Bikarmeistarmót Íslands í klifri fór fram um s.l. helgi þar sem að keppt var í C-flokki. Undankeppnin var erfið og þar sýndu klifrarar úr röðum ÍA styrk sinn. Sex stigahæstu keppendurnir fóru áfram í úrslit. Skagamenn fylltu öll þau sæti, fjórar stúlkur og tveir drengir...
Forstjóri Landsvirkjunar og stjórnarformaður Landsvirkjunar eru harðlega gagnrýndir í ályktun var samþykkt á síðasta fundi bæjarráðs þann 27. febrúar sl. Ályktunin er hér fyrir neðan. „Í ágústmánuði síðasta árs sendu sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar og bæjarstjórn Akraness sameiginlega frá sér áskorun til ríkisstjórnar Íslands um stefnubreytingu í...
Íþróttamaður Akraness 2019, hestamaðurinn Jakob Svavar Sigurðsson, náði frábærum árangri í fimmgangi í Meistaradeildinni nýverið. Keppt var í Samsunghöllinni hjá Spretti. Jakob keppti á hestinum Ský frá Skálaholti. Þeir fóru rólega af stað í forkeppninni og voru í sjötta sæti og síðastir inn í úrslitin....
Í dag fór fram sterkt knattspyrnumót í Egilshöll sem ber nafnið Konudagsmótið. Fyrrum leikmenn úr ÍA sem hafa leikið undir nafninu „Káralínur“ mættu þar til leiks til þess að láta að sér kveða og það tókst svo sannarlega. Um er að ræða þaulreynda leikmenn sem...
Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. í gær var lagt fram bréf Gísla Gíslasonar hafnarstjóra þar sem hann segir starfi sínu lausu. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. „Undirritaður hefur gegnt starfi hafnarstjóra í á fimmtánda ár og tímans gangur sá að skynsamlegt sé að...
Fimm keppendur frá ÍA taka þessa dagana þátt á Alþjóðlegu sundmóti sem fram fer í Riga í Lettlandi. Brynhildur Traustadóttir náði þeim frábæra árangri að landa bronsverðlaunum í 400 metra skriðsundi í gær. Ragnheiður Karen Ólafsdóttir synti einnig í B-úrslitum í gær í tveimur greinum...
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona verður í sviðsljósinu á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar sem verður í beinni útsendingu á laugardagskvöld á RÚV. Helga Ingibjörg syngur þar lagið „Meet Me Halfway“ – ásamt Ísold Wilberg en þær slógu svo sannarlega í gegn á fyrra undanúrslitakvöldinu. Helga Ingibjörg segir í...
Enrique Snær Llorens heldur áfram að bæta metin í sundlauginni. Skagamaðurinn efnilegi bætti 16 ára gamalt Akranesmet í 400 metra skriðsundi fyrr í dag á Alþjóðlegu móti sem fram fer í Lettlandi. Enrique Snær, sem er fæddur árið 2002, synti vegalengdina á 4.17,94 mínútum en...
Akranes kom vel út á fyrsta Íslandsmótinu í uppistandi sem fram fór í gær í Háskólabíói. Greipur Hjaltason stóð uppi sem sigurvegari og fékk hann titilinn Íslandsmeistari í uppistandi og 500.000 kr. verðlaunafé. Þess má geta að móðir Greips, Ethel Karlsdóttir, býr á Akranesi og...
Áhöfnin á Bjarna Ólafssyni AK 70 hefur staðið í ströngu að undanförnu á kolmunnaveiðum. Veiðisvæðið við „Porcuoine-banka“ er langt frá Íslandsströndum eins og sjá má á kortinu hér fyrir neðan. Bjarni Ólafsson er þessa stundina á leið til löndunar með fullfermi af kolmunna. Aflinn er...