• Álmaðurinn fer fram miðvikudaginn 24. júlí á Akranesi en um er að ræða keppni í þríþraut. Keppnin fer fram í og við helstu náttúruperlur Akraness. Keppt er í hjólreiðum, fjallgöngu/hlaupi, og sjósundi. CrossFit Ægir á Akranesi stendur á bak við keppnina í ár og sér um skipulag og skráningu. Sævar Berg Sigurðsson er í teyminu...

  • Arnór Sigurðsson skoraði þrennu í dag í æfingaleik með CSKA Moskvu gegn Rubin Kaza. Bæði liðin leika í efstu deild í Rússlandi. Skagamaðurinn skoraði fyrsta markið á 14. mínútu, og hann bætti við tveimur mörkum með stuttu millibili þegar um 10 mínútur voru eftir leiknum. Arnór er að hefja sitt annað tímabil með CSKA Moskvu...

  • Bæjarráð Akraness fjallaði á fundi sínum þann 3. júlí 2019 um skýrslu starfshóps um Sundabraut. En starfshópur um Sundabraut hefur lokið störfum og skilað skýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Sundabraut hefur verið til skoðunar um árabil og hafa bæjaryfirvöld á Akranesi og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi ítrekað ályktað um mikilvægi hennar því Sundabraut mun án...

  • Fjölmenni tók þátt í sjósundi á Írskum dögum þar sem að minningu Helga Hannessonar íþrótta – og sundkennar á Akranesi var haldið á lofti. Helgi Hannesson var frumkvöðull á þessu sviði og synti reglulega í sjónum við Langasand. Löngu áður en sjósund varð vinsælt á Íslandi. Synt var frá Sementsbryggjunni og komið í land til...

  • Skagamaðurinn Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfa­son hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka og mun hann hefja störf með haustinu. Um nýtt hlut­verk er að ræða innan bank­ans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. Ásgeir hefur und­an­farin ár starfað sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Kviku banka hf. Hann var með­limur í fram­kvæmda­hópi um losun fjár­magns­hafta árið 2015...

  • Björn Þór Björnsson og Snorri Kristleifsson halda áfram að dæla út áhugaverðu efni í hlaðvarpsþættinum Skagahraðlestin. Þeir félagar sjá um að gefa út hlaðvarpsþátt fyrir hvern heimaleik meistaraflokks karla í Pepsi-Maxdeildinni. Snorri sér um tæknimálin en Björn Þór er stjórnandi þáttarins. Í sjötta þætti er rætt við Jón Gunnlaugsson þar sem að árið 1979 er...

  • Þórólfur Ævar Sigurðsson og Ísak Örn Elvarsson stóðu uppi sem sigurvegarar á Opna Guinness golfmótinu sem fram fór laugardaginn 6. júlí. Þeir léku á 59 höggum nettó . Ævar er 73 ára og Ísak Örn er 17 ára en þeir kepptu fyrir tæknisvið fréttamiðilsins skagafrettir.is. Alls tóku 174 keppendur þátt en um var að ræða...

  • Metfjöldi mætti í gær í blíðskaparveðri á Brekkusöngin sem fram fór í gær við Akranesvöll. Þetta er í 12. sinn sem Brekkusöngurinn fer fram en um 1.000 manns mættu á viðburðinn þegar hann fór fram í fyrsta sinn. Gera má ráð fyrir að rúmlega 5.000 manns hafi mætt í gær en viðburðurinn er skipulagður af...

  • Tryggvi Haraldsson og Viktor Jónsson skoruðu mörk ÍA í dag í 2-0 sigri liðsins gegn Fylki í Pepsi-Maxdeild karla í knattspyrnu. Tryggvi skoraði fyrra markið á 13. mínútu eftir stoðsendingu frá Herði Gunnarssyni. Albert Hafsteinsson lagði upp síðar mark ÍA sem Viktor Jónsson skoraði á 80. mínútu. Með sigrinum þokaði lið ÍA sér upp í...

  • Það er nóg um að vera á Írskum dögum í dag – hér er dagskráin sem er í boði fyrir gesti bæjarhátíðarinnar. 🍀08:00-13:00 Opna Guinness á GarðavelliTexas scramble mót með glæsilegum vinningum. 🍀 10:30-12:00 Sandkastalakeppni á Langasandi í boði Hans og Grétu. Vegna sjávarfalla fer keppnin að þessu sinni fram á Langasandskrika næst Sólmundarhöfða. Verðlaun í fjórum...

Loading...