Sameiginlegt lið ÍA/Kára og Skallagríms er Íslandsmeistari í keppni í 2. flokki karla í knattspyrnu. ÍA/Kári/Skallagrímur gerði 2-2 jafntefli í kvöld gegn sameiginlegu liði Fylkis/Eilliða. Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði bæði mörk liðsins. Sigurður Jónsson og Elínbergur Sveinsson eru þjálfarar ÍA/Kára/Skallagríms. Á sama tíma tapaði sameiginlegt lið Breiðabliks/Augnabliks en liðið er átta stigum á eftir þar...
Verkefnið Göngum í skólann verður sett í með formlegum hætti á miðvikudaginn. Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla. Hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til...
Þjóðarátakið „Á allra vörum“ 2019 hófst með formlegum hætti með athöfn í Hallgrímskirkju í gær. Markmið „Á allra vörum“ herferðarinnar 2019 er að vekja þjóðina og tala tæpitungulaust um þessi mál og koma með tillögur að lausn við vandamálinu. Á síðasta ári létust 39 einstaklingar vegna ofneyslu lyfja. Í ár verður stutt sérstaklega við verkefnið...
Hópur ungrar stráka á Akranesi á aldrinum 10-12 ára mættu á fund bæjarstjóra nýverið til þess að ræða um uppbyggingu brettagarðs, (e.skate park) hér á Akranesi. Þessi hópur ásamt fleirum stundar svokallaða brettaíþrótt og þykir þeim skortur á aðstöðu til æfinga fyrir íþróttina. Lögðu þeir áherslu á umræddur garður yrði staðsettur miðsvæðis þannig að hann...
Skagamaðurinn Snorri Magnússon þroskaþjálfi hefur kennt ungbarnasund í 28 ár. Snorri var í fremstu röð í sundíþróttinni á árum áður og keppti lengi fyrir ÍA – og ferill hans hófst í Bjarnalaug við Laugarbraut. Bjarnalaug kemur við sögu í myndinni eins og sjá má í myndbrotinu hér neðst í fréttinni. Frumkvöðlastarf Snorra hefur vakið mikla...
Andri Júlússon skoraði tvö mörk fyrir Kára og Árni Þór Árnason eitt í 3-1 sigri liðsins í kvöld gegn KFG á útivelli. Leikurinn var afar mikilvægur fyrir bæði lið í harðri baráttu fyrir tilverurétti sínum í 2. deild karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á Samsung vellinum í Garðabæ á heimavelli Stjörnunnar en KFG er...
Einungis fimm sóknarprestar hafa þjónað Akurnesingum frá árinu 1886. Starfsmannaveltan í þessu embætti er því með minnsta móti – miðað við mörg önnur embætti. Að meðaltali hafa sóknarprestarnir á Akranesi starfað samfellt í 26,6 ár. Sr. Jón A. Sveinsson var í embættinu í 35 ár sem er met. Hann var fyrsti sóknarpresturinn á Akranesi. Sr. Þráinn...
Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson er í landsliðshóp Íslands sem mætir Moldóvu og Albaníu í undankeppni EM 2020, 7. og 10. september. Arnór leikur sem atvinnumaður hjá rússneska stórliðinu CSKA í Moskvu. Erik Hamrén og Freyr Alexandersson, aðstoðarþjálfari, kynntu liðið á blaðamannafundi í Laugardalnum í dag. Töluverðar breytingar eru á hópnum og má þar nefna að Valsmaðurinn...
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir bæjarfulltrúi fyrir Samfylkinguna hefur óskað eftir ótímabundnu leyfi frá starfi sínu sem bæjarfulltrúi. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Gerður hefur frá síðustu kosningum árið 2018 gengt starfi fyrsta varaforseta í bæjarstjórn Akraness, formaður velferðar- og mannréttindaráðs og aðalmaður í skipulags- og umhverfisráði. Beiðni Gerðar verður formlega afgreidd á bæjarstjórnarfundi þann 10....
Jón Þór Hauksson byrjaði vel með íslenska kvennalandsliðið í sínum fyrsta leik í undankeppni EM sem þjálfari liðsins. Ísland sigraði Ungverja 4-1 en staðan í hálfleik var 1-1. Fyrri hálfleikurinn var ekki góður að mati þjálfarans og brýndi hann raust sína í hálfleiksræðunni á Laugardalsvelli. „Ég var brjálaður og það voru smá læti í hálfleik,“...