Leikmenn karlaliðs ÍA halda áfram að skrifa undir nýja samninga við félagið. Arnór Snær Guðmundsson og Steinar Þorsteinsson skrifuðu nýverið undir nýja samninga við ÍA. Arnór samdi til tveggja ára en varnarmaðurinn er fæddur árið 1993 og hefur leikið stórt hlutverk með ÍA undanfarin ár. Hann kom til ÍA frá Aftureldingu í Mosfellsbæ og hefur...
Annað mót tímabilsins á Íslandsbankamótaröð unglinga fór fram á Strandarvelli hjá Golfklúbbnum á Hellu um s.l. helgi. Alls tóku sex keppendur frá Leyni þátt þar af ein stúlka. Björn Viktor Viktorsson sem er lengst til vinstri á myndinni varð þriðji í flokki 15-16 ára pilta. Björn lék á 71-74 höggum og var samtals á +5....
Það er mikill áhugi á leikjum ÍA það sem af er PepsiMax-deild karla í knattspyrnu. Rétt tæplega 1.400 áhorfendur mæta að meðaltali á leiki ÍA í fyrstu 7 umferðunum. ÍA er í fjórða sæti yfir mestu aðsóknina. Taflan hér fyrir neðan segir alla söguna. Næsti leikur ÍA er á Norðurálsvelli þann 15. júní gegn KR....
Rakel Pálsdóttir hefur á undanförnum misserum og árum skipað sér í fremstu röð söngvara á landinu. Rakel hefur m.a. keppt í undankeppni Söngvakeppni Evrópu hér á Íslandi svo eitthvað sé nefnt. Rakel syngur hér lagið Halo í Akraneskirkju þar sem að Birgir Þórisson leikur með henni á píanó. Beyoncé söng Halo með eftirminnilegum hætti þegar...
Gengi Skagamanna í knattspyrnunni í sumar hefur vakið athygli. Sjónvarpsfréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson frá Stöð 2 og Vísir.is var á leik ÍA og Stjörnunnar á dögunum þar sem hann ræddi við stuðningsmenn á meðan leikurinn fór fram. Þátturinn ber nafnið Ástríðan. Áhugavert og skemmtilegt innslag sem sjá má hér fyrir neðan.
Þáttaröðin að Vestan hóf göngu sína að nýju á sjónvarpsstöðinni N4 nýverið. Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson fara víðsvegar um Vesturland í þáttunum og er efnisvalið fjölbreytt. Í fyrsta þættinum kom Akranes við sögu og þar var kastljósinu beint að nýrri Frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi. Innslagið má sjá hér fyrir neðan.
Skagamaðurinn Jón Ingi Þorvaldsson tók þátt í því að setja nýtt Ástralíumet í fallhlífarstökki um s.l. helgi. Alls tóku 130 stökkvarar þátt í því að setja Ástralíumet – og stökkið var framkvæmt á fallhlífarstökksvæðinu Skydive Perris í Kaliforníu. Jón Ingi segir í viðtali við mbl.is að hann hafi verið heppinn að fá að komast inn...
Eins og fram hefur komið á skagafrettir.is hætti Sigríður Steinunn Jónsdóttir sem verkefnastjóri atvinnumála hjá Akraneskaupstað um miðjan maí. Bæjarráð hefur samþykkt að auglýsa ekki eftir nýjum verkefnastjóra atvinnumála. Fjármagn vegna launakostnaðar verkefnastjóra verður nýtt til aðkeyptrar sérfræðiþjónustu vegna verkefna sem tengjast atvinnuuppbyggingu á Akranesi. Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram eftirfarandi bókun á fundi bæjarráðs. Á fundi...
Hleðslustöðvum verður fjölgað verulega á Akranesi á næstu misserum. Samkomulag þess efnis var samþykkt í bæjarráði Akraness nýverið. Akraneskaupstaðar, Orkuveita Reykjavíkur og Veitur ætla í sameiningu að standa að uppbyggingu innviða til hleðslu á rafbílum á Akranesi. Akraneskaupstaður leggur til 4 milljónir kr. í verkefnið á árinu 2019, Orkuveita Reykjavíkur leggur til sömu fjárhæð sem...
Bæjarráð Akraness leggur til að samið verði við Kaja organic ehf. um veitingasölu í þjónustuhúsinu við Guðlaugu við Langsand. Tillaga þess efnis var samþykkt í bæjarráði nýverið. Samstarfið er tilraunaverkefni sem gildir frá 25. maí til 31. ágúst 2019.