Töluverðar breytingar hafa verið gerðar að undanförnu á Café Kaja á Akranesi. Þar ræður Karen Emilía Jónsdóttir eigandi ríkjum. Hún stofnaði fyrirtækið Kaja Organic í mars 2013. Slagorðið í starfssemi Kaja Organic er „lífrænt fyrir alla“. Skagafrettir kíktu í heimsókn í Cafe Kaja á Akranesi nýverið og er óhætt að segja að breytingarnar séu vel heppnaðar...
Það stendur mikið til í kvöld þegar Útsvarslið Skagamanna keppir gegn Sandgerði í þessari vinsælu spurningakeppni á milli bæjarfélaga. Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir, Gerður Jóhannsdóttir og Örn Arnarson hafa staðið sig með prýði í keppninni fram til þessa og er við engu öðru að búast í kvöld. Skagafréttir spjallaði við Vilborgu um keppnina í kvöld. Hvernig...
Í dag opnaði ný og endurgerð verslun á Akranesi. Verslunin er staðsett við Garðagrund 1 og er nafnið á henni Krambúðin. Samkaup Strax var áður í þessu húsnæði sem Skagamenn þekkja vel eftir áralangan rekstur á þeirri verslun. Þetta er fjórða verslunin sem Samkaup opnar undir þessu nafni. Hinar eru við Skólavörðustíg í Reykjavík, á...
Körfuknattleiksfélag Akraness stendur á nokkrum tímamótum um þessar stundir. Meistaraflokkur félagsins leikur í næst efstu deild í karlaflokki og er ákveðið uppbyggingar – og endurnýjarferli farið í gang hjá félaginu. Næsti leikur hjá ÍA fer fram í kvöld, fimmtudag, á Selfossi þar sem ÍA mætir liði FSu í sannkölluðum fjögurra stiga leik. Hannibal Hauksson stjórnarmaður...
Fyrir nokkrum misserum hóf Íþróttabandalag Akraness að gefa út rafrænt fréttabréf þar sem stiklað er á stóru í starfi aðildarfélaga ÍA. Fyrsta tbl. ársins 2017 er nú komið út og er margt áhugavert að finna þar. Með því að smella hér er hægt að lesa fréttabréf ÍA.
Það stendur mikið til þriðjudaginn 24. janúar í Tónlistarskóla Akraness. Þar fer fram hin árlega Hátónsbarkakeppni þar sem ungir söngvarar úr grunnskólum Akraness sýna hvað í þeim býr. Alls eru átta tónlistaratriði í Hátónsbarkakeppninni en keppnin hefst kl. 20.00 og er 500 kr. aðgangseyrir. Keppendur í stafrófsröð eru: (Nafn, skóli og lag) 1. Aldís Inga...
Árgangur 1976 frumsýndi Skagaskaupið 2016 á Þorrablóti Skagamanna í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Þar var farið um víðan völl og mörg áhugaverð atvik frá árinu 2016 gerð upp.
Þorrablót Skagamanna fór fram í gærkvöld í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Mikið fjölmenni var að venju á blótinu og voru um 700 manns í mat og enn fleiri mættu eftir miðnætti á dansleikinn. Hér eru nokkrar myndir frá blótinu sem merktar voru #skagablot17 á samfélagsmiðlunum. Hér eru einnig myndir frá Þorrablótinu á fésbókarsíðu Þorrablóts Skagamanna. Hér...
Á Þorrablóti Skagamanna í gær, 21. janúar var Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður útnefnd Skagamaður ársins 2016. Það var Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs sem kynnti Skagamann ársins með eftirfarandi stökum sem Heiðrún Jónsdóttir á bæjarskrifstofunni orti af þessu tilefni: Skagamaður ársins er afar flottur karakter. Hæfileika í bunkum ber, en býsn af hógværð líka. Sínum kostum síst...
Arnór Sigurðsson, ungur knattspyrnumaður úr ÍA, mun á næstu dögum fara í æfingaferð með sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping. Arnór er fæddur árið 1999 og er því á 18. ári en hann leikur sem miðjumaður. Arnór hefur leikið 15 leiki með U17 ára landsliði Íslands og í fyrra var hann skráður með 14 leiki með ÍA í...