• Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson er í sumarfríi í gamla heimabænum um þessar mundir. Arnór, sem verður tvítugur á þessu ári, leikur sem atvinnumaður hjá CSKA Moskvu í Rússlandi og hann hefur leikið með A-landsliðinu á undanförnum misserum. Arnór var staddur á leik Kára og Dalvíkur/Reynis um s.l. helgi og hér má sjá viðtal sem ÍA TV...

  • Bjarni Skúli Ketilsson var í gær útnefndur bæjarlistamaður Akraness. Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akranessl, greindi frá útnefningunni á 17. júní hátíðarhöldunum á Akratorgi í gær. Á hverju ári velur menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar bæjarlistamann Akraness. Nefndin óskar eftir tilnefningum um valið frá íbúum bæjarins, vinnur úr þeim tilnefningum sem berast og velur svo einn...

  • Gríðarlegur mannfjöldi safnaðist saman í dag á Akratorgi þegar 17. júní hátíðarhöldin fóru fram á Akranesi. Veðrið lék við gesti og má skjóta því föstu að sjaldan hafi fleiri mætt á hátíðarhöldin á þjóðhátíðardegi Íslands. Það var fjölbreytt dagskrá á Akratorginu og hér má sjá myndasyrpu frá hátíðarhöldunum. Loftmyndirnar tók Hjalti Sigurbjörnsson.

  • ÍA og KR áttust við í PepsiMax-deild karla í knattspyrnu í dag á Norðurálsvellinum. KR tyllti sér á topp deildarinnar með 3-1 sigri. Framtíðarleikmenn ÍA úr 8. flokki félagsins voru himinlifandi með daginn eins og sjá má í myndasyrpunni hér fyrir neðan. Krakkarnir fengu að ganga inn á leikvöllinn með leikmönnum beggja liða inn á...

  • Það var mikið stuð og frábær stemning í morgun þegar Kvennahlaupið fór fram á Akranesi. Þetta er í 30. sinn sem þessi viðurður fer fram. Eins og sjá má hér í myndasyrpunni lék veðrið við þá sem tóku þátt. Veðurblíðan á Akranesi er einstök um þessar mundir og það leyndi sér ekki að Skagamenn brosa...

  • Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í þrítugasta sinn í dag laugardaginn 15. júní og er hlaupið langstærsti almenningsíþróttaviðburðurinn á Íslandi á hverju ári. Á Akranesi verður að venju hlaupið frá Akratorgi kl. 11.00 og hefst viðburðurinn með hressilegri upphitun. Í 30 ár hafa þúsundir kvenna um allt land notið þess að hreyfa sig saman í...

  • Lögreglan á Vesturlandi sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem að hraðaakstur var til umfjöllunar. Margir íbúar hafa á undanförnum dögum og vikum haft samband við lögregluna og kvartað yfir of hröðum akstri. Lögreglan var við mælingar við skóla á Akranesi um daginn þar sem leyfður hámarkshraði er 30 km. og vel yfir 70...

  • Það er sannkallaður stórleikur í PepsiMax-deild karla á laugardaginn þegar ÍA tekur á móti KR á Norðurálsvellinum. Leikurinn hefst kl. 16.00. ÍA er í 2. sæti deildarinnar með 16 stig en KR er með 14 stig í þriðja sæti þegar þessi frétt var skrifuð. Einhverjar breytingar verða á ÍA-liðinu á morgun. Hinn leikreyndi Arnar Már...

  • „Úrslitin voru vonbrigði. Sóknarleikurinn var ekki nægjanlega góður. Þetta var baráttuleikur. Baráttan og liðsheildin var til fyrirmyndar í dag,“ sagði Jón Þór Hauksson þjálfari A-landsliðs kvenna í dag eftir markalaust jafntefli gegn Finnum í dag. Liðin eigast við að nýju á mánudaginn. Skagakonan Hallbera Guðný Gísladóttir, sem leikur með Val, var í byrjunarliðinu að venju....

  • A-landslið kvenna í knattspyrnu, undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar, mætir liði Finnlands í dag ytra í vináttulandsleik. Skagakonan Hallbera Guðný Gísladóttir er í byrjunarliðinu. Leikurinn hefst kl. 15:30 í dag að íslenskum tíma og verður hann í beinni hér á Youtube rás KSÍ.

Loading...