Mynd dagsins tók Finnbogi Rafn Guðmundsson. Myndin er frá einum vinsælasta myndatökustað Akraness, við vitana á Breiðinni. Sjónarhornið í þessari mynd og birtan yfir vitanum gerir hana eftirtektarverða. Vel gert Finnbogi.
Það var margt um manninn þegar kveikt á jólaljósunum á Akratorgi laugardaginn 26. nóvember. Michał Mogiła tók þetta myndband sem sýnir undirbúninginn fyrir hátíðina og skemmtunina á 60 sekúndum. Það var vel gert Michal – takk fyrir myndbandið. Jólatréð var gróðursett fyrir um 30 árum í landi Stóru-Fellsaxlar norðan megin við Akrafjall. Að venju var athöfnin...
Haldið var upp á 70 ára afmæli Íþróttabandalags Akraness laugardaginn 26. nóvember og samhliða því var haldið upp á 40 ára afmæli íþróttahússins við Vesturgötu. Það var mikið um að vera á hátíðinni eins og sjá má á þessum myndum sem Guðmundur Bjarki Halldórsson tók fyrir skagafrettir.is. Myndirnar eru einnig á fésbókarsíðu skagafrettir.is.
Þessar fjórar konur hafa rutt brautina og skrifað nýjan kafla í sögu Akraness. Frá vinstri: Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akraness en hún er fyrsta konan sem gegnir því embætti, Hildur Karen Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness en hún er einnig fyrsta konan sem er þar í forsvari, þar á eftir kemur Helga Sjöfn Jóhannesdóttir en hún...
Þorgeir Hafsteinn Jónsson er nýr fjármálastjóri Akraneskaupstaðar Nýverið var Þorgeir Hafsteinn Jónsson ráðinn sem fjármálastjóri Akraneskaupstaðar. Þorgeir, sem er 37 ára gamall, hefur störf á Akranesi þann 1. desember. Þorgeir hefur margra ára reynslu úr fjármálum, fjárfestingum og fyrirtækjarekstri. Í viðtali við skagafrettir.is segir Þorgeir að það ríki tilhlökkun hjá fjölskyldunni að takast á við...
Viðtal við Magnús Brandsson sem breytti um stefnu í lífsmynstrinu og hefur aldrei liðið betur Ef ég á að gefa góð ráð fyrir þá sem vilja rífa sig í gang þá er að byrja á að setja sér markmið og koma því á framfæri við vini og ættingja til að þeir veiti manni aðhald. Einnig...
Baldur Ragnarsson skrifar þessa frábæru sögu af nuddi í Kambódíu. Skagamaðurinn og nuddarinn Siggi Skó kemur þarna lítilsháttar við sögu. Skagakonan Vera Líndal Guðnadóttir er þarna í aðalhlutverki þar sem að Baldur er sambýlismaður hennar. Baldur er gítarleikari og söngvari í hinni einu sönnu Skálmöld. Upplifun númer tvö. Við tókum rútu frá Bangkok til Siem...
Útvarp Akranes hóf útsendingar í dag og er hægt að hlusta á útsendinguna í netútsendingu. Þetta er 28. árið sem Sundfélagið stendur fyrir þessu verkefni. Smelltu hér til að hlusta.
Afmælishátíð ÍA og Íþróttahússins við Vesturgötu stendur yfir frá 13:00 – 16:00 Guli ÍA liturinn verður áberandi á Akranesi í dag þar sem gulur dagur er hjá gríðarlega mörgum Skagamönnum. Tilefnið er að ÍA heldur upp á 70 ára afmæli félagsins á laugardaginn og samhliða því verður 40 ára afmælishátíð íþróttahússins við Vesturgötu. Ætlar þú...
Þór Breiðfjörð, einn besti söngvari landsins, syngur með kór Akraneskirkju í Bíóhöllinni á laugardaginn. Það ríkir mikil eftirvænting fyrir tónleika sem fram fara laugardaginn 26. nóvember í hinni einu sönnu Bíóhöll á Akranesi. Jól í Höllinni er yfirskrift tónleikanna en þar mun flauelsbarkinn Þór Breiðfjörð koma fram ásamt fjölskipuðum kór Akraneskirkju. „Þór er flottur söngvari...