Það var í mörg horn að líta hjá Rúnu Björgu Sigurðardóttur þegar skagafrettir.is litu við í æfingstöðinni Metabolic Akraness. Rúna Björg var í óðaönn að útbúa ferska og girnilega booztdrykki fyrir viðskiptavini sína sem voru á æfingu í salnum. Tilefnið var að eitt ár var liðið frá því að Rúna Björg opnaði Metabolic á Akranesi...
Skaginn 3X hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2017 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í dag, fimmtudaginn 30. mars. Í fréttatilkynningu segir m.a. að Skaginn sé fyrirtæki sem hefur sýnt árangur á markaði með framúrskarandi nýsköpun að leiðarljósi og er líklegt til að halda áfram á þeirri braut í framtíðinni „Skaginn hefur undanfarin ár verið leiðandi fyrirtæki í nýsköpun...
Iðkendur í fimleikafélagi Akraness hafa æft af miklum krafti á undanförnum vikum fyrir árlega vorsýningu FIMA sem fram fer laugardaginn 1. apríl í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Tvær sýningar verða á þessum degi og hefjast þær kl. 12 og 14. Þemað í ár eru tilfinningar og verður boðið upp á tilfinningarússibana í atriðum sýningarinnar. Á undanförnum...
Einar Logi Einarsson skrifar: Helgi Jónsson, knattspyrnumaður frá Akranesi, er á leiðinni til Kaliforníu í Bandaríkjunum í haust þar sem hann mun setjast á skólabekk í Saint Mary’s College. Helgi er hópi margra íslenskra ungmenna sem fær tækifæri að sameina áhugamálið og nám en Helgi mun leika með knattspyrnuliði Saint Mary’s College. Skagafréttir.is ræddi við...
Bæjarstjórn Akraness sendi í dag frá sér viljayfirlýsingu sem var einróma samþykkt meðal bæjarfulltrúa á bæjarstjórnarfundi. Þar voru málefni HB Granda efst á baugi. Forsvarsmenn HB Granda hafa ákveðið að hætta botnfiskvinnslu á Akranesi og sameina hana vinnslunni í Reykjavík. 93 starfa við botnfiskvinnslu á Akranesi og 270 í allt hjá HB Granda á Akranesi. „Bæjarstjórn...
Starfsmenn VÍS tóku Mottumarsdaginn með trompi en VÍS er með útibú á Kirkjubraut 40 á Akranesi. Í tilkynningu frá VÍS kemur fram að hefðbundnu föstudagskaffi hafi verið breytt í fjáröflunarkaffi til styrktar Mottumars. Þetta er árlegt átak Krabbameinsfélagsins þar sem áhersla er lögð á baráttu gegn krabbameini hjá körlum. Í ár var sérstök áhersla lögð á...
Þjóðlagasveitin Slitnir Strengir voru í aðalhlutverki á RÚV í gær í þættinum Landanum. Þar mætti Gísli Einarsson í heimsókn á útgáfutónleika sveitarinnar sem fram fóru þann 17. mars s.l. Rætt var við nokkra meðlimi Slitinna Strengja sem á sér langa og skemmtilega sögu þrátt fyrir að meðlimir sveitarinnar séu ungir að árum. Innslagið má sjá...
Sindri Birgisson og Alfreð Þór Alfreðsson voru í síðustu viku ráðnir í störf hjá Akranskaupstað. Þetta kemur fram á akranes.is. Sindri var ráðinn í starf umhverfisstjóra en alls sóttu níu aðilar um starfið. Alfreð Þór var ráðinn í starf rekstrarstjóra á skipulags – og umhverfissviði. Alls sóttu þrettán um það starf. Á vef Akraneskaupstaðar kemur eftirfarandi...
Brynjar Sigurðsson, íþróttakennari við Brekkubæjarskóla, er langt frá því að vera hættur að sýna hvað í honum býr á Instagram. „Binni“ er á fimmtugsaldri en veit svo sannarlega ekki að því og gefur hann yngri iðkendum í Fimleikafélagi Akraness ekkert eftir þegar kemur að styrk og liðleika. Hér vippar Binni sér upp kaðlana í Íþróttahúsinu...
Skagamaðurinn Einar Örn Guðnason (AKR) var sigursæll á Íslandsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum, sem fram fór í World Class Kringlunni. Einar Örn keppti í 105 kg flokki, þar sem hann bætti Íslandsmetin í klassískri hnébeygju, bekkpressu og samanlögðum árangri. Með allar níu lyftur gildar lyfti hann mest 278 kg í hnébeygju, 186 kg í bekkpressu og 277,5 kg...