Knattspyrnulið Kára frá Akranesi heldur áfram að gera góða hluti í 3. deild karla í knattspyrnu. Í gær fór fram toppslagur gegn Vængjum Júpiters í Egilshöll. Þar hafði Kári betur, 2-0, í miklum baráttuleik. Einar Logi Einarsson skoraði fyrsta markið á 16. mínútu og Óliver Darri Bergmann Jónsson innsiglaði sigurinn með marki á 87. mínútu....
Valdís Þóra Jónsdóttir hefur leik í dag á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Mótið fer fram á Trump National Golf Club, Bedminster, N.J. og stendur það yfir í fjóra daga. Valdís er fyrsti íslenski kylfingurinn sem fær keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu og hún er annar íslenski kylfingurinn sem leikur á einu af risamótunum í...
Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson er næst markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Björn, sem leikur með Molde, hefur skorað alls 10 mörk á tímabilinu. Hann er í liði ársins það sem af er tímabilinu hjá sparkspekingum TV2 sjónvarpsstöðvarinnar. Þeir sérfræðingar eru á þeirri skoðun að Björn sé einfaldlega besti leikmaður deildarinnar.
Meistaramóti GL lauk laugardaginn 8. júlí á Garðavelli. Keppendur voru 115 í öllum flokkum bæði yngri og eldri kylfingar. Vallaraðstæður voru allar hinar bestu og veðrið sýndi allar hliðar sínar meðan á mótinu stóð. Stefán Orri Ólafsson og Hulda Birna Baldursdóttir eru klúbbmeistarar Leynis 2017. Lokahófið fór fram í íþróttamiðstöðinni við Jaðarsbakka þar sem að...
Valdís Þóra Jónsdóttir atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi hefur fengið það staðfest að hún fái keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Mótið er eitt af fimm risamótum hvers árs og verður Valdís Þóra á meðal keppenda. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék um s.l. helgi á KPMG PGA meistaramótinu og var þar með fyrsti...
Bæjarbúar hafa án efa tekið eftir því að erlendir fánar eru víða dregnir að húni á Akranesi þessa dagana. Ástæðan er sú að hér eru tæplega 70 manns frá Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Um er að ræða fulltrúa frá vinabæjum Akraness og hefur Norræna félagið á Akranesi skipulagt dagskrá fyrir gestina. Alls eru vinabæir...
Írskir dagar tókust lygilega vel en bæjarhátíðin fór fram í 18. sinn um s.l. helgi. Ella María Gunnarsdóttir, forstöðumaður menningar – og safnamála á Akranesi, segir við skagafrettir.is að hátíðarhöldin hafi gengið vonum framar í ár. „Það var mikið af fólki sem kom í heimsókn en það er erfitt að finna nákvæma tölu á fjöldann...
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, skrifar áhugaverðan pistil á fésbókina í dag. Þar fer hann yfir þá reynslu sem hann fékk af veru sinni á Akranesi sem foreldri á Norðurálsmótinu og einnig á Orkumótinu í Vestmannaeyjum. Skipuleggjendur mótanna fá hæstu einkunn frá Forsetanum eins og lesa má í pistlinum hér fyrir neðan. Síðustu daga og...
Leikmenn ÍA úr 3. flokki karla í knattspyrnu voru sigursælir á alþjóðlegu móti, Barcelon Cup, sem fram fór í Salou rétt utan við stórborgina Barcelona. Alls var ÍA með tvö lið í þessari keppni en á þriðja tug leikmanna skipuðu liðin. ÍA 01 liðið stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa mætt liði Fram/Skallagríms í...
Ein af perlum Akraness, Langisandur, skartar bláum fána sem er tákn um góða umhverfisstjórnun. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki og er þetta í fimmta sinn sem fáninn er dreginn að húni við Langasand. Baðströndin Langisandur þarf að uppfylla 32 skilyrði sem lúta að vatnsgæðum, umhverfisstjórnun, upplýsingagjöf og öryggi. Frá þessu er greint á vefnum akranes.is. Salome Hallfreðsdóttir...