Við undirritaðir tökum eindregið undir áskorun bæjarstjórnar Akraness á samgönguyfirvöld þess efnis að þegar verði brugðist við alvarlegu ástandi Vesturlandsvegar á Kjalarnesi og frekari fjármunum veitt til nauðsynlegra úrbóta varðandi tvöföldun vegarkaflans. Jafnframt minnum við á áður sendar ábendingar um að afar brýnt sé að...
„Í hverri einustu stórfjölskyldu á Akranesi er sjálfsagt einhver sem getur komið með reynslusögur af Kjalarnesinu. Hefur orðið vitni að háskalegum akstri þar, lent í umferðaróhappi eða komið að slysi. Sögurnar eru óteljandi og vegurinn er mjög varhugaverður,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir á Akranesi í ítarlegu...
Heiðrún Jónsdóttir starfsmaður bæjarskrifstofu Akraness samdi þessa vísu sem Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs flutti í gær þegar Skagamaður ársins 2017 var útnefndur. Sigurður Elvar Þórólfsson ritstjóri skagafrettir.is er Skagamaður ársins 2017. Við hér á skagafrettir.is þökkum kærlega fyrir hrósið og móttökurnar á fyrsta ári fréttavefsins....
Gríðarleg stemning var á Þorrablóti Skagamanna sem fram fór í gær í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Um 700 manns mættu á blótið sem fáir Skagamenn vilja missa af. Árgangur 1971 sá um framkvæmd Þorrablótsins líkt og áður – og er óhætt að segja að sá hópur...
„Það er gaman og gott að finna samstöðuna hjá Skagamönnum í þessu verkefni. Þetta fór fram úr okkar björtustu vonum og við vitum að þessir fjármunir eiga eftir að nýtast til góðra verka,“ sagði Þórður Már Gylfason í dag í höfuðstöðvum Sansa á Akranesi. Alls...
Það var mikið um að vera í íþróttahúsinu við Vesturgötu í gærkvöld. Þar var fjöldi manns mættur til þess að undirbúa Þorrablót Skagamanna sem fram fer í kvöld. Árgangur 1971 var þar mættur ásamt fjölda sjálfboðaliða úr íþrótahreyfingunni og var salurinn „græjaður“ af mikilli fagmennsku...
Fyrsta skóflustungan var tekin að nýrri frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi í dag 19. janúar, að viðstöddu fjölmenni. Golfklúbburinn Leynir og Akraneskaupstaður standa að framkvæmdinni og á meðfylgjandi myndum má sjá Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóra, Helgu Sjöfn Jóhannesdóttur formann ÍA, Þórð Emil Ólafsson formann GL...
Af umræðu síðust vikna og mánaða má heyra að flestum er orðið ljóst það ófremdarástand sem er á vegtengingu sunnanverðs Vesturlands við höfuðborgarsvæðið. Staða þessa hluta vegakerfisins hefur mér þótt vekja furðu lítinn áhuga undanfarin ár, en nú næst vonandi með samstilltu átaki að koma...
Bergdís Fanney Einarsdóttir leikmaður ÍA er í landsliðhóp Íslands sem æfir með U19 ára landsliði kvenna í lok janúar. Skagamaðurinn Þórður Þórðarson er þjálfari liðsins. Bergdís Fanney er lykilmaður í meistaraflokki ÍA en hún var kjörin knattspyrnukona ársins 2017 hjá ÍA. Hópurinn er þannig skipaður: ...
Bóndadagurinn er að renna í hlað og af því tilefni verður mikið um að vera í anddyri Tónlistarskólans föstudaginn 19. janúar. Þar ætla nemendur að setja upp súputónleika sem hefjast kl. 12.10. Þetta er tilvalið tækifæri að bjóða Þorrann velkominn, brjóta upp hefðbundna dagskrá í...