• Prúðasta liðið, Aldursflokkameistari og mjög góðar bætingar um helgina. Skagamenn létu að sér kveða í sundíþróttinni um liðna helgi á Aldursflokkameistaramóti Íslands sem fram fór í Reykjanesbæ. Mótið er bæði keppni á milli liða þar sem átta fyrstu sundmenn í hverri grein og hverjum aldursflokki gefa stig og einnig eru stigahæstu sundmenn hvers aldursflokks krýndir....

  • Sjálfboðaliðarnir hjá ÍATV halda áfram að toppa sjálfa sig. Í dag er boðið upp á beina útsendingu frá einum velli á hinu fjölmenna Norðurálsmóti sem fer fram þessa stundina á Akranesi. Útsendingin er hér fyrir neðan.

  • Það var mikill fögnuður í gær þegar leikmenn Kára fögnuðu langþráðum sigri í 2. deild karla í knattspyrnu. Káramenn lönduðu 5-0 sigri á heimavelli í Akraneshöllinni gegn gestunum í Garðabæ. Kári hefur á undanförnum vikum sogast niður í fallbaráttuna og þrátt fyrir sigurinn er Kári í næst neðsta sæti deildarinnar. Mörk Kára skoruðu: (upplýsingar frá...

  • Aron Elvar Dagsson fær tækifæri til þess að sýna sig og sanna með U-15 ára landsliði Íslands í körfubolta á næstunni. Skagamaðurinn er í U-15 ára landsliði Íslands sem tekur þátt á boðsmóti í Danmörku sem kallast COPENHAGEN-INVITATIONAL. Mótið fer fram í Farum rétt utan við höfuðborg Danaveldis. Aron Elvar hefur á undanförnum árum og...

  • Fimm fyrrum Íslandsmeistarar í holukeppni eru á meðal keppenda á Securitas-mótinu, Íslandsmótinu í holukeppni, sem fram fer á Garðavelli á Akranesi 21.-23. júní. Um er að ræða þriðja mótið af alls fimm á Mótaröð þeirra bestu á keppnistímabilinu 2019.  Þrír fyrrum meistarar eru í karlaflokki og tveir í kvennaflokki. Rúnar Arnórsson úr GK mætir í...

  • Á fundi skóla- og frístundaráðs þann 4. júní síðastliðinn var farið yfir umsóknir um styrki til íþrótta- og tómstundafélaga 2019. Ráðið vísar tillögu að úthlutun til staðfestingar í bæjarráði. Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum tillöguna um eftirfarandi úthlutun styrkja til íþrótta- og tómstundafélaga á árinu 2019: Knattspyrnufélag ÍA/UKÍA kr. 4.265.342 Fimleikafélag Akraness kr. 3.278.169....

  • Byggðasafnið í Görðum á Akranesi var til umfjöllunar í þættinum Að Vestan sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni N4. Heiðar Mar Björnsson og Hlédís Sveinsdóttir fara vítt og breitt um Vesturland í þáttunum sem vakið hafa mikla athygli. Rætt er við Ellu Maríu Gunnarsdóttur sem stýrir menningar – og safnamálum hjá Akraneskaupstað. Byggðasafnið í Görðum fagnar...

  • ÍA lagði Hauka í kvöld í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu á Norðurálsvellinum á Akranesi. Með sigrinum blandaði hið unga og efnilega lið ÍA sér í toppbaráttuna í næst efstu deild Íslandsmótsins. Fríða Halldórsdóttir skoraði eina mark leiksins. Leikurinn var í beinni útsendingu á ÍA TV.

  • „Við hafið“ er lag sem er í miklu uppáhaldi hjá söngkonunni Rakel Pálsdóttur. Myndband af flutningi hennar af þessu norska lagi er hér fyrir neðan. Skagamaðurinn Kristinn Gauti Gunnarsson sá um myndbandsupptökur og klippingu. „Loksins! Þetta fallega lag er í miklu uppáhaldi og mig hefur lengi dreymt um að gefa það út sjálf. Lagið er...

  • ÍA og Haukar eigast við í kvöld í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 19.15 á Norðurálsvellinum á Akranesi. Helena Ólafsdóttir þjálfari ÍA hvetur stuðningsmenn liðsins til þess að mæta á leikinn og styðja við bakið á hinu unga liði ÍA. ÍA er í næst efsta sæti deildarinnar eftir fjórar umferðir. Árangur liðsins er...

Loading...