Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis fer fram þriðjudaginn 3. desember í Frístundamiðstöðinni við Garðavöll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Leynis. Hefðbundinn aðalfundarstörf samkvæmt 8. gr. laga Golfklúbbsins Leynis. Aðalfundurinn hefst kl. 19:30 og fer fram eins og áður segir fram þriðjudaginn 3. desember 2019. Þetta er í fyrsta sinn sem aðalfundur Leynis fer fram í...
„Við unnum Sunshine State Conference keppnina. Þetta er í fyrsta sinn sem skólinn fer í úrslit og í fyrsta sinn sem þetta lið vinnur titil. Næst á dagskrá er að fara í NCAA keppnina eðe Nationals. Þá förum við og keppum við lið úr öðrum deildum. NCAA tournament er eins og bikarkeppnin heima á Íslandi....
Akraneskirkja leitar að lykilaðila til þess að sinna starfi skrifstofustjóra. Þetta kemur fram í starfsauglýsingu á vef Capacent. Skrifstofustjóri er leiðandi í þjónustu við sóknina og hefur yfirumsjón með færslu bókhalds, innkaupum, uppgjörum og öðrum fjármálatengdum verkefnum auk þess að vera helsti tengiliður vegna útfararþjónustu kirkjunnar. Starfið krefst mikilla samskipta og ríkrar þjónustulundar. Í boði...
Ísak Örn Elvarsson skrifar: „Það var markmið hópsins að komast áfram úr þessum riðli og tilfinningin er því frábær. Við höfum lagt mikið á okkur til að komast í milliriðilinn og það tókst,“ segir Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson við skagafrettir.is. Ísak Bergmann og Jón Gísli Eyland Gíslason léku stórt hlutverk með U-19 ára landsliði Íslands...
„Ég hef ekki tekið þátt í neinu sem heitir leiklist. Ég er þriggja barna faðir og rafvirki að mennt sem grípur í gítar og syngur af og til í fjölskyldusamkvæmum,“ segir Þorsteinn Gíslason sem hefur slegið í gegn í fraumraun sinni sem leikari í uppfærslu Skagaleikflokksins á Litlu Hryllingsbúðinni. „Það er alveg óhætt að segja...
Skagamaðurinn Viktor Elvar Viktorsson gefur kost á sér í stjórn Golfsambands Íslands á þingi GSÍ sem fram fer um næstu helgi. Alls gefa ellefu einstaklingar kost á sér í stjórnarkjörið. Alls fá tíu sæti í stjórn GSÍ en Haukur Örn Birgisson forseti er sjálfkjörinn sem ellefti stjórnarmaður – þar sem að ekkert mótframboð til forseta...
Arnór Sigurðsson var í byrjunarliði A-landsliðs karla í knattspyrnu í kvöld þegar liðið sigraði Moldóvu á útivelli 2-1 í undankeppni EM. Arnór, sem leikur sem atvinnumaður hjá rússneska liðinu CSKA í Moskvu kom mikið við sögu í leiknum. Hann lék sem hægri kantmaður og stóð vel fyrir sínu. Ísland fékk m.a. vítaspyrnu í síðari hálfleik...
Ég hef unnið hart að því í gegnum tíðina að ýta sjálfri mér út fyrir þægindarammann. Leiklist er einn hluti af því, ég var líka að reyna fyrir mér með grín og uppistand. Ég var einu sinni mjög lítið og feimið blóm. Ég kom ekki upp orði fyrir framan fólk. Samt sem áður var sú...
Fimleikastarfið hjá ÍA er blómlegt og er félagið nú það fjölmennasta í röðum ÍA. Iðkendur og þjálfarar Fimleikafélagsins leggja hart að sér við æfingar þrátt fyrir erfiðar aðstæður – og eftirvæntingin er mikil eftir nýju fimleikahúsi sem verður tilbúið á árinu 2020. Um helgina náðu ungir keppendur úr fjölmennu liði ÍA góðum árangri á Haustmóti...
Skagaleikflokkurinn er allsráðandi á samfélagsmiðlum á Akranesi og nærsveitum eftir frumsýninguna á Litlu Hryllingsbúðinni sem fram fór í gær. „Skemmtileg sýning, mjög flottur söngur, búningarnir vel gerðir og sjálf plantan fer á kostum í mörgum útgáfum. Í heildina stórskemmtileg og metnaðarfull sýning sem er Skagaleikflokknum til sóma. Heiðmar Eyjólfsson, sem leikur Baldur var stórskemmtilegur líkt...