Ákason mörkin. Fyrra markið skoraði Alexander á 20. mínútu en Jón Vilhelm gulltryggði sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok....
Skagamaðurinn Birgir Leifur Hafþórsson fagnaði sínum fyrsta sigri á Áskorendamótaröðinni í golfi í dag. Sjöfaldi Íslandsmeistarinn úr GKG þurfti ekki að tía boltann upp á lokahringnum því lokaumferðin var felld niður vegna úrkomu. Birgir var með sjö högga forskot fyrir lokahringinn og stóð því uppi sem sigurvegari. Þetta er í fyrsta sinn á löngum ferli...
Gísli Guðmundsson rakari hélt upp á 10 ára starfsafmæli Rakarastofu Gísla í dag með eftirminnilegum hætti. Í dag stóð yfir söfnun hjá Gísla sem skilaði af sér tæplega 330.000 kr. Allar tekjur dagsins runnu í söfnunina og bætti Gísli sjálfur við 100.000 kr. Uppgjör dagsins rennur því allt til Krabbameinssjúkra barna. Viðskiptavinir gátu einnig keypt...
Í gær var greint frá því að fiskvinnslan Ísfiskur hafi gengið frá kaupum á hluta húsnæðis HB Granda við Bárugötu. Samkvæmt frétt á RÚV verða 40 störf flutt á Akranes frá Kópavogi þegar fyrirtækið flytur starfssemi sína frá Kópavogi. Ísfiskur kaupir húsnæði HB Granda á 340 milljónir kr. Í viðtali á RÚV segir Albert Svavarsson, framkvæmdastjóri...
Listamaðurinn Baski eða Bjarni Skúli Ketilsson hefur á undanförnum árum vakið athygli fyrir áhugaverðar myndir þar sem hann rifjar upp æskuminningar frá Akranesi. Baski er búsettur í Hollandi en er afar iðinn við að mála myndir frá gamla heimabænum. Skemmtilegar umræður hafa verið um þessa mynd þar sem ein af fjölmörgum „sjoppum“ sem voru á...
Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur átt gríðarlega gott tímabil með Molde í norsku úrvalsdeildinni. Björn Bergmann er 26 ára gamall og hefur hann leikið sem atvinnumaður frá árinu 2009 þegar hann samdi við Lilleström í Noregi. Björn Bergmann er í landsliðshópnum sem mætir Finnlandi á laugardaginn í undankeppni HM. Í myndbandinu hér fyrir neðan má...
Bifreiðastöð ÞÞÞ hefur verið starfrækt frá árinu 1927 og þann 23. ágúst s.l. fagnaði fyrirtækið 90 ára starfsafmæli. ÞÞÞ er án efa eitt elsta fyrirtækið á Akranesi og að því tilefni afhentu Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri forsvarsmönnum ÞÞÞ gjöf. Þar var um að ræða málverk frá Bjarna Þór og blómvöndur...