• Skemmtiferðaskipið Le Boreal er fyrsta slíka skipið sem leggst að bryggju í Akraneshöfn. Franska skipið kom er engin smásmíði en það var smíðað árið 2010 og er það 142 metrar að lengd, sem samsvarar einum og hálfum fótboltavelli. Faxaflóahafnir tóku saman skemmtilegt myndband um komu skipsins og má sjá afraksturinn hér fyrir neðan.

  • Akraneskaupstaður tekur ákvörðun í lok ágúst hvaða tilboði verður tekið í niðurrif á byggingum og búnaði Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Verkefnið er risavaxið og verða 16 mannvirki rifinn og rúmmál þeirra er um 40.000 m3. Verklok eru áætluðu í ágúst 2018.   Sementsstrompurinn - á að rífa hann eða að láta hann standa Já - Strompurinn á...

  • Ísland og Belgía áttust við í vináttulandsleik í körfuknattleik karla s.l. laugardag í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Þetta var fimmti A-landsleikurinn í körfubolta sem fram fer á Akranesi og var mikill fjöldi áhorfenda sem mætti á svæðið. Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður Körfuknattleikssambands Íslands hrósar Skagamönnum fyrir þeirra framlag vegna landsleiksins í pistli sem hann...

  • Skemmtiferðaskipið Le Boreal leggjast lagðist að bryggju í Akraneshöfn í morgun. Tæplega 270 farþegar en alls eru um 440 manns um borð í skipinu á hverjum tíma því um 140 manns starfa um borð í skipinu. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá komu skipsins í morgun sem Einar Logi Einarsson tók.   Erna Kristjánsdóttir,...

  • Það er stórviðburður í íþróttahúsinu við Vesturgötu laugardaginn 29. júlí kl. 17.00 þar sem A-landslið Íslands í körfubolta mætir Belgíu í vináttulandsleik. Leikurinn er liður í undirbúningi landsliðsins fyrir lokakeppni EM sem fram fer í Finnlandi í haust og er þetta í annað sinn sem Ísland leikur í lokaúrslitum EM. Jón Þór Þórðarson, þjálfari ÍA...

  • Ingþór Bergmann Þórhallsson eigandi Omnis á Akranesi er ánægður með Theódór Frey Hervarsson veðurfræðing – og veðurspána sem Skagamaðurinn bauð upp á í tíufréttunum á RÚV. Ingþór ætlar hreinlega að loka versluninni vegna veðurs miðvikudaginn 26. júlí. Við hér á Skagafrettir.is erum að sjálfsögðu ánægð með þetta hugarfar. Flórída-Skaginn mun standa undir nafni á morgun...

  • Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL og Axel Bóasson úr GK fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í golfi í dag á Hvaleyrarvelli á Eimskipsmótaröðinni. Þetta er annar titill Axels en hann sigraði árið 2011. Hann hafði betur gegn Haraldi Franklín Magnús (GR) í þriggja holu umspili um sigurinn. Valdís Þóra fagnaði sínum þriðja Íslandsmeistaratitli en hún sigraði árið 2009...

  • Skagahjónin Guðrún Sigríður Gísladóttir og Guðmundur S. Jónsson luku um s.l. helgi miklum hjólatúr með Team Rynkenby Ísland. Mikil ævintýraferð og sérstök tilfinning að hafa lokið þessu verkefni eftir tæplega árs undirbúning skrifar Guðrún m.a. á fésbókarsíðu sína. Hér má lesa nánar um verkefnið sem þau Guðrún og Guðmundur tóku þátt í.  Guðrún og Guðmundur...

  • Ferjan Akranes sem hefur siglt á milli Reykjavíkur og Akraness frá 14. júní s.l. mun fjölga daglegum áætlunarsiglinum sínum frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram á mbl.is. Akranes hefur siglt þrisvar sinnum á dag en frá og með næsta mánudegi verða ferðirnar alls fjórar daglega. Þar að auki verður bætt við ferðum...

  • Valdís Þóra Jónsdóttir, afrekskylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hefur lokið keppni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Valdís komst ekki í gegnum niðurskurðinn að loknum öðrum keppnisdegi af alls fjórum. Hún lék samtals á +9 yfir pari vallar en þeir sem léku á +2 eða betur komust áfram og fá verðlaunafé á þessu móti. Valdís Þóra...

Loading...