Eggert Kári Karlsson, Andri Júlíusson og Ragnar Már Lárusson skoruðu mörk Kára í kvöld í 3-1 sigri liðsins gegn ÍR í 2. deild karla í kvöld. Sigurinn var mjög mikilvægur fyrir Kára sem berst kröftulega fyrir tilverurétti sínum í 2. deildinni. Kári er í 10. sæti með 17 stig en þar fyrir neðan eru KFG...
Fréttir af góðum hljómburði í Akranesvita eru í heimsfréttunum eftir að sænska stórstjarnan Zara Larsson birti myndband á Instagram síðu sinni. Myndband þar sem að Zara þenur raddböndinn í Akranesvita hefur fengið tæplega 600 þúsund áhorf og rúmlega 200 þúsund hafa lækað færsluna hjá söngkonunni. Um 6 milljón notendur Instagram samfélagsmiðilsins fylgjast með því sem...
Heimasíða Akraneskaupstaðar hefur fengið nýtt útlit. Verkefnið hefur staðið yfir í nokkra mánuði en þjónustuaðili Akraneskaupstaðar við hönnun og gerð heimasíðunnar er Stefna ehf. Heimasíðan er mikið notuð og í síðustu viku var síðan með 2.424 vikulega notendur og 432 daglega notendur samkvæmt mælingu Modernus. Akranes.is er í 25. sæti yfir mest sóttu vefina í...
Zara Larsson er ein þekktasta tónlistarkona veraldar um þessar mundir. Sænski listamaðurinn kom við í Akranesvita í dag og þandi raddböndinn eins og heyra má í þessu myndbandi sem Björn Lúðvíksson tók í dag. Zara tók þátt í tónleikahaldinu hjá Ed Sheeran á Laugardalsvelli og nýtti hún tækifærið til þess að ferðast um Ísland að...
Akranesviti hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn áhugaverðasti staðurinn fyrir tónlistarfólk og listamenn. Hljómburðurinn í vitanum er einstakur og fagfólk á þessu sviði kann að meta það sem vitinn hefur upp á bjóða. Hilmar Sigvaldason, Björn Lúðvíksson og fleiri góðir Skagamenn hafa á undanförnum árum unnið markvisst að því að koma...
Ný berjategund sem er mjög sjaldgjæf á Íslandi fannst nýverið hér á Vesturlandi. Skagamaðurinn Benedikt Sævarsson fann þessa tegund á dögunum og er þessi uppgötvun afar merkileg í sögulegu samhengi. „Ég var í göngutúr í Munaðarnesi í Borgarfirði þegar ég rakst á nýja berjategund sem vakti athygli mína. Samkvæmt upplýsingum frá Náttúrufræðistofnun hefur þessi tegund...
Bryndís Rún Þórólfsdóttir tryggði ÍA mikilvæg þrjú stig í botnbaráttunni í Inkasso-deild kvenna í kvöld. Leikurinn fór fram á Norðurálsvellinum á Akranesi. Bryndís Rún skoraði eina mark leiksins á 55. mínútu gegn botnliði ÍR. Með sigrinum komst ÍA upp í 6. sæti deildarinnar eftir 13 umferðir og er liðið með 16 stig. Þetta er fjórði...
Skagamaðurinn Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi AK, mokar upp makrílnum ásamt öflugri áhöfn sinni. Í gærkvöld var Víkingur AK á Vopnafirði að landa 770 tonna afla af makríl. Albert segir í viðtali á heimasíðu HB Granda að aflabrögð hafi verið góð að undanförnu. ,,Við vorum að veiðum út af Reyðarfjarðardjúpi en þaðan er um átta...
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins halda fund þriðjudaginn 13. ágúst nk. kl. 12:00 í Frístundarmiðstöðinni við golfvöllinn á Akranesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokknum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins, dómsmálaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ritari Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og þingmennirnir Haraldur Benediktsson, Bryndís Haraldsdóttir og Vilhjálmur Árnason...
Drífa Harðardóttir úr Badmintonfélagi ÍA og Erla Björg Hafsteinsdóttir úr Badmintonfélagi Hafnarfjarðar stóðu uppi sem sigurvegarar á heimsmeistaramóti 40 ára og eldri í tvíliðaleiik í badminton. Á leið sinni í úrslitaleikinn sigruðu þær Drífa og Erla leiki gegn liðum frá Japan, Þýskalandi, Póllandi og Sri Lanka. Í úrslitaleiknum léku þær gegn Helene Abusdal frá Noregi...