„Ég hef átt frábæran tíma hér á Akranesi og ég er mjög þakklát fyrir það traust sem ég hef notið hjá bæjarfulltrúum bæði hjá núverandi og síðustu bæjarstjórn. Ég var alls ekki í atvinnuleit en þegar starf sviðstjóra Reykjavíkurborgar var auglýst ákvað ég að sækja um en ég hafði hugsað mér að söðla um við...
„Það er gríðarlega gaman að upplifa opnunardaginn sem var frábær. Mikið af fólki sem kom til okkar, almenn ánægja og okkur er vel tekið,“ segir Andri Júlíusson sem hefur tekið við rekstri verslunarinnar Galleri Ozone á Akranesi ásamt Maren Rós Steindórsdóttur. Andri og Maren hafa á undanförnum árum verið búsett í Noregi en þau ákváðu...
Fótboltafrændurnir Hallur Flosason og Arnþór Kristinsson eru heldur betur í föstudagsfílingnum í nýju ábreiðunni sem þeir hentu út á veraldarvefinn á hinni frábæru síðu hmagasin.is Að þessu sinni taka þeir sína útgáfu af laginu Feel No Ways eftir Drake – og útkoman er frábær. Er útgáfan hjá fótboltafrændunum betri en hjá Drake? Já, já Nei, nei...
Beinar siglingar milli Reykjavíkur og Akraness gætu verið endurvaktar í byrjun sumars sem tilraunaverkefni beggja sveitarfélaga yfir tímabilið 1. júní til 1. okóber. Frá þessu er greint á mbl.is í dag. Myndir þú nýta þér ferju sem sigldi á milli Akraness og Reykjavíkur? Já Nei ResultsVote Samþykkt var í borgarráði í gær að auglýsa siglingu 50-100...
„Þessi sýning er alveg absulement sem á góðri íslensku mætti kalla útsölusement. Þetta er gömul þýðing úr bók um hin eina sanna Lukku Láka,“ segir Skagamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson (BASKI) en hann opnar myndlistasýningu í Garðakaffi laugardaginn 11. febrúar kl. 14. BASKI hefur á undanförnum dögum verið með myndlistarnámskeið í Stúkuhúsinu á safnasvæðinu í Görðum....
Valdís Þóra Jónsdóttir byrjar vel á fyrsta móti ársins á LET Evrópumótaröðinni í golfi. Valdís lék á pari vallar á öðrum keppnisdeginum í Ástralíu eða 73 höggum og er hún samtals á -2 (71-73). Valdís komst örugglega í gegnum fyrri niðurskurðinn á þessu móti og er í sætum 35.-44. eins og staðan er núna. Hún...
Hinn eini sanni Einar Skúlason er sextugur í dag og hafa margir sent „Einsa Skúla“ góðar kveðjur á fésbókinni í dag. Vandamálið er að Einar er ekki sjálfur á samfélagsmiðlinum og þetta fer því flest framhjá honum. Orri Harðarson, rithöfundur og tónlistarmaður, sendir Einari afar hlýjar kveðjur í pistli sem hann skrifaði á fésbókina í dag....
Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraness, tekur við nýju starfi sem sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Það er því ljóst að nýr bæjarstjóri tekur við starfinu af Regínu en ekki er ljóst hvenær það mun gerast. Regína tekur við starfinu af Stefáni Eiríkssyni sem var skipaður borgarritari í desember á s.l. ári. Alls sóttu ellefu manns um stöðuna. Var...
Tryggvi Hrafn Haraldsson lék sinn fyrsta A-landsleik á ferlinum gegn Mexíkó í Las Vegas í Bandaríkjunum í nótt. Tryggvi, sem er nýliði í A-landsliði karla í knattspyrnu, kom inn á sem varamaður á 67. mínútu fyrir Kristinn Frey Sigurðsson. Alan Pulido skoraði eina mark leiksins á 21. mínútu. Sigur Mexíkó var sanngjarn þar sem liðið átti...
Katrín María Óskarsdóttir markvörður úr ÍA verður í U-17 ára landslið Íslands sem tekur þátt í undirbúningsmóti UEFA. Mótið fer fram í Edinborg í Skotlandi dagana 19.-25. febrúar og er Jörundur Áki Sveinsson þjálfari liðsins. Liðið leikur þrjá leiki í mótinu. Sá fyrsti er gegn Króatíu, mánudaginn 20. febrúar. Annar leikur liðsins er gegn heimamönnum...