Það er mikið um að vera um næstu helgi hjá Knattspyrnufélagi ÍA þegar liðið fær Keflavík í heimsókn í undanúrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ. ÍA og Keflavík áttust við í lokaumferð Pepsi Max deildarinnar um s.l. helgi í eftirminnilegum leik þar sem að ÍA tryggði sér áframhaldandi veru í deild þeirra bestu á Íslandi með mögnuðum 3-2...
Skagamennirnir Alexander Örn Kárason og Helgi Arnar Jónsson tóku þátt á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyftingum í dag. Mótið fer fram í Halmstad í Svíþjóð. Helgi Arnar keppti í 83 kg. flokki og Alexander Örn keppti í 93 kg. flokki. Alls er keppt í þremur keppnisgreinum í hverjum þyngdarflokki. Hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Alexander Örn...
Í næstu alþingiskosningum færist eitt þingsæti úr Norðvesturkjördæmi yfir í Suðvesturkjördæmi, í samræmi við íbúaþróun. Þingsætin verða sjö í norðvestri og fjórtán í suðvestri. Stefán Ingi Valdimarsson, ráðgjafi Landskjörstjórnar, segir í samtali við RÚV að litlu hafi munað að þessi breyting yrði gerð fyrir nýafstaðnar kosningar. „Eftir hverjar kosningar þarf samkvæmt lögum að reikna út...
Ný starfsstöð Veitna við Lækjarflóa á Akranesi var opnuð með formlegum hætti þann 23. september s.l. Nýja byggingin er um 1000 fm að stærð og gjörbyltir allri vinnuaðstöðu starfsfólks á Vesturlandi en það hefur undanfarin fjögur ár unnið í skrifstofurými í gámum eftir að mygla kom upp í húsnæði þess. Frá þessu er greint á...
Fjölmennur hópur keppenda úr ÍA tók þátt á Íslandsmeistaramóti #3 í klifri sem fram fór um liðna helgi. Um var að ræða keppendur sem tóku þátt í B – og C-flokki. Mótið fór fram hjá Klifurfélagi Reykjavíkur í Klifurhúsinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klifurfélagi ÍA. B-flokkurinn fékk að vinna fyrir kaupinu. Leiðir mótsins...
Aron Emil Gunnarsson, Golfklúbbi Selfoss, stóð uppi sem sigurvegari á WAGR-mótinu, sem fram fór á Hvaleyrarvelli dagana 24.-26. september. Skagamaðurinn Björn Viktor Viktorsson, úr Golfklúbbnum Leyni, deildi öðru sætinu á 237 höggum með Heiðari Snæ Bjarnasyni sem er einnig úr Golfklúbbi Selfoss líkt og Aron Emil. Mótið taldi til stiga á heimslista áhugakylfinga. Smelltu hér...
Skagamennirnir Arnar Gunnlaugsson og Pétur Pétursson stýrðu liðum sínum til sigurs á Íslandsmótinu í knattspyrnu, Pepsi Max deildinni, 2021. Arnar og Pétur léku með ÍA upp alla yngri flokka félagsins áður og fögnuðu báðir titlum með ÍA áður en þeir héldu ungir í atvinnumennsku. Arnar og Pétur voru miklir markaskorarar á árum áður og eiga...
Aukaþing Knattspyrnusambands Íslands fer fram 2. október n.k. Á þinginu verður kosið um formann og stjórn til bráðabirgða fram að næsta knattspyrnuþingi sem haldið verður í febrúar 2022. Eins og komið hefur fram áður sagði Guðni Bergsson formaður af sér nýverið og öll stjórn KSÍ sagði einnig af sér. Vanda Sigurgeirsdóttir, fyrrum leikmaður ÍA, verður...
Leikmenn Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu völdu Skagamanninn Ívar Orra Kristjánsson sem dómara ársins í efstu deild karla. Frá þessu er greint á vef Knattspyrnusambands Íslands. Verðlaunaafhendingin fór fram í Pepsi Max Stúkunni á Stöð 2 Sport í gærkvöld. Á sama tíma var einnig tilkynngt um hvaða leikmenn voru efstir í kjörinu á besta...
Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson nýtti tækifærið vel þegar hann kom inn á sem varamaður hjá danska liðinu FCK um s.l. helgi. Hann byrjaði á varamannabekknum gegn Norsjælland en hann kom inn á þegar um korter var eftir af leiknum. Ísak Bergmann skoraði aðeins fjórum mínútum síðar og gulltryggði þar með 5-1 sigur FCK. Þetta var...